Fréttablaðið - 17.03.2015, Síða 50
17. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 30
Óskar Ó
Jónsson
ooj@frettabladid.is
FEBRÚAR
RUSSELL
WESTBROOK
Stig 31,2
Fráköst 9,1
Stoðsendingar 10,3
Þrennur 4
MARS
RUSSELL
WESTBROOK
Stig 35,2
Fráköst 10,7
Stoðsendingar 9,8
Þrennur 3
KÖRFUBOLTI Oklahoma City
Thund er þarf á öllu sínu að halda í
baráttunni um að komast í úrslita-
keppnina í vor. Meiðsli lykilmanna,
skelfileg byrjun og sú staðreynd að
liðið spilar í Vesturdeildinni þýðir
að verkefnið er næstum því af
„ómögulegu“ gerðinni. Það er fyrir
lið sem eru ekki með mann eins og
Russell Westbrook í sínu liði.
Keppnisskapið, áræðnin, hug-
rekkið og sprengikrafturinn heilla
alla sem á horfa og flest lið þurfa
hreinlega að grípa til þess ráðs að
þrídekka kappann til að koma í veg
fyrir að hann hreinlega keyri yfir
þau með liðið sitt í eftirdragi. Jú,
auðvitað fylgir fullt af töpuðum
boltum og nóg af misheppnuðum
skotum en keppnisharkan er engu
lík og bráðsmitandi fyrir liðs-
félaga hans.
Maðurinn, sem hefur ítrekað
verið gagnrýndur fyrir að reyna
að gera of mikið eða jafnvel fyrir
að stela sviðsljósinu af besta leik-
manni liðsins, hefur sýnt að þar
er á ferðinni leikmaður sem getur
borið sitt uppi.
Durant hefur misst af 37 leikjum
Kevin Durant, besti leikmaður
NBA-deildarinnar á síðustu leik-
tíð, hefur aðeins spilað 27 leiki
af 66 á tímabilinu. Thunder-lið-
ið hefur því þurft að treysta enn
meira á leikstjórnanda sinn.
Nú velta sumir því fyrir sér
hvort hægt sé að ganga fram
hjá Russell þegar kemur að því
að velja mikilvægasta leikmann
deildarinnar og hvort Thunder
gæti eignast tvo bestu leikmenn
deildarinnar á tveimur árum.
Russel hefur misst af fullt af leikj-
um og það gæti spillt mikið fyrir
honum í þeirri baráttu.
Tölur Russell Westbrook í febrú-
ar voru sögulegar því hann var
aðeins annar leikmaðurinn í sögu
NBA sem náði því að vera með yfir
30 stig, 9 fráköst og 10 stoðsend-
ingar að meðaltali í tíu leikjum eða
fleiri í einum mánuði. Westbrook
komst þar í hóp með Oscar Robert-
son sem átti átta slíka mánuði.
Eins og Mihael Jordan
Russell Westbrook hefur ekki gefið
mikið eftir í mars, þvert á móti,
frábærar tölur hans urðu bara
enn betri. Hann hóf mánuðinn á
því að vera fyrsti maðurinn síðan
Michael Jordan (í mars og apríl
1988) sem náði þrennu í fjórum
leikjum í röð og var með 35,2 stig,
10,7 fráköst og 9,8 stoðsendingar
að meðaltali í fyrstu sex leikjum
OKC í mars.
Eins og sumar ofurhetjurnar
er Russell meira að segja farinn
að spila með grímu en þó af illri
nauðsyn. Westbrook endaði með
holu á kinnbeininu eftir einn leik-
inn en kinnbeinsbrotið hélt honum
þó bara frá í einum leik og hann
var með þrefalda tvennu í fyrsta
leiknum með grímuna.
Tölurnar og frammistaða Russ-
ells Westbrook eru líka að skila
Oklahoma City Thunder nær
úrslitakeppninni. Liðið vann 9
af 12 leikjum sínum í febrúar og
hefur unnið fjóra af 6 leikjum
sínum í mars.
Það er þó mikið verk eftir enn.
Oklahoma City Thunder situr eins
og er í áttunda og síðasta sætinu
en það er stutt í bæði New Orleans
Pelicans og Phoenix Suns. Liðið á
eftir sextán leiki í deildarkeppn-
inni og ekkert nema áframhald á
hetjulegri frammistöðu Russells
sér til þess að OKC verði í hópi
Enginn óskamótherji
Komist lið Oklahoma City Thunder
í úrslitakeppnina er ljóst að þar fer
enginn óskamótherji fyrir efstu
liðin sem eru mögulega að fara að
mæta einu heitasta liði NBA-deild-
arinnar.
Það styttist í endurkomu Kevins
Durant sem ætti að gera verkefnið
enn auðveldara. Það býst þó eng-
inn við því að Russell Westbrook
setjist í farþegasætið því OKC-lið-
ið er orðið jafnmikið hans lið eins
og það er liðið hans Durants.
Nýjasta ofurhetjan spilar í NBA
Russell Westbrook fylgir eft ir frábærum febrúarmánuði með jafnvel enn betri frammistöðu í mars. Það lítur úr fyrir að Westbrook ætli
nánast upp á sitt einsdæmi að koma Oklahoma City Thunder í úrslitakeppnina enda liðið að spila án síns „besta“ leikmanns.
KÖRFUBOLTI Sundsvall Dragons og
LF Basket, tvö af þremur Íslend-
ingaliðum sænsku úrvalsdeildar-
innar í körfubolta, mætast í kvöld
í fyrstu viðureign liðanna í átta
liða úrslitum úrslitakeppninnar.
LF Basket hafnaði í fjórða sæti og
Sundsvall því fimmta og því hafa
LF-menn heimaleikjaréttinn, en
með því spilar Haukur Helgi Páls-
son. Hlynur Bæringsson, Jakob
Örn Sigurðarson, Ægir Þór Stein-
arsson og Ragnar Nathanaelsson
eru allir á mála hjá Drekunum.
Haukur Helgi hefur haft gott
tak á félögum sínum úr landslið-
inu, en LF vann alla fjóra leiki lið-
anna í deildarkeppninni.
„Þetta er alveg komið gott. Nú
er kominn tími á að vinna þá til að
geta skotið til baka á Hauk,“ segir
Jakob Örn léttur við Fréttablaðið,
en hann var í rútunni á leiðinni
til Luleå þegar blaðamaður náði í
hann í gær.
LF vann fyrstu tvo leikina á móti
Sundsvall í deildinni með samtals
23 stiga mun en hinir tveir unnust
með tveimur og þremur stigum.
„Þetta hefur verið jafnara und-
anfarið þannig að við teljum okkur
eiga góða möguleika. Þetta verð-
ur auðvitað erfitt en ég held þetta
verði jöfn sería og margir spenn-
andi leikir. Það eru lokakaflarn-
ir sem gætu skipt sköpum,“ segir
Jakob, en þjálfari LF Basket er
Peter Öqvist, fyrrverandi lands-
liðsþjálfari Íslands.
„Það er alveg nóg af hlutum í
þessari seríu sem hægt er að nota
til að hvetja sig áfram. Það eru
auðvitað þessi fjögur töp fyrir LF
í deildinni og svo að vera að spila á
móti Hauki og Peter,“ segir Jakob.
Haukur Helgi hefur spilað mjög
vel fyrir LF í vetur. Hann spil-
aði 30 mínútur að meðaltali leik,
skoraði 12,9 stig, tók 4,9 fráköst og
gaf 3,4 stoðsendingar. Þá er hann
með 44,3 prósent nýtingu í þriggja
stiga skotum sem er það langbesta
hjá liðinu.
„Ég myndi segja að Haukur
Helgi væri einn af þremur bestu
mönnum LF. Þeir eru með tvo
Bandaríkjamenn sem þeir leita
mikið til í sókninni en Haukur
gerir svo mikið af hlutum,“ segir
Jakob um landsliðsfélaga sinn.
„Haukur skorar, tekur fráköst
og hefur verið duglegur að gefa
stoðsendingar í allan vetur. Spilið
fer svolítið í gegnum Hauk sem er
að taka réttar ákvarðanir. Hann er
mjög mikilvægur fyrir LF í sókn-
inni og sérstaklega í vörn þar sem
hann er stór en hreyfanlegur og
getur valdað marga menn. Peter
vissi upp á hár hvað hann var að
gera þegar hann fékk Hauk til
sín,“ segir Jakob.
Sjálfur hefur Jakob spilað vel
fyrir Sundsvall eins og oft áður, en
hann skoraði 16,1 stig að meðaltali
í leik. Jakob var ekki með íslenska
landsliðinu í undankeppni EM 2015
þar sem hann gaf ekki kost á sér,
en hann er í Berlínarhug núna.
„Ég er ekki búinn að skoða þetta
mikið, en eins og staðan er núna þá
er ég klár. Hugurinn leitar núna til
Berlínar,“ segir Jakob Örn Sigurð-
arson. - tom
Þetta er alveg komið gott hjá Hauki Helga og Peter
Íslendingaliðin Sundsvall Dragons og LF Basket mætast í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í kvöld.
ÍSLENDINGASLAGUR Jakob Örn Sigurðarson, Hlynur Bæringsson, Ægir Þór og
Raggi Nat mæta Hauki Helga og Peter Öqvist í 8-liða úrslitum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
1
6
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
5
-F
1
2
8
1
4
2
5
-E
F
E
C
1
4
2
5
-E
E
B
0
1
4
2
5
-E
D
7
4
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K