Skessuhorn


Skessuhorn - 10.03.2010, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 10.03.2010, Blaðsíða 11
Ferm ing - stað fest ing skírn ar inn ar í at höfn Þótt okk ur í nú tím an um finn ist sem börn hafi alltaf fermst á Ís landi er það alls ekki svo. Ferm ing ar og und ir bún ing ur þeirra fara held ur alls ekki alls stað ar eins fram, eins og sjá má hér í blað inu. Ís lensk­ ur dreng ur sem geng ur til prests í Þýska landi upp lif ir t.d. öðru vísi ferm ingarund ir bún ing en tíðkast hef ur hér á landi. Eft ir siða skipt in féll ferm ing víð ast hvar nið ur með­ al lút ers trú ar manna þar sem þeir við ur kenndu hana ekki sem sakra­ menti. Hún hélst hins veg ar við á Ís landi og var lög fest í danska rík­ inu 1736 sem at höfn á und an fyrstu alt ar is göngu, að und an geng inni fræðslu í kristn um fræð um. Fyr ir okk ur á Ís landi þýð ir ferm­ ing stað fest ing. Stað fest ing á þeirri á kvörð un for eldra að láta skíra barn ið og yf ir lýs ing við kom andi að hann vilji gera Jesú Krist að leið­ toga lífs síns. Mikl ar vanga velt ur hafa af og til bloss að upp um hvort barn sé nógu gam alt til að stað festa skírn sína 14 ára, eða hvort það sé of gam alt. Ekki skal lagð ur dóm ur á það. Sum ir prest ar hafa þó far ið þá leið að spyrja ekki hinn ar mik­ il vægu spurn ing ar um hvort ein­ stak ling ur inn vilji leit ast við að gera Jesú Krist að leið toga lífs síns. Spurn ing in sem stend ur eft ir er þá hvort um eig in lega ferm ingu sé að ræða. En ferm ing in er einnig ann að og meira. Hún hef ur löng um tákn­ að að við kom andi ein stak ling ur væri þar með kom inn í full orð inna manna tölu. Það er ekki lít ið stökk. Á ein um degi fer ein stak ling ur frá því að vera barn til þess að verða full orð inn. Áður fyrr urðu mik­ il þátta skil við þessa at höfn, lík lega meiri en við þekkj um í dag. Um­ bún að ur í kring um ferm ing una var sann ar lega mis jafn milli heim ila, þá eins og nú. Hann fer með al ann ars eft ir efna hag en ýmsu öðru einnig. Þó virð ist ætíð hafa ver ið reynt að gera dag inn eft ir minni leg an í huga ferm ing ar barns ins, hér á landi, al­ veg sama þótt fólk byggi við fá tækt. Þeim fjöl mörgu við mæl end um sem blaða menn Skessu horns hafa rætt við, ber öll um sam an um það. Á sum um bæj um þótti gott ef bak að­ ar voru pönnu kök ur í til efni dags­ ins. En það var kannski svo mik­ il ný breytni að ferm ing ar barn ið mundi það alla ævi. Ekki fengu öll börn ferm ing ar gjaf ir. Efn in hrukku ekki til þess en dag ur inn og um­ gjörð hans sátu föst í minni þess sem fermd ist. Stúlk ur áttu að klæð ast hvít um síð um kjöl um. Und ir hæl inn var lagt hversu vel gekk að út vega slíka flík, sér stak lega á efna minni bæj um. Marg ar frá sagn ir eru af því að sami ferm ing ar kjóll in hafi ver ið not að ur af mörg um stúlk um, enda ein ung­ is flík til að vera í við sjálfa at höfn­ ina, kyrt ill þess tíma. Þeg ar heim var kom ið var skipt um föt og far ið í svo kall að an „eft ir ferm ing ar kjól.“ Dreng ir voru hins veg ar í jakka föt­ Ferm ing ar 2010 um bæði við at höfn ina og heima á eft ir. Til þess að gera börn um sem komu frá fá tæk ari fjöl skyld um auð­ veld ara fyr ir var far ið að nota ferm­ ing ar kyrtla hér á landi. Það mun hafa ver ið sr. Jón M. Guð jóns son sókn ar prest ur á Akra nesi sem fyrst­ ur hug leiddi þetta. Mar grét dótt ir hans, sem var í Nor egi, sendi hon­ um snið af kyrtli sem not að ur var þar í landi. Sagði séra Jón frá þessu síð ar og ræddi með al ann ars inn­ leið ingu kyrtla við sr. Pét ur Sig ur­ geirs son sem þá var sókn ar prest ur á Ak ur eyri. Þar var hug mynd in strax grip in á lofti svo lík lega eru það börn á Ak ur eyri sem fyrst fermd ust í kyrtl um, viku á und an börn um á Skag an um. Fyrstu börn in skrýdd­ ust kyrtl um í ferm ing ar guðs þjón­ ustu á Akra nesi 9. maí 1954. bgk Ferm ing ar blað Skessu horns 2010 Um sjón: Skessu horn ehf. Texti og sam an tekt efn is: Birna G Kon ráðs dótt ir. Mynd ir: Birna G Kon ráðs dótt ir, mynda safn Skessu­ horns og úr einka söfn um við mæl enda. Aug lýs ing ar: Mark aðs deild Skessu horns. For síðu mynd: Frið þjóf ur Helga son.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.