Skessuhorn


Skessuhorn - 24.11.2010, Page 44

Skessuhorn - 24.11.2010, Page 44
2 | UPPHE IMAFRÉTT IR 2010 . . . og svo kom Ferguson – óvænt metsölubók Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri heldur áfram á sömu braut Árbók Akurnesinga kom út í tíunda sinn á árinu Haldið upp á afmælið með veglegustu Árbókinni til þessa Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri sló ræki­ lega gegn á síðasta ári með bók sinni, ...og svo kom Ferguson. Bókin, sem kom út í júlí 2009, var prentuð í 3.000 eintökum og þótti djarft en tveimur vikum fyrir jól var bókin algerlega uppseld og ófáanleg. Við því var brugðist með því að endurprenta bókina fyrri hluta þessa árs og er þetta merkilega rit því fáanlegt aftur. ...og svo kom Ferguson er merkileg bók fyrir fleiri sakir en þær að hafa selst vel. Með Fergu son dráttarvélarnar í forgrunni skrifar Bjarni sögu íslensks samfélags, einkum land­ bún aðar, frá lokum fimmta áratugar síðustu aldar og til loka þess sjötta. Á þessu árabili varð bylting í vélvæðingu sveitanna á sama tíma og fólk flykktist á mölina. Sam félags­ gerð in tók miklum breytingum í kjöl far heims styrjaldar og hernáms, samhliða örri tækni þróun og vaxandi velmegun. Bjarni Guðmundsson gerir þessum breyting­ um skil í skemmti legum og aðgengilegum texta og myndefni bókarinnar er ekki síður upp lýs andi og áhugavert, en bókin er prýdd miklum fjölda mynda. Ný bók í farvatninu hjá Bjarna Og Bjarni Guðmundsson er ekki af baki dott­ inn. Hann vinnur nú að ritun næstu bók ar og heldur sig á svipuðum slóðum. Að þessu sinni segir hann sögur um Farmall dráttar­ vélar, forvera þeirra og fleiri af hinum vinsælu vélum og tækjum frá International Harv ester (IHC), og hlut þeirra í framvindu land­ búnaðar og þjóðlífs á Íslandi undir titlinum Alltaf er Farmall fremstur. Fyrirhugað er að þessi nýja bók Bjarna komi út á vegum Uppheima þann 16. júlí 2011 og að þann dag verði efnt til dráttarvéladags á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri með áherslu á Farmall og aðrar IHC­vélar. Uppheimar fögnuðu tímamótum þegar tíunda bindi Árbókar Akurnesinga var gefið út nú í sumar. Árbækurnar hafa verið kjöl­ festa í útgáfustarfsemi Uppheima enda má rekja stofnun útgáfunnar til árbókarinnar og fyrstu árin snerist starfsemin fyrst og fremst um útgáfu hennar. Á þessum tíu árum hefur í árbókunum safnast saman mikið efni sem hefur ótvírætt gildi fyrir Akurnesinga – og orðið mörgum til fróðleiks og ánægju. Á hátt í 2.500 síð um er að finna tugi viðtala og greina eftir um 60 höfunda, um 3.000 ljósmyndir, að ógleymd­ um æviágripum ríflega 400 Akur nes inga. Og fjölbreytileikinn er mikill, greinarn ar og viðtölin spanna allt litróf mannlífsins á Skaga. Auglýsendur hafa nýtt sér þennan vettvang og auglýsingarnar geyma líka sína sögu. Frá upphafi útgáfunnar hafa fyrirtæki og stofnanir áttað sig á áhrifum Árbókarinn ar í að efla vitund okkar um heimahagana. Árbók Akurnesinga 2011 er nú í undirbúningi og hefur nýr ritstjóri, Haraldur Bjarnason, verið ráðinn til að stýra ellefta bindinu. Það er ekki laust við að svipur sé með þeim Ferguson og Bjarna Guðmundssyni.Mestölubókin um Ferguson er fáanleg aftur. Kristján Kristjánsson, ritstjóri Árbókarinnar frá upphafi.Haraldur Bjarnason er nýr ritstjóri Árbókar Akurnesinga. Farmall­bókin er væntanleg sumarið 2011.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.