Skessuhorn


Skessuhorn - 24.11.2010, Side 54

Skessuhorn - 24.11.2010, Side 54
Uppheimar | Vesturgötu 45 | 300 Akranes | 511 2450 | uppheimar@uppheimar.is | www.uppheimar.is Eyjafjallajökull – stórbrotin náttúra Glæsileg bók um áhrifamiklar náttúruhamfarir Fá eldgos á Íslandi hafa vakið viðlíka athygli og um brot in á Fimm vörðuhálsi og í Eyja­ fjalla jökli sem hófust í mars 2010. Unnið hratt Í eldgosinu miðju hófust tveir þrautreyndir sérfræðingar, þeir Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur og Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndari handa við gerð bókar um gosið. Megináhersla var lögð á heillandi ljósmyndir Ragnars af eldgosinu, myndir sem vakið hafa ómælda athygli út um allan heim. Í bókinni njóta þær sín til fulls og fanga mikilleik óham inna náttúruaflanna. Ítarlegur og að gengi legur texti Ara Trausta opnar ásamt mynd unum skýra sýn á þessa örlaga ríku at burði sem hafa haft meiri áhrif á heims byggðina en nokkurn gat órað fyrir, hvað þá á byggðirnar næst eldstöðvunum. Þekktir höfundar Ragnar er einn okkar þekktustu ljósmyndara og starfar á alþjóða mark aði. Hann hefur m.a. hlotið þrenn CLIO verðlaun. Ari Trausti er víð kunn ur heima og erlendis fyrir bæk ur sínar, sem skipta tugum, sem og sjón varps efni um jarð fræði og eld virkni. Þeir félagar hafa oft áður unnið saman að gerð bóka um íslenska náttúru og er skemmst frá því að segja að bókin var farin í prentun áður en gosinu lauk! Þann 4. júní kom út fyrsta útgáfa bókarinnar sem fékk titilinn Eyjafjallajökull – stórbrotin náttúra. Metsölubók Bókin seldist strax afar vel og önnur útgáfa hennar, lítillega endurbætt, kom út í lok júní. Sú útgáfa seldist einnig upp í sumar og í október kom út þriðja útgáfa bókarinnar, mikið aukin og endurbætt, þar sem afleið ing­ um og lokum gossins var fylgt eftir í máli og myndum. Komin út í Þýskalandi Eyjafjallajökull – stórbrotin náttúra hefur vakið athygli víðar en á Íslandi og er nú rétt komin út í Þýskalandi á vegum forlagsins Bassermann, sem keypti útgáfuréttinn á bók­ inni á þýska mál svæðinu. Tvítyngd bók Allur texti er bæði á íslensku og ensku sem gerir það að verkum að bókin á erindi um allan heim, enda hafa erlendir ferðamenn verið duglegir að krækja sér í eintök af henni. Jafn framt gerir það bókina að afar heppilegri gjöf til vina og samstarfsaðila erlendis. Glæsilegur prentgripur Við gerð bókarinnar var hvergi slegið af gæða kröfum þótt unnið væri hratt. Í góðri samvinnu við prentsmiðjuna Odda náðist frá bær árangur, enda hefur öll vinnsla bókar­ innar verið lofuð í hástert. Bókin er í stóru broti, 128 blaðsíður. Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur.Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndari.Kápumynd bókarinnar um eldsumbrotin í Eyjafjallajökli hefur m.a. prýtt forsíðu The New York Times.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.