Skessuhorn - 24.11.2010, Blaðsíða 54
Uppheimar | Vesturgötu 45 | 300 Akranes | 511 2450 | uppheimar@uppheimar.is | www.uppheimar.is
Eyjafjallajökull – stórbrotin náttúra
Glæsileg bók um áhrifamiklar náttúruhamfarir
Fá eldgos á Íslandi hafa vakið viðlíka athygli
og um brot in á Fimm vörðuhálsi og í Eyja
fjalla jökli sem hófust í mars 2010.
Unnið hratt
Í eldgosinu miðju hófust tveir þrautreyndir
sérfræðingar, þeir Ari Trausti Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur og Ragnar Th. Sigurðsson
ljósmyndari handa við gerð bókar um gosið.
Megináhersla var lögð á heillandi ljósmyndir
Ragnars af eldgosinu, myndir sem vakið hafa
ómælda athygli út um allan heim. Í bókinni
njóta þær sín til fulls og fanga mikilleik
óham inna náttúruaflanna.
Ítarlegur og að gengi legur texti Ara Trausta
opnar ásamt mynd unum skýra sýn á þessa
örlaga ríku at burði sem hafa haft meiri áhrif
á heims byggðina en nokkurn gat órað fyrir,
hvað þá á byggðirnar næst eldstöðvunum.
Þekktir höfundar
Ragnar er einn okkar þekktustu ljósmyndara
og starfar á alþjóða mark aði. Hann hefur m.a.
hlotið þrenn CLIO verðlaun.
Ari Trausti er víð kunn ur heima og erlendis
fyrir bæk ur sínar, sem skipta tugum, sem og
sjón varps efni um jarð fræði og eld virkni.
Þeir félagar hafa oft áður unnið saman að
gerð bóka um íslenska náttúru og er skemmst
frá því að segja að bókin var farin í prentun
áður en gosinu lauk! Þann 4. júní kom út
fyrsta útgáfa bókarinnar sem fékk titilinn
Eyjafjallajökull – stórbrotin náttúra.
Metsölubók
Bókin seldist strax afar vel og önnur útgáfa
hennar, lítillega endurbætt, kom út í lok
júní. Sú útgáfa seldist einnig upp í sumar og
í október kom út þriðja útgáfa bókarinnar,
mikið aukin og endurbætt, þar sem afleið ing
um og lokum gossins var fylgt eftir í máli og
myndum.
Komin út í Þýskalandi
Eyjafjallajökull – stórbrotin náttúra hefur
vakið athygli víðar en á Íslandi og er nú rétt
komin út í Þýskalandi á vegum forlagsins
Bassermann, sem keypti útgáfuréttinn á bók
inni á þýska mál svæðinu.
Tvítyngd bók
Allur texti er bæði á íslensku og ensku sem
gerir það að verkum að bókin á erindi um
allan heim, enda hafa erlendir ferðamenn
verið duglegir að krækja sér í eintök af henni.
Jafn framt gerir það bókina að afar heppilegri
gjöf til vina og samstarfsaðila erlendis.
Glæsilegur prentgripur
Við gerð bókarinnar var hvergi slegið af
gæða kröfum þótt unnið væri hratt. Í góðri
samvinnu við prentsmiðjuna Odda náðist
frá bær árangur, enda hefur öll vinnsla bókar
innar verið lofuð í hástert.
Bókin er í stóru broti, 128 blaðsíður.
Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur.Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndari.Kápumynd bókarinnar um eldsumbrotin í Eyjafjallajökli hefur m.a. prýtt forsíðu The New York Times.