Skessuhorn


Skessuhorn - 05.06.2013, Page 13

Skessuhorn - 05.06.2013, Page 13
13MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2013 Um klukkan 17 sl. miðvikudag sigldi franska skonnortan Etoile inn í Akraneshöfn og lagðist þar að bryggju. Skútan var byggð árið 1932 í Fécamp í Frakklandi en hún er í eigu franska ríkisins. Áhöfnin um borð er skipuð verðandi sjólið- um í franska sjóhernum sem notar hana til æfinga. Erindi Etoile, eða ,,Stjörnunnar” eins og nafnið út- leggst á íslensku, hingað til lands er að heiðra Hátíð hafsins og fór skút- an áleiðis til Reykjavíkur eftir við- komuna á Skaganum. Þar gafst al- menningi kostur á að skoða hana. Frá höfuðborginni mun leið Etoile liggja austur til Fáskrúðsfjarðar. hlh Samkaup, hef- ur í samráði við Heilbrigðiseft- irlit Suðurnesja, ákveðið að inn- kalla af markaði frosin jarðaber frá Coop þar sem grunur leikur á um að berin séu menguð af veiru sem veldur lifrabólgu A. Coop matvælaframleiðandinn hefur grip- ið til sams konar innköllunar í sam- ráði við matvæla- yfirvöld í Dan- mörku og Sví- þjóð. Jarðaberin eru seld í verslun- um Nettó, Sam- kaupum Strax, Samkaupum Úr- val og Kaskó. Neytendum er ráðlagt að skila vör- unni til Samkaups eða viðkomandi verslunar. ákj Síðastliðinn föstudag var Græn- fánanum flaggað í fyrsta sinn við Grunnskóla Borgarfjarðar á Klepp- járnsreykjum. Þar með hafa allar deildir skólans flaggað Grænfánan- um. Fulltrúi Landverndar afhenti fánann og umhverfisnefnd skólans veitti honum viðtöku og dró hann að húni. Að því loknu var sung- ið. „Flöggunin á föstudaginn er þó bara fyrsta skrefið af mörgum í átt að umhverfisvernd og bættri um- hverfisvitund. Það er og verður samvinnuverkefni okkar allra sem að skólanum koma á einhvern hátt að halda áfram í þá átt. Stefnum að flöggun aftur eftir tvö ár,“ seg- ir í frétt frá GBF á Kleppjárnsreykj- um. mm Hrönn Ríkharðs- dóttir hefur ósk- að eftir lausn frá setu í bæjarstjórn Akraneskaupstað- ar frá og með sum- arfríi bæjarstjórnar í júní að telja. Í sam- tali við Skessuhorn segir hún ástæð- una persónulega. Hún muni samt sem áður halda áfram störfum sín- um sem skólastjóri Grundaskóla. Á Fés- bókarsíðu sinni seg- ir hún ákveðna eftirsjá fylgja ákvörðuninni en hún segist ennfrem- ur hlakka til að takast á við ný verkefni sem bíða hennar. Fyrsti varamaður Samfylk- ingarinnar í bæjarstjórn er Gunn- hildur Björnsdóttir. ákj S m á a u g l ý s i n g a r - a t b u r ð a d a g a t a l - f r é t t i r www.skessuhorn.is Hrönn segir sig úr bæjarstjórn Grænfána flaggað á Kleppjárnsreykjum Frosin jarðaber frá Coop innkölluð Etoile siglir inn Akraneshöfn síðdegis á miðvikudaginn. Franska skútan Etoile á Akranesi

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.