Skessuhorn - 05.06.2013, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2013
Elsta álman á Hótel Stykkishólmi
hefur verið gerð upp, en alls eru 33
herbergi í þeirri álmu. Gangarnir
voru allir teknir í gegn og skipt um
gólfefni. Herbergin voru öll end-
urnýjuð sem og baðherbergin og
þá var skipt út öllum vatnslögnum.
„Ég er ótrúlega ánægð með breyt-
ingarnar,“ sagði María Bryndís
Ólafsdóttir hótelstjóri þegar blaða-
maður Skessuhorns leit við í síð-
ustu viku. „Sérstaklega er ég ánægð
með að við náðum að endurnýta
gömlu húsgögnin en við létum bara
flikka upp á þau og sprauta hvít, en
þau voru áður brún. Veggirnir, sem
áður voru gulir, hafa fengið þennan
nýja steingráa lit, settir voru hvítir
gólflistar og nýir ofnar. Inni á baði
voru gular og brúnar flísar en þeim
var skipt út fyrir hvítar. Herbergin
eru að mínu mati mun bjartari og
hlýlegri eftir breytingarnar og ég er
ekki frá því að útsýnið hérna út um
gluggana hafi meira að segja orðið
enn betra fyrir vikið,“ segir hún og
brosir.
María segist finna vel fyrir aukn-
um ferðamannastraumi til landsins.
„Ferðamannatímabilið hefur lengst
hjá okkur í báðar áttir. Hópum hef-
ur einnig fjölgað á veturna og enn
fleiri ferðamenn sem koma hingað
til að sjá norðurljósin. Við erum því
farin að markaðssetja þau í auknum
mæli. Sumarið lítur vel út hjá okk-
ur og mikið bókað. Þá er meira að
segja búið að bóka helling hjá okk-
ur á næsta ári, 2014,“ segir María
Bryndís Ólafsdóttir hótelstjóri á
Hótel Stykkishólmi að lokum.
ákj
Síðustu daga hefur vinnuflokk-
ur á vegum garðyrkjustjóra Akra-
neskaupstaðar bætt við trjáreitum
meðfram Þjóðbrautinni, nýja þjóð-
veginum í gegnum bæinn. Byrjað
var að planta trjám meðfram Þjóð-
brautinni fyrir þremur árum eða
fljótlega eftir að Íris Reynisdóttir
garðyrkjustjóri hóf störf hjá Akra-
neskaupstað, en hún hefur ásamt
forystufólki í bæjarmálum sýnt
trjárækt á opnum svæðum á Akra-
nesi mikinn áhuga. Í sumar verð-
ur plantað trjám í nokkur önnur
opin svæði á Akranesi. Er þetta lið-
ur í átaki til að fegra bæinn og um
leið gera hann skjólbetri. Í þessu
sambandi má geta þess að ýms-
ir hafa haft orð á því að veðurfar
hafi breyst á Akranesi seinni árin,
miklu mun vindasamar hafi verið á
árum áður en nú í seinni tíð. Þeg-
ar þetta er fært í tal við eldri Skaga-
menn eru þeir ekki í nokkrum vafa
um hvað þarna sé helsta ástæðan.
Það sé aukin trjárækt í bænum og
ekki séu margir áratugir frá því að
talið var að trjárækt væri ekki hægt
að stunda á Akranesi. Það afsannaði
hins vegar Guðmundur Jónsson,
sem gjarnan var kallaður garða-
naut, sem var stytting á ráðunautur,
og var upphafsmaður Garðalundar
og skógræktar á Akranesi. þá
Þrjú síðustu sumur hefur hjóla-
félagið Hjólamenn á höfuðborgar-
svæðinu efnt til hjólakeppni á Snæ-
fellsnesi þar sem hjólað er umhverf-
is nesið. Hjólamenn ákváðu á liðn-
um vetri að búa til stærri hjólavið-
burð en áður og stíla hann meira
upp á fjölskyldufólk og almenning
en gert hefur verið til þessa. Félagið
hefur ráðist í þriggja ára verkefni
í samvinnu við Grundarfjarðarbæ
og ferðamálasamtök á Vesturlandi
að markaðssetja þennan aðal hjóla-
viðburð á Vesturlandi, sem kallast
Jökulmílan. Grundarfjörður verð-
ur nú miðpunkturinn í stað Vega-
móta á Snæfellsnesi áður. Í stað
þess að áður var einvörðungu boð-
ið upp á hringinn um Snæfellsnes í
Þjóðgarðinum sem er nákvæmlega
160,9 km eða 100 mílur, verður í
boði Hálf Jökulmíla frá Búðum til
Grundarfjarðar, 72 km. Meðan Jök-
ulmílan stendur yfir verður boð-
ið upp á skemmtilega hjólakeppni
og hjólaþrautir fyrir börn þar sem
hjólaleiðin um bæinn lítur út eins
og karl með ýktan hökutopp.
Fallegar hjólaleiðir
Segja má að þjóðgarðarnir í land-
inu seyði Hjólamenn til sín en þeir
standa einnig fyrir viðburði að vor-
inu í Þjóðgarðinum á Þingvöllum,
sem nýtur sífellt meiri vinsælda.
Einar Kristinsson talsmaður Jökul-
mílunnar, segir að aðstæður í Þjóð-
garðinum Snæfellsjökli henti einkar
vel til hjólreiða og kjörið fyrir fjöl-
skyldufólk að mæta á svæðið í Jök-
ulmíluna sem verður haldin laug-
ardaginn 15. júní. Einar segir ekki
vafa á því að fólk muni njóta sín í
fallegri náttúru á Snæfellsnesi og
verði vart við kyngimagnaða krafta
Snæfellsjökuls. Lóndrangar, Arn-
arstapi, Búðir og sjálft Kirkjufellið
við Grundarfjörð gleðji augað. „Við
erum í samstarfi við Grundarfjarð-
arbæ um að þátttakendur fái frían
aðgang á tjaldsvæðið og við ætlum
að standa vel að hlutunum þannig
að börnin njóti sín líka,“ segir Einar.
Hálf Jökulmíla frá Búðum að Vega-
mótum og þaðan yfir Vatnaleiðina
í Grundarfjörð segir hann sérstak-
lega henta vel fyrir almenning sem
ekki vill endilega standa í keppni
heldur njóta þess að hjóla í fallegu
umhverfi.“ Einnig er náttúruunn-
endum boðið upp á að hefja ferðina
kl. 9, eða tveimur tímum fyrr svo
meiri tími gefist til að stoppa, fá sér
nesti og taka myndir.
Upplifunin meiri
og dýpri
Kynningarefni um Jöklamíluna er
einmitt ætlað að höfða til fólks sem
vill njóta umhverfisins á hjóli á fal-
legum leiðum. „Á hjólinu er upp-
lifunin meiri og dýpri. Gerðu þér í
hugarlund nærveru fugla og búfén-
aðar og niðinn frá lækjum og sjó.
Að ógleymdum ilminum af gróand-
anum og snertingu vindsins. Já, það
er alltaf einhver rómantík í góðu
ævintýri og ævintýrið góða er rétt
handan við hornið. Hjólaðu um æv-
intýralendur Snæfellsness, í gegn-
um hraunbreiður og fuglafriðlönd.
Heimsæktu útgerðarþorpin á norð-
anverðu nesinu, Snæfellsnesþjóð-
garð, Lóndranga og Arnarstapa.
Láttu Jökulinn seiða þig. Sjáumst í
Grundarfirði.“ Frekari upplýsingar
um Jökulmíluna er að finna á jokul-
milan.is þá/ Ljósm. Örn Sigurðsson.Vinnuflokkur frá garðyrkjustjóra sem vinnur að umhverfisverkefnum.
Haldið áfram að gera
Akranes skjólbetra
Unnið að plöntun trjáa við norðurenda Þjóðbrautar.
Hjólað í Jökulmílu á Snæfellsnesi
Hjólað í gegnum Ólafsvík.
Falleg náttúra gleður augað í Jökulmílunni.
Öllu var skipt út á baðherbergjunum.
Ánægð með breytingarnar á Hótel Stykkishólmi
María Bryndís Ólafsdóttir hótelstjóri.
Herbergin eru bjartari og hlýlegri.