Skessuhorn - 05.06.2013, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2013
Ferðamálasamtök Vesturlands
stóðu fyrir Degi ferðaþjónust-
unnar á Vesturlandi í húsakynn-
um Háskólans á Bifröst sl. fimmtu-
dag. Fjöldi áhugaverðra viðburða
var á dagskrá, málþing um svokall-
aða mörkun eða „branding“ mark-
aðssetningu og örkynningar þar
sem kynntar voru nýjungar í ferða-
þjónustu á Vesturlandi. Þá voru
nokkrir ferðaþjónustuaðilar lands-
hlutans með kynningarborð fyr-
ir gesti þar sem þeim gafst kostur
á að kynna sér starfsemi viðkom-
andi aðila, skoða vörur þeirra og
fræðast um þjónustuframboð og í
sumum tilfellum smakka á veiting-
um. Um 100 manns lögðu leið sína
á Bifröst til að taka þátt í deginum
en um árvissan viðburð er að ræða
sem markar að mörgu leyti upphaf
ferðasumarsins í landshlutanum.
Ný stjórn FMV kjörin
Áður en málþing og örkynningar
hófust fór fram aðalfundur Ferða-
málasamtaka Vesturlands. Fundur-
inn var afar vel sóttur og mættu á
fimmtu tug fundarmanna, en aðild
að samtökunum eiga fyrirtæki, fé-
lög, sveitarfélög og sjálfstætt starf-
andi einstaklingar sem tengjast
að einhverju leyti ferðaþjónustu í
landshlutanum. Meðal þess sem
gerðist á fundinum var að ný stjórn
var kjörin og skipa hana þau Sig-
ríður Snorradóttir hjá Ferðaþjón-
ustunni Húsafelli, Jóhannes Arason
á Hótel Búðum, Björn Páll Fálki
Valsson á Þórisstöðum í Svínadal
og Pálmi Jóhannsson sem nýver-
ið hóf rekstur Dalakots í Búðar-
dal. Varamenn voru kjörnir Berg-
ur Þorgeirsson, Hilmar Æ. Ólafs-
son, Sonja Lind Eyglóardóttir Est-
rajher og Guðrún H. Andrésdóttir.
Auk þeirra er í stjórninni Arnheið-
ur Hjörleifsdóttir, fulltrúi Samtaka
sveitarfélaga á Vesturlandi. Þrír af
fráfarandi stjórnarmönnum buðu
sig fram til endurkjörs, þau Han-
sína B. Einarsdóttir, sem gegnt hef-
ur formennsku síðasta starfsár, Jó-
hanna Leópoldsdóttir og Guðlaug
Daðadóttir, en þær hlutu ekki kosn-
ingu. Töluverðrar óánægju gætti á
fundinum með hvað lítill tími gafst
til að ræða málefni FMV en þegar
kom að dagskrárliðnum önnur mál
var tími sem áætlaður var til að-
alfundarstarfa upp urinn þar sem
málþingið var að hefjast. Ekki gafst
því fundarmönnum kostur á að
ræða almenn málefni samtakanna á
aðalfundinum.
Vörumerki vísi í
einkenni
Á málþinginu voru flutt fimm er-
indi en yfirskrift þess var eins og
áður sagði mörkun eða „brand-
ing“ markaðssetning. Málþinginu
stjórnaði Regína Ásvaldsdóttir
bæjarstjóri á Akranesi. Fyrst til að
stíga á stokk var Dóra Magnúsdótt-
ir fyrrverandi markaðsstjóri Höf-
uðborgarstofu í Reykjavík. Í erindi
sínu fjallaði hún um reynslu Reyk-
víkinga af markaðssetningu höfuð-
borgarinnar sem áfangastaðar fyr-
ir erlenda ferðamenn undir vöru-
merkinu Reykjavik Pure Energy.
Við mótun vörumerkisins sagði
Dóra að horft hafi verið til þátta
sem væru einkennandi fyrir Reykja-
vík og hafa orðið áberandi í um-
ræðunni um borg og land á liðn-
um árum. Vörumerkið vísar því til
hreinnar orku, náttúru, menning-
ar, sköpunarkrafts, íslenska vatns-
ins og kraftmikillar afþreyingar.
Hnykkt hafi verið á þessum þátt-
um og fleirum sem tengjast vöru-
merkinu að sögn Dóru, í auglýs-
ingum, bæklingum og öðru kynn-
ingarefni frá Höfuðborgarstofu.
Hvatti Dóra sérstaklega til þess að
val á ljósmyndum í kynningarefni
væri vandað og að það taki mið af
einkennandi þáttum sérhvers svæð-
is eða starfsemi sem mörkuð sé.
Raunhæf markmið
mikilvæg
Næstur hélt erindi Þórir Erlings-
son, master í International Hospit-
ality and Tourism Management, og
bar það heitið „Hvernig þekkjumst
við á hinum villta markaði?“ Þar
fjallaði hann um reynslu Sunnlend-
inga af uppbyggingu vörumerkisins
víðkunna, Gullni hringurinn, sem
er heiti yfir dagsferðalag frá Reykja-
vík að Geysi, Gullfossi og Þingvöll-
um. Þórir taldi sennilegt að Gullni
hringurinn væri eitt sterkasta vöru-
merkið í ferðaþjónustu á Íslandi
fyrir utan landið sjálft. Vörumerk-
ið hefur verið byggt upp hægt og
bítandi frá árinu 1980 þegar upp-
bygging þjónustu á Hótel Geysi í
Haukadal hófst. Ástæður fyrir vel-
gengni þess væru nokkrar en mestu
hafi ráðið að sett hafi verið raunhæf
og ekki of stór markmið í fyrstu.
Skilaboð hans til Vestlendinga væri
því að spenna bogann ekki of hátt
í markmiðum og að áður en vöru-
merki sé markað þurfi að þekkja
við hvað eigi að „berjast,“ eins og
Þórir orðaði það. Sem dæmi nefndi
hann hvort að aðgengi væri nægj-
anlega gott að helstu náttúruperl-
um svæðis, að söluaðilar hafi eitt-
hvað til sölu sem allir vildu og að
tímalengd til áfangastaða væri rétt
miðlað í kynningarefni.
Höfða til
framtíðarvæntinga
Þriðja erindið flutti Brynjar Þór
Þorsteinsson markaðsstjóri Há-
skólans á Bifröst sem hann kallaði
„Hvað er mörkun?“ Í því greindi
Brynjar frá reynslu Háskólans á
Bifröst af kynningu á skólanum fyr-
ir verðandi nemendur og Bifrest-
inga. Brynjar sagði mikilvægt að
gera sér grein fyrir því hvað væri
vörumerki og hvað ekki, áður en
haldið er af stað í markaðssetningu.
Vörumerki væri allt í senn; merki,
slagorð, tákn, bæklingur, heimasíða
og sitthvað fleira. Það væri verð-
mætasta eign sérhvers fyrirtækis
eða stofnunar og því væri mikilvægt
að efla og styrkja vitund þess í huga
fólks með faglegum hætti enda er
það sífellt tengt við einhvers kon-
ar virði. Í mörkun Háskólans á Bif-
röst segir Brynjar að viðleitni skól-
ans hafi verið sú að skapa stemn-
ingu fyrir því að gott og eftirsókn-
arvert sé vera Bifrestingur, að á Bif-
röst sé að finna góðan skóla til að
stunda nám og þar sé staður þar
sem allir fá annað tækifæri. Höfð-
að er til framtíðarvæntinga í kynn-
ingarefni og eru möguleg störf sem
útskrifaðir Bifrestingar ættu að geta
unnið við dregin fram í kynningar-
efni skólans.
Nýir hringir í
burðarliðnum
Rósa Björk Halldórsdóttir fram-
kvæmdastjóri Markaðsstofu Vest-
urlands flutti næst erindi og nefnd-
ist það „Vörumerki og vörur á Vest-
urlandi.“ Þar fjallaði Rósa um vöru-
merkið Sögulandið Vesturland (e.
The Sagaland) sem Markaðsstofan
hefur markaðssett á liðnum miss-
erum. Til grundvallar vörumerk-
inu er ríkuleg sagnamenning Vest-
urlands sem sé eitt helsta einkenni
landshlutans. Þá kynnti Rósa til
leiks nýtt vörumerki sem er í und-
irbúningi sem nefnist Hringir (e.
Circles). Markmið þess er að kynna
til leiks fimm ólíkar hringleiðir um
Vesturland í anda Gullna hringsins
á Suðurlandi. Um sé að ræða skipu-
lagðar þemaleiðir um landshlutann
sem ferðaþjónustufyrirtæki hafa
farið um í fjölda ára en þurfa, að
mati Rósu, að vera dregnar í aukn-
um mæli fram í dagsljósið svo allir
gestir Vesturlands geti notið þeirra.
Leiðirnar eru Klassíski hringurinn
(e. Classical Circle), Dalahringur-
inn (e. Dalir Circle), Snæfellsnes-
hringurinn (e. Snæfellsnes Circle),
Fossahringurinn (e. Waterfall
Circle) og Söguhringurinn (e. Saga
Circle). Rósa bjóst við að hringirn-
ir færu í kynningu fljótlega.
Vaxtarsvið til
grundvallar
Að lokum kynnti Margrét Helga
Jóhannsdóttir verkefnisstjóri ferða-
þjónustu og skapandi greina hjá Ís-
landsstofu verkefnið Inspired by
Iceland sem sett var á laggirnar í
kjölfar gossins í Eyjafjallajökli 2010
og enn er unnið að. Að hennar mati
er um vel heppnað átak að ræða sem
er samstarfsverkefni hins opinbera
og einkageirans. Markmið þess hafi
einfaldlega verið að auka eftirspurn
eftir öllu því sem íslenskt er, glæða
vetrarferðamennsku og styrkja
ímynd Íslands út á við í kjölfar eld-
gossins og bankahrunsins haust-
ið 2008. Við mörkun á vörumerk-
inu hafi verið litið til þess hver væru
helstu vaxtarsvið landsins en þau
séu matvæli, ferðaþjónusta, sjálfbær
orkunýting, tækni og hugverk, list-
ir og skapandi greinar ásamt heilsu
og vellíðan. Hvert vaxtarsvið hafi
svo sitt tímabil yfir ferðamanna-
tímann og séu t.d. Hönnunar-mars,
Reykjavik Food and Fun og Iceland
Airwaves dæmi um slík tímabil. Því
sé þýðingarmikið að þekkja styrk-
leika og sóknarsvið áður en ráðist
er í kynningarherferðir á borð við
Inspired by Iceland. hlh
Dagur ferðaþjónustunnar á Vesturlandi
Ný stjórn FMV, f.v. Sigríður Snorradóttir, Pálmi Jóhannsson, Björn P. Fálki Valsson, Jóhannes Arason og Arnheiður Hjörleifs-
dóttir, en hún er fulltrúi SSV í stjórninni.
Snorri Jóhannesson frá Augastöðum, Hrefna Sigmarsdóttir frá Ferðaþjónustunni
Húsafelli og Ásbjörn Björgvinsson formaður Ferðamálasamtaka Íslands ræða
málin á aðalfundi FMV.
Hansína B. Einarsdóttir fráfarandi formaður FMV í ræðustól. Helgi Guðmundsson
fundarstjóri situr.
Dóra Magnúsdóttir.
Þórir Erlingsson.
Brynjar Þór Þorsteinsson.
Rósa Björk Halldórsdóttir.
Margrét Helga Jóhannsdóttir.