Skessuhorn


Skessuhorn - 05.06.2013, Qupperneq 25

Skessuhorn - 05.06.2013, Qupperneq 25
25MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2013 Það verður líf og fjör hjá stórum hluta ferðaþjónustubænda um allt land á opnu húsi sunnudaginn 9. júní næstkomandi kl. 13:00-17:00. Þann dag gefst almenn- ingi tækifæri á að kynna sér starfsem- ina á ferðaþjónustu- bæjum, fá nýja bækl- inginn „Upp í sveit“ og njóta veitinga og afþreyingar í boði bænda. Í tilefni útgáfu bæklingsins „Upp í sveit“ ætla fjöl- margir bæir inn- an Ferðaþjónustu bænda að hafa opið hús þann 9. júní kl. 13.00-17.00. Gest- ir munu geta skoðað aðstöðuna á bæjun- um, sótt nýja bækl- inginn, fengið kaffi- sopa, spjallað við bændur og upplifað einstaka sveita- stemningu. Það verður glatt á hjalla og margt í boði fyrir alla aldurshópa í öll- um landshlutum. Til dæmis verð- ur hægt að gæða sér á ljúffengum heimabakstri og öðrum forvitnileg- um afurðum úr sveitinni, heilsa upp á dýrin á bænum, skoða fjós, taka þátt í leikjum eins og skeifukasts- keppni og trölla parís, njóta lif- andi tónlistar, kynna sér tóvinnu og fræðast um ylrækt, svo eitthvað sé nefnt. Bæir sem bjóða heim verða merktir með grænum og hvítum blöðrum við veginn. Nánari upplýsingar og lista yfir þá bæi sem bjóða heim þann 9. júní í hverjum landshluta má finna á vefsíðu Ferðaþjónustu bænda www. sveit.is. -fréttatilkynning Stykkishólmskirkja, sem arkitektinn Jón Haraldsson teiknaði, var vígð árið 1990 og þótti mikið mannvirki í bæjarfélagi með innan við 1500 íbúa. Í Stykkishólmi hefur verið öfl- ugt menningar- og tónlistarlíf í ára- tugi. Þegar Stykkishólmskirkja var vígð flutti forláta Steinway flygill sem Jónas Ingimundarson valdi en bæjarbúar söfnuðu fyrir, úr félags- heimilinu í kirkjuna til frambúð- ar. Orgel kom í kirkjuna úr gömlu kirkjunni í Stykkishólmi sem sér- smíðað hafði verið fyrir hana á sín- um tíma. Í janúar kom svo 22 radda glæsilegt Klais orgel í Stykkis- hólmskirkju annað tveggja orgela af þeirri tegund hér á landi, hitt er í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Enn og aftur söfnuðu bæjarbúar fé til orgelkaupanna. Við vígslu orgelsins árið 2012 var stofnað Listvinafélag Stykkishólmskirkju sem tók við umsjón tónleikahalds í kirkjunni og hefur það á stefnuskránni að auka menningarlíf í kirkjunni. Síðustu tvo áratugi hafa verið haldnir sum- artónleikar í Stykkishólmskirkju enda hljómfögur kirkja með fyrsta flokks hljóðfærum til tónlistarflutn- ings. Margir ungir og upprennandi íslenskir og erlendir tónlistarmenn hafa komið fram í Stykkishólms- kirkju og margir oftar en einu sinni. Árið 2012 var hleypt af stokkunum sérstökum tónleikum innan sumar- tónleikaraðarinnar Orgelstykki og voru á tveimur vikum haldnir sex tónleikar undir merkjum Orgel- stykkjanna. Þar komu fram íslenskir organistar einir eða með fleiri tón- listarmenn með í för með efnisskrá að eigin vali. Úr varð vel heppnuð blanda og fjölbreyttir tónleikar. Í ár verður haldið áfram með enn fleiri orgelstykki með tónlist- armönnum sem eru að reyna Klais- orgelið í fyrsta sinn. Aðrir tónleikar verða samhliða orgelstykkjunum og verður fjölbreytt tónlist í boði, sem endranær. Björn Thoroddsen, Sunna Gunnlaugs, Lars Janson og Sigurður Flosason eru stór nöfn í alþjóðlegu samhengi djassheima og þau munu öll leika á tónleikum í Stykkishólmskirkju í sumar. Bára Grímsdóttir og Chris Foster verða á þjóðlegum nótum með gömlu ís- lensku hljóðfærin í bland við nýrri og koma fram í gömlu friðuðu kirkj- unni í Stykkishólmi í tengslum við árlegan Þjóðbúningadag sem hald- inn er í Norska húsinu – byggða- safni Snæfellinga og Hnappdæla. Næstu tónleikar í Stykkishólms- kirkju: 24. júní kl. 20 – Orgelstykki: Friðrik Vignir Stefánsson 27. júní kl. 20 – Orgelstykki: Sveinn Arnar Sæmundsson 29.júní kl. 16 – Orgelstykki: Örn Magnússon & Marta Guðrún Hall- dórsdóttir 2. júlí kl. 20 – Orgelstykki: Douglas Brotchie 6. júlí kl. 16 – Orgelstykki: Lára Bryndís Eggertsdóttir. -fréttatilkynning Opið hús hjá ferðaþjónustu- bændum sunnudaginn 9. júní Sumartónleikar og orgelstykki í Stykkishólmskirkju í sumar tínslan stóð sem hæst báru kýrnar einnig kálfunum sínum. Sumt var unnið á öðrum tímum sólarhrings- ins en við héldum alltaf mjöltun- um á réttum tíma. Margt annað fékk að sitja á hakanum.“ Bjarni segir hluti sem þau ætluðu að gera á þessum tíma einnig hafa dregist fram á vorið. „Við vorum til dæm- is búin að undirbúa breytingar á fjárhúsunum hjá okkur þegar þetta gerðist og það fór allt á bið. Maður er bara svo heppinn að vera þokka- lega hraustur og hefur aldrei leiðst að vinna þannig þetta var bara eins og að vera á vertíð. Við erum ver- tíðarfólk,“ segir Bjarni. Guðrún viðurkennir að þetta hafi vissulega tekið á, ekki bara líkamlega held- ur einnig andlega. „Það er erfitt að lýsa því en þetta var auðvitað gíf- urlega mikið áreiti. Rólegheitin í sveitinni fengu að víkja fyrir stans- lausum símtölum og gestagangi.“ Straumurinn breyst með tilkomu brúarinnar En hvað halda Bjarni og Guðrún að hafi ollið síldardauðanum í Kolg- rafafirði? „Ég held að skýringarn- ar séu nokkrar samverkandi,“ seg- ir Guðrún og Bjarni tekur undir. „Sjálfur hef ég ekki búið hérna lengi en ég er mikið náttúrubarn og allt- af haft gaman að veiðum. Sem veiði- maður er maður oft að spá í hlutum eins og straumum. Þegar ég kom hingað sem ungur maður að veiða áður en brúin kom þá var hring- straumur í firðinum. Straumurinn kom inn Kolgrafamegin í firðinum og fór út hérna hinum megin. Ég sá þetta á því ég lagði stundum net og fiskurinn kom alltaf í öðrum megin í firðinum. Enginn hringstraumur er í firðinum lengur, alveg sama hvað hver segir. Fyrir það fyrsta veiðist enginn lax hérna lengur. Þegar brúin var gerð vildum við hækka í firðin- um um einn metra vegna flóðahættu fyrir sauðféð. Það mátti hins vegar alls ekki því það yrðu að vera jafn mikil vatnsskipti og voru. Við sjáum það núna að það er jafn mikil fjara og áður var, en það munar klukku- tíma á fjöru í Kolgrafafirði og fjöru í Grundarfirði. Það er vegna þess að brúin þrengir svo bilið að sjórinn er mikið lengur að fara í gegn. Þar af leiðandi fellur hann á móti straumn- um, út og inn eftir miðjunni aldrei hringinn. Dýpsti állinn var hinum megin í firðinum og þar hefðu þeir átt að byggja brúna. Þeir gerðu það hins vegar hérna megin því það var sennilega ódýrara. Þetta er hluti af skýringunni,“ segir Bjarni. Þá segir hann hvalinn ekkert hafa farið inn fyrir brúna í vetur líkt og hann hef- ur gert undanfarin ár, sem sé sterk vísbending um ólífvænlegt ástandið í firðinum. Komi þetta fyrir aftur sér hann fyrir sér að hægt verði að bjarga verðmætunum með því moka síld- inni í kör, dæla sjó í körin og fleyta síldinni þannig yfir og hreinsa úr henni sandinn og drulluna. Þau segjast bæði óttast endurtekinn síldardauða næsta vetur. „Ekkert hefur verið gert til þess að koma í veg fyrir að þetta komi fyrir aft- ur. Síldin hefur komið hingað inn ár eftir ár í sífellt meira mæli. Ég sé fyrir mér að það væri til dæmis hægt að gera tilraunir með að setja ljós í brúna, sem er ódýr lausn ef hún virkar. Síldin er ljósfælin þannig þetta er eitthvað sem mætti prófa,“ segir Bjarni. Sjá eftir verðmætunum Enn mátti finna lyktina af rotnandi síld sem nú er falin undir jarðvegin- um í fjörunni við Eiði þegar blaða- maður keyrði yfir Kolgrafafjarðar- brúna í síðustu viku. Lyktin venst ekki, segja bændurnir að Eiði. Þá eru þau löngu orðin þreytt á því að þurfa að þrífa hreistur af hús- inu en suma daga sjáist varla út um gluggana. Þegar litið var til norð- urs af brúnni gaf að líta hundruð fugla sem kepptust um ætið og bar hafsúlan þar af þegar hún kastaði sér í sjóinn með miklu sjónarspili. Hreinsunarstarfið gekk hins veg- ar vel í vetur og þegar gengið er um fjöruna eru einu ummerkin um þetta mikla umhverfisslys beina- garðar og dauð skel. Það dó nefni- lega margt annað en síld í Kolg- rafafirði í vetur. Grasið við bakk- ana er orðið iðjagrænt enda grút- urinn reynst fínasti áburður á tún- in þó lyktin sé ekki eftirsóknar- verð. „Enn þann dag í dag finnst okk- ur þetta óraunverulegt. Mað- ur hafði ekki trúað að þetta gæti gerst. Núna verður manni svolít- ið hugsað til allra þessara verð- mæti sem fóru þarna til spillis, þau hlaupa á einhverjum milljörðum. Þetta var nánast jafn mikið og allur kvóti íslenska flotans,“ segja Bjarni og Guðrún bændur að Eiði í Kolg- rafafirði að lokum. ákj Hér sést hversu þykkt lag af grúti var í fjörunni í Kolgrafafirði. Guðrún og Bjarni eru afar ánægð með hvernig hreinsunarstarfið tiltókst. Heimamenn voru fengnir í verkið og voru um tuttugu þúsund tonn grafin fyrstu vikuna. Ljósm. Bjarni Sigurbjörnsson.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.