Skessuhorn - 12.06.2013, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 24. tbl. 16. árg. 12. júní 2013 - kr. 600 í lausasölu
Bláa kortið
borgar sig
Með Bláa kortinu færð þú afslátt hjá fjölda
fyrirtækja um allt land. Kortið færir þér
aðgang að Hringtorgi, öflugri upplýsingaveitu
sem heldur utan um öll fríðindi Bláa kortsins.
Korthöfum bjóðast betri kjör m.a. í bíó,
á veitingastöðum, af flugferðum, heilsurækt,
bensíni og ýmsum viðburðum.
Sæktu um Bláa kortið á hringtorg.is.
Vallholti 5 • 300 Akranesi
434 1413
Opið: Virka daga kl. 12.00 – 18.00
Bara
kökur
Bara
ódýrt
Bakaríið Brauðval
LORATADIN LYFIS
CETIRIZIN-RATIOPHARM
Grunnskólar landsins luku flestir starfi sínu sl. miðvikudag og héldu nemendur þá í frí. Í tilefni skólaslita Brekkubæjarskóla
á Akranesi fóru nemendur, foreldrar og forráðamenn, ásamt starfsfólki skólans, í skrúðgöngu um Akranes undir taktföstum
trommuslætti á ellefta tímanum um morguninn. Ljósm. hlh
Það voru gleðileg tíðindi sem Jó-
hann Sigurjónsson forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar Íslands færði
þegar kynnt var skýrsla um ástand
nytjastofna og aflahorfur á næsta
fiskveiðiári. Hafró kynnti ráðgjöf
sína um úthlutun veiðiheimilda
fyrir næsta fiskveiðiár á fundi með
fréttamönnum og forystu sjávarút-
vegsmála í landinu sl. fimmtudag.
Í ráðgjöf Hafró fyrir næsta kvótaár
er gert ráð fyrir auknum fiskveiði-
heimildum í flestum mikilvægustu
botnfiskstegundunum og einnig í
stofni íslensku sumargotssíldarinn-
ar þrátt fyrir sýkingu í stofninum
og síldardauða í Kolgrafafirði síð-
asta vetur.
Tillögur Hafró eru um 20 þús-
und tonna aukningu í þorskveið-
um, hann fari úr 195.400 tonnum
í 215.000 tonn. Ýsukvótinn auk-
ist í um 2000 tonn frá aflamarki og
reyndar um 4000 tonn frá tillögu
Hafró á sama tíma í fyrra. Aflamark
í ufsa vaxi um 7000 tonn frá síð-
asta fiskveiðiár og í löngu um 2000
tonn. Aflamark í íslensku sumar-
gotssíldinni verði samkvæmt til-
lögu Hafró aukið úr 64.000 tonnum
frá þessu fiskveiðiári í 87.000 á því
næsta. Hins vegar segja sérfræðing-
ar Hafró mikla óvissu með loðnu-
veiðar á næstu vertíð, þar sem lít-
ið hafi fundist af ungloðnu sem eigi
að bera stofninn uppi. Upplýsing-
ar um aðrar uppsjávartegundir, svo
sem makrílinn, norsk-íslensku síld-
ina og kolmunna bíði rannsókna
og tillagna á vettvangi Alþjóða haf-
rannsóknarráðsins í haust.
Mjög jákvæður tónn var í máli
Jóhanns Sigurjónssonar forstjóra
Hafró á fundinum sl. fimmtudag.
Sagði hann stofnstærðir í öflug-
ustu nytjastofnunum mjakast upp á
við og ágætis horfur væri á því að
aflamarkið í þorskinum yrði komið
upp í 250 þúsund tonn eftir fjögur
ár. Jóhann sagði vöxt þorskstofns-
ins nánast skólabókardæmi um
þann árangur sem hægt væri að ná
með markvissum fiskveiðistjórnun-
araðgerðum. Einnig væru skilyrði í
sjónum hagstæð og til dæmis engin
merki um að hlýsjávarástand á mið-
um við landið væri á undanhaldi,
en það hafa meðal annars haft áhrif
á auknar makrílgöngur við landið
síðustu árin.
þá
Á fundi á vegum Markaðsstofu
Vesturlands sem nýverið var hald-
inn var fjallað um skipulag ferða-
mannastaða. Þar stóðu nokkrir full-
trúar af Snæfellsnesi fyrir ályktun
um áherslur í samgöngumálum til
að ýta við stjórnmálamönnum þeg-
ar kemur að fjárlagagerð og vega-
áætlun. Þetta voru þau Skúli Alex-
andersson, Gísli Ólafsson, Margrét
Björk Björnsdóttir og Svanborg
Siggeirsdóttir. Í ályktunni segir
m.a. að skipulag og styrking ferða-
mannastaða á Snæfellsnesi tengist
uppbyggingu ákveðinna mikilvægra
áfanga í vegakerfinu. Þeir áfang-
ar verði að njóta forgangs þegar
kemur að ákvörðun framkvæmda í
landshlutanum.
„Um er að ræða eftirtalin verk-
efni: Í fyrsta lagi vegi innan héraðs;
endurbygging brúa og vegar með
bundnu slitlagi um Skógarströnd,
ljúka við endurbyggingu vegar með
bundnu slitlagi um Fróðárheiði,
ákveðið verði að leggja svokallað-
an ferðamannaveg frá Öndverðar-
nesi að Arnarstapa. Sem fyrst verði
vegurinn úr Skarðsvík að Öndverð-
arnesi og Skálasnaga gerður öku-
fær hópferðabílum. Þá verði gerð-
ir nokkrir rúmgóðir, vel búnir og
vel staðsettir áningarstaðir. Í öðru
lagi tengivegir við önnur land-
svæði. Þar ber hæst að gera góð-
an veg með bundnu slitlagi um Ux-
ahryggi og Lundarreykjadal, byggja
brú á Norðlingafjót ofan Helluvaðs
á Arnarvatnsheiði og leggja bundið
slitlag á veginn um Laxárdalsheiði
og ljúka við endurbyggingu vegar
um Laxárdal í Dölum.“
mm
Hafró leggur til aukningu
veiða helstu nytjastofna
Smábátasjómenn á Arnarstapa. Ljósm. Friðþjófur Helgason.
Lagt er til að brú verði byggð við
Helluvað á Arnarvatnsheiði.
Leggja til
áherslur í
vegabótum
FIMMTUDAG 13. JÚNÍ
FÖSTUDAG 14. JÚNÍ
LAUGARDAG 15. JÚNÍ
15% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
DÖMU- OG HERRA ILMUM
SUMARILMIRNIR KOMNIR
ILMDAGAR