Skessuhorn - 12.06.2013, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.277 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar
greiða kr. 1.980. Verð í lausasölu er 600 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is
Heiðar Lind Hansson, blaðamaður hlh@skessuhorn.is
Áslaug Karen Jóhannsdóttir, blaðamaður aslaug@skessuhorn.is
Samúel Karl Ólason, blaðamaður sko@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Umbrot:
Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Umboðsmaður
örverpa
Fyrir örverpi þessa lands birtust vægast sagt dapurlegar fréttir um helgina
í bleiku pressunni. Til nánari útskýringa þá er bleika pressan svona teg-
und af fjölmiðlum þar sem blaðamenn leyfa sér að fara frjálslega með stað-
reyndir en gengur og gerist og þar sem rými reynist takmarkað fyrir all-
an þann sannleika sem í boði er. Í þessari frétt sem ég vísa til var sagt frá
því að rannsakað hafi verið að elstu systkini fái að jafnaði hærri einkunnir í
greindarvísitöluprófum en þau yngri. Leiddar eru að því líkur að sennilega
séu foreldrar duglegri við uppeldið meðan þeir hafi einungis eitt ungviði til
að bjástra við en þegar börnin verða fleiri og tími fyrir hvert og eitt verður
takmarkaðri. Frumburðirnir eru semsé örvaðir meira til dáða og því verð-
ur heilastarfsemi fyrsta barns að jafnaði skarpari en þeirra sem á eftir koma.
Þetta leiði svo í framhaldinu til þess að hvert aukastig á greindarvísitölu-
prófi gefi að meðaltali um 3,5 milljónir meira í viðbótartekjur á lífsleiðinni.
Ef barnahópurinn er stór er því á að giska húsverð sem örverpið ber minna
úr býtum á lífsleiðinni miðað við frumburðinn.
Sagt er frá því að skoskir vísindamenn hafi rannsakað meira en ellefu
þúsund börn og komist að þeirri niðurstöðu að elsta systkinið sé að meðal-
tali með einu greindarvísitölustigi meira en næsta systkinið í röðinni. Þriðja
systkinið er síðan með 2,3 stigum lægri meðaltals greindarvísitölu en annað
systkinið og svo koll af kolli. Eftir einum sérfræðingnum sem að rannsókn
þessari stóð er haft að það sé mikilvægt að örva börn með því að tala við þau
og foreldrar noti mikinn tíma til að tala við frumburðinn og örva barnið
með því, en síðan dali áhuginn og kannski tíminn til svona dekurverkefna.
Reyndar er það tekið fram að erfðir ráði einhverju um greindarvísitölu og
áhrif umhverfisins eru einnig sögð mikil fyrstu æviár barnsins.
Til að öllu sé til haga haldið verð ég að taka það fram að ég er langyngst-
ur í fimm systkina hópi og raunar sjötti í röðinni þar sem systursonur minn
þremur árum eldri ólst upp með mér. Raunar er ég svo mikið yngri en
systkini mín að ég kýs, með tilliti til fyrrgreindra rannsókna, að túlka að-
stæður mínar þannig að ég sé elstur í holli tvö. Tel þetta raunhæft þar sem
fjögur eldri systkini mín voru flutt að heiman þegar ég loksins kom í heim-
inn. Að vísu urðu börn foreldra minna ekki fleiri, hafa þau vafalaust talið
að nóg væri komið eftir að ég braust í heiminn þarna fyrir hartnær hálfri
öld. Fæðingin var enda ekki þrautalaus (fremur en sennilega allar fæðingar
eru fyrir mæður), en í mínu tilfelli þurfti framúrskarandi lækni til að koma
mér til lífs, Pál Gíslason skátahöfðingja og síðar forseta borgarstjórnar. Það
hins vegar tókst enda var Páll sæmdur ýmsum heiðursmerkjum blessaður
karlinn.
Í ljósi aðstæðna minna sem örverpis í mínum systkinahópi varð ég afar
hugsi yfir þessum rannsóknum útlendu vísindamannanna sem einhver
frumburðurinn sem starfar á bleiku pressunni hefur kosið að færa í let-
ur. Þetta eru náttúrlega dapurleg tíðindi fyrir yngri börn í fjölmennum
systkinahópum. Samkvæmt niðurstöðu fræðimannanna erum við örverp-
in í besta falli skítblankir skussar, fótumtroðnir af okkur eldri systkinum
sem fá alla athygli foreldranna. Í ljósi þessa tel ég ríka ástæða til að stofn-
að verði embætti Umboðsmanns örverpa eigi síðar en nú á sumarþingi Ís-
lendinga. Helsta baráttumál okkar verður að færa það í lög að yngri systk-
ini fái nú þegar meiri athygli en þau fá í dag. Til þrautavara verði komið
á fót stofnunum sem hýsa eldri systkini tímabundið til að foreldrum gefist
ráðrúm til að sinna örverpunum sínum betur en þeir geta við núverandi að-
stæður. Markmið Umboðsmanns örverpa verður að draga úr frekju frum-
burða og bæta verðskuldað aðstæður örverpa sem að upplagi eru nákvæm-
lega jafn vel gefin (ef ekki betur) og börnin sem á undan komu. Læt ég að
lokum fylgja vísu sem ort var um Skagfirðing einn, mætan mann, sem var
framarlega í systkinaröðinni:
Allvel Drottinn í þig bar
aðrir minna fengu.
En allar góðu gáfurnar
gerðir þú að engu.
Magnús Magnússon.
Leiðari
Við höfum í síðustu blöðum sagt frá
uppvexti unga Álverskrummanna
sem bjuggu sér laup í mannvirkjum
Norðuráls á Grundartanga. Nú eru
ungarnir þriggja og hálfs vikna gamlir
og farnir að garga og verða sífellt
kröfuharðari í garð foreldra sinna.
Talið er að nú styttist í brottför þeirra
úr laupnum góða.
Ljósm. Elmar Snorrason.
Vilhjálmur Birgisson formað-
ur Verkalýðsfélags Akraness fékk
fyrir nokkrum dögum boð um að
funda með Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni forsætisráðherra í Stjórn-
arráðinu næstkomandi miðviku-
dag 12. júní, það er í dag. Þekkt-
ist Vilhjálmur boðið en flestir geta
sér væntanlega til um hvert fund-
arefnið verður. Eitt helsta baráttu-
mál Verkalýðsfélags Akraness allt
frá árinu 2008 hefur verið baráttan
fyrir afnámi verðtryggingar á neyt-
endalánum og forsendubresturinn
sem heimilin þurftu að þola í kjöl-
far efnahagshrunsins verði leiðrétt-
ur. VLFA stendur einmitt um þess-
ar mundir fyrir málsókn út af þessu,
en félagið hefur einnig lagt fram
tillögur og ályktanir á vettvangi
verkalýðshreyfingarinnar á undan-
förnum árum hvað þessi mál varðar
en án mikils hljómgrunns.
þá
Borgarbyggð hyggst standa fyr-
ir snyrtingu á innkomunni í Borg-
arnes í sumar, við hringveginn að
sunnan- og norðanverðu í bæinn. Í
fyrsta lagi verður snyrt tæplega 400
metra svæði fyrir framan Geira-
bakarí við Digranesgötu. Þar verð-
ur lagður göngustígur meðfram
kantsteini og mun stígurinn tengj-
ast göngustíg sem er í byggingu
á þverun Borgarfjarðar. Gróður-
sett verður lágt limgerði meðfram
svæðinu til að skýla rósaplöntum
sem þar verða settar í beð en að
auki verður birkitré sett í jörðu á
því miðju. Í innkomunni að norð-
anverðu stendur til að gróðursetja
35 aspir við hlið gangstígarins hjá
hringtorginu á gatnamótum hring-
vegarins og Snæfellsnessvegar og
í næstu röð fjær honum 33 reyni-
tré eða birki. Einnig verða lágvaxn-
ir blómstrandi runnar settir nið-
ur eftir miðju svæðisins. Þá stendur
til að setja ylli á milli aspanna með-
fram iðnaðarhverfinu á Sólbakka að
norðanverðu til að skerma betur af
hverfið frá hringveginum. hlh
Ekkert hefur gerst á athafna-
svæði IV, Iceland Ventures,
eftir að lokið var frágangi og
smíði verksmiðjuhúss félags-
ins fyrir væntanlega vatns-
pökkun síðasta haust. Sveit-
arstjórn Snæfellsbæjar gaf
út starfsleyfi fyrir félagið
og vatnspökkunina á sínum
tíma, en ákvæði eru í starfs-
leyfinu sem kveða á um að
hefjist starfsemi ekki inn-
an ákveðins tíma renni það
út. Kristinn Jónasson bæj-
arstjóri kvaðst ekki geta gefið upp
hvenær þessi tímamörk væru en þau
séu ekki langt undan. „Við erum að
fara að hitta þá og kanna hvernig
þeir áætla framhaldið,“ sagði Krist-
inn bæjarstjóri en vonir hafa staðið
til að vatnspökkun muni skapa tugi
starfa í sveitarfélaginu.
Breskur fjárfestingarsjóður er að-
aleigandi í IV og Snæfellsbær á lít-
inn hlut í félaginu. Skessuhorn náði
tali af Rúnari Má Jóhannssyni í
Snæfellsbæ, en Rúnar er tengilið-
ur IV hér á landi ásamt Guðmundir
I Sigurðssyni lögfræðingi í Reykja-
vík. Aðspurður sagði Rúnar að ekki
væri búið að staðfesta pöntun á vél-
um í verksmiðjuhúsið, en niður-
setning véla er næsta mál á dagskrá.
Að öðru leyti sagði Rúnar lítið að
frétta af málinu.
Enn rennur því vatnið í sjó fram
við Rif úr tveimur sverum lögn-
um sem lagðar voru langt
ofan úr hlíðum fyrir ofan Rif
og Hellissand fyrir nokkrum
árum. Verksmiðjuhúsið sem
IV byggði er 1100 fermetr-
ar að stærð. Það er kríli mið-
ið við annað hús sem stendur
á bakkanum í Rifi þar skammt
frá. Það er rúmlega átta þús-
und fermetra límtréshús sem
félagið Iceland Glacier Pro-
ducts byggði en varð síðan
gjaldþrota og missti vatns-
réttindin. Þrotabúið er nú að
auglýsa þetta hús í þriðja skiptið
til sölu en eigendur IV eru meðal
þeirra sem hafa sýnt húsinu áhuga,
en samningar ekki tekist. Sigurður
I Halldórsson skiptastjóri í þrota-
búinu segir að nú liggi fyrir samn-
ingar við Snæfellsbæ um heimild til
niðurrifs á húsinu ef áhugi kaup-
enda sé fyrir hendi. Það kunni að
liðka fyrir um sölu á húsinu.
þá
Álverskrummarnir stækka hratt
Vilhjálmur Birgisson.
Forsætisráðherra boðar
formann VLFA til fundar
Þetta svæði við Digranesgötu verður gert grænt í sumar.
Innkoma í Borgarnes
verður snyrt í sumar
Stóra verksmiðjuhúsið í Rifi sem ef til vill verður rifið og
flutt. Ljósm. Ari B Ómarsson.
Lítið að gerast varðandi
vatnspökkun í Rifi