Skessuhorn - 12.06.2013, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013
Í byrjun maí kynnti verkefnisstjórn
samráðsvettvangs um aukna hag-
sæld á Íslandi tillögur sínar um
hvernig auka mætti langtímahag-
vöxt á Íslandi. Meðal þess sem kom
fram í tillögunum er að róttækra
breytinga væri þörf á sveitarstjórn-
arstiginu á Íslandi, bæði til að efla
það og hagræða. Hvetur verkefn-
isstjórnin m.a. til þess að sveitarfé-
lögum verði fækkað stórlega, fari úr
74 í dag niður í 12 og að lágmarks-
íbúafjöldi í sveitarfélagi verði 8.000
íbúar. Með þessu telur verkefnis-
stjórnin að hægt væri að ná fram
7% framleiðniaukningu í rekstri
stjórnsýsluhluta sveitarfélaga auk
þess sem þau verði burðugri til
að sinna fleiri verkefnum og bæta
þjónustu sína við íbúa. Tillögurnar
hafa vakið nokkur viðbrögð með-
al sveitarstjórnarfólks og almenn-
ings og þykir sumum þær vera full
róttækar. Til að glöggva sig betur
á þeim áskorunum sem blasa við
á sveitarstjórnarstiginu, sem sam-
ráðsvettvangurinn hefur fjallað um
í sinni vinnu, ræddi Skessuhorn við
Jóhannes Finn Halldórsson, sér-
fræðing á sviði sveitarstjórnarmála í
innanríkisráðuneytinu en hann hef-
ur að baki áralanga reynslu af þeim
vettvangi.
Róttækar hugmyndir til
að skapa umræðu
Jóhannes hefur unnið að sveitar-
stjórnarmálum samanlagt í 15 ár,
m.a. sem bæjarritari í Stykkishólmi
og á Akranesi, en frá árinu 2007
hefur hann sinnt núverandi starfi í
stjórnarráðinu. Á milli þeirra starfa
vann Jóhannes í níu ár sem skrif-
stofustjóri í stjórnsýslu Háskóla Ís-
lands. Hann er fæddur og uppalinn í
Grundarfirði en hefur búið á Akra-
nesi ásamt fjölskyldu sinni í hartnær
þrjátíu ár. Hagfræðingur er hann að
mennt og fyrir fáeinum árum lauk
hann námi í opinberri stjórnsýslu
og stjórnun auk þess sem hann lauk
námi við diplómataskóla utanríkis-
ráðuneytisins árið 2011. Jóhannes
segir að vissulega megi hagræða á
mörgum sviðum í skipulagi sveitar-
stjórnarstigsins á Íslandi og að allt-
af sé hægt að ná betri árangri með
því að hugsa hlutina upp á nýtt.
Hann telur mikilvægt að þegar rætt
sé um breytingar þurfi nálgunin á
viðfangsefninu að vera rétt. ,,Mér
sýnist að sumir þeirra sem telja sig
gæta hagsmuna íbúanna séu svolít-
ið að misskilja tillögur verkefnis-
stjórnar samráðsvettvangsins. Þetta
eru tillögur sem settar eru fram til
umræðu og að mínu mati getur
verið gagnlegt að setja svona hug-
myndir fram í svolitlum öfgum –
þær eru sannarlega róttækar. Um-
ræðan í framhaldinu getur leitt til
góðs, það er að segja ef aðilar koma
að málum með opnum huga,” seg-
ir Jóhannes um tillögurnar en hann
vill að öðru leyti taka fram að allt
það sem í viðtalinu kemur fram eru
hans skoðanir en ekki ráðuneytisins
eða ráðherra.
Efling
sveitarstjórnarstigsins
kallar á sameiningar
Jóhannes segir kröfuna um sam-
einingu sveitarfélaga meðal annars
sprottna af áherslum stjórnmála-
flokkanna að efla eigi sveitarstjórn-
arstigið. „Það hefur verið pólitísk
stefna hjá öllum stjórnmálaöflum
að efla sveitarstjórnarstigið með
því að færa verkefni til þeirra. Síð-
ast voru málefni fatlaðs fólks flutt
til sveitarfélaganna frá ríkinu og nú
er rætt um að flytja málefni aldr-
aðra einnig til þeirra. Skipulag og
stjórnun þjónustunnar verður þar
með meira í nærsamfélaginu. Sveit-
arfélögin styrkjast með aukinni sér-
fræðikunnáttu og fólk þarf síður að
flytja burtu. Þetta krefst þess að þeir
sem skipa sveitarstjórnir og stjórnir
stofnana vinni faglega á öllum svið-
um og ætti það að vera kappsmál
hverrar sveitarstjórnar,“ segir hann.
Af þessum hvötum hafa samein-
ingaáform komist á dagskrá. Mik-
ilvægt sé hins vegar að svara spurn-
ingunni hvað sveitarfélag er áður en
umræðan um skipulag þess er tekin
að mati Jóhannesar. ,,Í rauninni er
ekki sagt í lögunum hvað sveitarfé-
lag er. Það væri mjög áhugavert að
gera rannsókn á hvaða svar íbúar
myndu veita við þeirri spurningu. Í
fyrstu grein sveitarstjórnarlaganna
segir þó að landið skiptist í sveitar-
félög sem sjálf ráða málefnum sín-
um á eigin ábyrgð, og að hver mað-
ur telst íbúi sveitarfélags þar sem
hann á lögheimili. Þá segir í þriðju
grein sveitarstjórnarlaganna að
skipulag og starfsaðstæður sveitar-
félaga séu þannig að þau geti sjálf
borið ábyrgð á framkvæmd verk-
efna sem þeim eru falin. Í mínum
huga þarf sveitarfélag að vera nægj-
anlega öflugt, faglega sem fjárhags-
lega, og að það hafi á að skipa hæfu
starfsfólki. Þetta er grundvöllur-
inn,“ bætir hann við. Þá hafa land-
fræðileg mörk áhrif og einnig sam-
göngur sem og mögulegur íbúa-
fjöldi. „Ég held að of mikið sé þó
gert úr landafræðinni. Á Grænlandi
eru aðeins fjögur sveitarfélög sem
dæmi. Þá megum við ekki gleyma
því að tæknin gerir okkur þetta
mun auðveldara nú á dögum en
áður. Allt hvetur þetta til hagræð-
ingar og einföldunar. Hrepparíg-
urinn er þó undirliggjandi tálmi á
sumum stöðum þegar sameiningar
eru ræddar. Hann getur vitaskuld
verið skemmtilegur, en hann má
ekki verða til þess að þjónusta við
íbúana verði lakari. Við verðum að
geta horft yfir sviðið.“
Góð reynsla í
Danmörku
Verkefnisstjórn samráðsvettvangs-
ins horfir til reynslu Norðurlanda-
búa í rekstri sveitarstjórnarstigsins í
tillögum sínum, en þar hefur verið
gerð gangskör í sameiningu sveitar-
félaga á liðnum árum. Í öllum tilvik-
um hafa þjóðþing landanna sett lög
sem myndað hafa hvata fyrir sam-
einingu, en breytilegt er eftir lönd-
um hvers konar aðferðum hefur
verið beitt. Jóhannes nefnir reynslu
Dana sem dæmi. ,,Árið 1995 var
sveitarfélögum fækkað í Danmörku
úr 221 í 98. Það var gert með þeim
hætti að ákveðið var mörgum árum
fyrr að sveitarfélögin skyldu sam-
einast og íbúatala þeirra yrði aldrei
minni en 25.000 íbúar. Hvern-
ig þau gerðu það væri þeim nán-
ast í sjálfsvald sett. Ef þau væru ekki
búin að ná þessu markmiði innan
fjögurra ára, myndi þingið ákveða
skiptinguna. Þetta tókst í grófum
dráttum og náðist fram mikil hag-
ræðing íbúum til hagsbóta,” segir
Jóhannes sem segir einnig hægt að
beita fjárhagslegum hvötum til að
stuðla að sameiningu sveitarfélaga.
,,Fyrirkomulag í samskiptum rík-
is og sveitarfélaga í Danmörku er
hins vegar töluvert öðruvísi en hér
hjá okkur. Í rauninni erum við svo-
lítið sér á báti þegar litið til sveit-
arstjórnarstigsins í Evrópu allri.
Það er ekki alslæmt og meira að
segja ágætt í sumum tilvikum, en
við getum lært heilmikið af öðr-
um til að efla sveitarfélögin. Dan-
ir hafa t.d. þannig fyrirkomulag að
ef sveitarfélag er með miklu hærri
tekjur á íbúa en nágrannasveitar-
félögin, þá ber þeim að láta tekjur
renna að hluta til sveitarfélaganna
sem í næsta nágrenni eru, sem
minna hafa. Hér eru nokkur dæmi
um sveitafélög sem hafa „óvart“
efnast verulega vegna virkjanafram-
kvæmda eða innan þeirra hafa verið
reistar verksmiðjur sem gefa af sér
há fasteignagjöld. Það er hægt að
skilja að forsvarsmenn þeirra sveit-
arfélaga vilji halda í þær tekjur, en
það er kannski ekki endilega sann-
gjarnt né eðlilegt út frá jafnræðis-
hugmyndum sem hafa ávallt verið
ríkar hjá sveitarfélögum á Íslandi,“
bætir hann við.
Aukið íbúalýðræði
eflir sveitarfélög
Stjórnvöld hafa ekki haft þá stefnu
hingað til að beita lögþvingunum
til að sameina sveitarfélög og er í
núgildandi sveitarstjórnarlögum
engin ákvæði um lágmarks íbúa-
fjölda. Ráðherra sveitarstjórnar-
mála, sem í dag er innanríkisráð-
herra, hefur þó heimild til að beita
sér fyrir sameiningu. Jóhannes seg-
ir óhjákvæmilegt að töluverð þróun
muni eiga sér stað á sveitarstjórn-
arstiginu á næstu árum. ,,Það á eft-
ir að koma í ljós hvað samráðsvett-
vangurinn mun leggja til en þar
sitja forystumenn stjórnmálaflokk-
anna á Alþingi. Tillögur hans munu
vafalaust hafa töluverð áhrif. Til-
flutningur á verkefnum frá ríki til
sveitarfélaga hefur hins vegar knú-
ið á um breytingar hingað til. Þetta
hefur komið mjög vel í ljós við til-
flutning á málefnum fatlaðs fólks
svo dæmi sé tekið. Mörg sveitar-
félög ráða ekki við málið og eru
brögð að því að íbúar þeirra flytj-
ist í burtu. Í sumum tilvikum hef-
ur rekstur þessa málaflokks verið
leystur með stofnun þjónustusvæð-
is, byggðasamlaga. Ekki hefur verið
gengið almennilega frá því hvernig
haga ætti bókhaldi í kringum þenn-
an rekstur og núna vakna menn upp
við það að kostnaðurinn er ekki rétt
færður víða. Í fleiri málaflokkum
hafa sveitarfélög ráðist í samstarf
um sameiginleg verkefni á þess-
um grunni, sem þau þá ráða ekki
við ein og sér, og eru landshluta-
samtök sveitarfélaga m.a. ávöxtur
þeirrar viðleitni. Þá verður að gæta
að því að það sé ekki verið að fram-
selja vald til einstaklinga sem ekki
eru valdir með lýðræðislegum hætti
í þær stjórnir. Á vettvangi lands-
hlutasamtakanna er kominn vís-
ir að þriðja stjórnsýslustiginu á Ís-
landi þar sem fulltrúar sveitarfélaga
hafa afsalað sér ábyrgð og völdum
sem þau hafa í raun ekki heimild til.
Lýðræðið er vandmeðfarið og mik-
ilvægt er að efla íbúalýðræði með
beinni þátttöku íbúanna og auka
gegnsæi. Sem allra flest gögn sveit-
arfélaga eiga t.d. að vera opin al-
menningi. Það má til dæmis hugsa
sér að ákveðin útgjöld verði tekin
úr bókhaldi sveitarfélaga með til-
viljanakenndum útdrætti og þau
kynnt fyrir íbúunum. Aukið íbúa-
lýðræði og gagnsæi getur eflt starf
sveitarfélaga.“
Alþjóðleg samvinna
skiptir máli
Jóhannes telur mikilvægt að horfa
til reynslu nágrannalanda af rekstri
sveitarstjórnarmála og er mikilvægt
fyrir Íslendinga að læra af því sem
vel hefur verið gert í öðrum lönd-
um. ,,Ég er nefndarmaður í sam-
ráðsnefnd um efnahagsmál, þar sem
sitja í fulltrúar ráðuneyta og Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, og
var nefndinni falið að vinna skýrslu
um fjármálareglur og samráð um
efnahagsmál. Þessi vinna fór á full-
an skrið í framhaldi bankahruns-
ins. Við héldum ráðstefnu og feng-
um til liðs við okkur fulltrúa frá Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum og einnig
frá Evrópuráðinu, en ég sat í nefnd
sérfræðinga sem fjallaði um fjármál
sveitarfélaga og almenna þjónustu.
Í Strasbourg kynntist ég mörgum
frábærum sérfræðingum, enda hafa
þeir unnið að sveitarstjórnarmálum
í áratugi fyrir sínar þjóðir og Evr-
ópuráðið og höfðu yfirgripsmikla
þekkingu á þessum málum. Hafa
sumir þeirra komið til landsins fyr-
ir mitt tilstilli og haldið erindi. Ís-
lendingar nutu mikillar samhygðar
á þessum vettvangi og tel ég mikil-
vægt fyrir okkur að taka þátt í sam-
vinnuverkefnum á alþjóðagrund-
velli. Við getum lært margt af slíku
samstarfi. Ég óttast þá einangrun-
arhyggju sem mér virðist vera víða
núna á Íslandi. Þekking erlendis
frá finnur sér stað hjá okkur, með-
al annars í nýjum sveitarstjórnar-
lögum,” segir Jóhannes.
Forsvarsmenn
sveitarfélaga
taki af skarið
Jóhannes hvetur til þess að sveit-
arstjórnarmenn taki af skarið og
skoði sameiningar að eigin frum-
kvæði, hver á sínu svæði. ,,Ég sá til
dæmis haft eftir Gunnari Sigurðs-
syni bæjarfulltrúa hér á Akranesi
að sameina ætti svæðið frá Akra-
nesi og Borgarbyggð og allt þar á
milli í eitt sveitarfélag. Mjög djörf
tillaga, enda djarfur maður á ferð.
Ég er viss um að margir hafa fuss-
að og sveiað yfir þessu, en tillagan
er þó allra athygli verð. Við verð-
um að hafa í huga að samgöng-
ur hafa breyst hratt undanfarin ár
og atvinnulífið sömuleiðis og það
kallar á að menn hugsi um hvern-
ig megi þróa starfsemi sveitarfé-
laga áfram og þar með búsetuskil-
yrði íbúa á hverju svæði. Nú starfar
til dæmis ótrúlega stór hópur íbúa
á Akranesi á höfuðborgarsvæðinu
og í svipinn man ég eftir tveimur
íbúum hér sem starfa í stjórnsýslu
Mosfellsbæjar. Einhversstaðar væri
krafan sú að viðkomandi ætti lög-
heimili í því sveitarfélagi, sem er í
rauninni ólögleg krafa, en stundum
veit stjórnvaldið ekki betur. Sam-
göngubreytingar breyta hins vegar
landslaginu í þessu og tæknin ekki
síður. Forsvarsmenn sveitarfélag-
anna verða að vera á tánum, fylgjast
vel með, sýna frumkvæði og vera
helst á undan og þróast með skyn-
samlegum hætti í takt við þessar
breytingar - í því felst áskorunin,”
segir Jóhannes Finnur Halldórsson
að lokum.
hlh
Efling sveitarstjórnarstigsins er mikil áskorun
Rætt við Jóhannes Finn Halldórsson sérfræðing á sviði sveitarstjórnarmála í innanríkisráðuneytinu
Jóhannes Finnur Halldórsson.
Verkefnisstjórn samráðsvettvangs leggur til að sveitarfélög á Íslandi fækki úr 74 í
12 og að lágmarksstærð þeirra verði um 8.000 íbúar. Myndin er fengin úr skýrslu
verkefnisstjórnarinnar.
Verkefnisstjórnin telur að stærri
sveitarfélög séu mun burðugri til að
bjóða upp á betri þjónustu en þau
smærri. Á Norðurlöndum eru fleiri
verkefni á forræði sveitarfélaga eins
og sjá má á þessari mynd. Myndin er
fengin úr skýrslu verkefnisstjórnar-
innar.