Skessuhorn


Skessuhorn - 12.06.2013, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 12.06.2013, Blaðsíða 25
25MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013 Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga kl. 10-15 Brúartorgi 4 – Borgarnesi - Sími 433-8801 Ferskar kjöt- og fiskvörur Tilbúnir kjöt- og fiskréttir I. Fallegasta götumyndin II. Fallegasta einkalóðin III. Fallegasta fjölbýlishúsalóðin IV. Snyrtilegasta fyrirtækja- eða stofnanalóðin V. Einstaklingur eða félagasamtök sem hafa lagt sitt af mörkum við að fegra umhverfið Tilnefningar frá íbúum óskast sendar til Akraneskaupstaðar í bréfi eða tölvupósti fyrir 1. júlí 2013. Akraneskaupstaður Stillholti 16-18 300 Akranes akranes@akranes.is Umhverfisviðurkenning 2013 Auglýst er eftir tilnefningum frá íbúum Akraness Skipulags- og umhverfisnefnd Akraneskaupstaðar óskar eftir tilnefningu fyrir umhverfisviðurkenningu 2013 í eftirtöldum fimm flokkum: Að frumkvæði Félags eldri borgara á Akranesi og nágrenni hefur ver- ið ákveðið að efna til púttkeppni milli FEBAN og félaga eldri borg- ara í Borgarbyggð; FEBBN og FAB. Reglugerð hefur verið samin og samþykkt. Keppt verður þrisv- ar yfir sumarið og geta allir þeir sem eru í félögunum tekið þátt í mótunum. Samanlagt skor sjö bestu í hverju móti telur til stigaút- reiknings. Leiknar er 2 x 18 holur. Keppt verður á Garðavelli á Akra- nesi, Hamarsvelli við Borgarnes og til skiptis á Nesvelli í Reykholts- dal og Þórisvelli í Svínadal. Húsa- smiðjan mun gefa veglegan bikar til keppninnar. Sumarið 2013 verður spilað sem hér segir: Miðvikudaginn 26. júní á Garða- velli á Akranesi kl. 14. Miðvikudaginn 24. júlí á Hamars- velli við Borgarnes kl. 14. Miðvikudaginn 21. ágúst á Nes- velli í Reykholtsdal kl. 14. Þá eru allir velkomnir á æfingar eldri borgara, sem eru sem hér seg- ir: Akranesi, Garðavöllur mánudaga og fimmtudaga kl 13.00. Borgar- firði, Hamarsvöllur fimmtudaga kl 14.00. Fyrirhugað er að vera með æfingu á Nesvelli og verður það auglýst síðar. Fréttatilkynning frá undirbúningsnefnd. IsNord tónlistarhátíðin í Borgar- firði hefst á morgun, fimmtudag- inn 13. júní, en hún stendur yfir fram á sunnudag. Dagskrá IsNord er fjölbreytt og segir Jónína Erna Arnardóttir skipuleggjandi henn- ar að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Borgfirskir listamenn verða í aðalhlutverki að þessu sinni en alls verða tónleikar hátíðarinnar fimm. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Hjálmakletti á morgun líkt og fyrr segir og stíga á svið hljómsveitirn- ar Waveland og Quintet Heim- is Klemenzsonar. Sveitirnar flytja frumsanda tónlist sem er af margs- konar meiði, allt frá heimi raftón- listar til jazz. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30. Á föstudaginn verða tón- leikar í Reykholtskirkju kl. 20:30 þar sem fram kemur kontraalt- söngkonan Margrét Brynjarsdótt- ir ásamt Jónínu Ernu Arnardótt- ur píanóleikara. Margrét er 26 ára gömul og er fædd og uppalinn í Borgarnesi. Hún hefur stundað söngnám á Norðurlöndunum og er að útskrifast með meistaragráðu í söng frá Tónlistarháskólanum í Osló. Á laugardaginn fara fram útitón- leikar í Englendingavík í Borgar- nesi þar sem Þóra Sif Svansdótt- ir jazzsöngkona og Birgir Þóris- son hljómborðsleikari koma fram. Tónleikarnir hefjast kl. 16:00 en ýmislegt verður um að vera í vík- inni þennan sama dag. IsNord lýk- ur síðan á sunnudaginn með tvenn- um tónleikum í Borgarnesi, svo- kölluðum stofutónleikum heima hjá tónlistarkonunum Theodóru Þorsteinsdóttur og Zsuzsönnu Budai. Jónína Erna segir að stofu- tónleikarnir verða eitthvað styttri í tímalengd en venjulegir tónleikar en fram koma góðir gestir sem Theodóra og Zsuzsanna hafa boð- ið að koma fram með sér. Tónleikar Theodóru hefjast kl. 14:30 og tón- leikar Zsuzsönnu kl. 16:00. Jónína vildi koma því á framfæri að ein- ungis fimmtíu miðar verða í boði á hvora tónleika þar sem þeir eru haldnir á heimilum listamannanna. Léttar veitingar verða í boði á báð- um tónleikastöðum. Miðasala á IsNord er á midi.is og við inngang. Ókeypis verður á úti- tónleikanna í Englendingavík. Nán- ari upplýsingar er að finna á síðu Is- Nord á sveitasímanum (e. Facebo- ok) og á heimasíðunni isnord.is. hlh Fimmtudagskvöldið 13. júní verða haldnir tónleikar í Vinaminni á Akranesi. Bera þeir yfirskriftina „Við eigum samleið“ og eru haldn- ir í samvinnu við Kalman, sem er nýstofnað listafélag á Akranesi. Fram koma söngv- ararnir Guðrún Gunnars, Sigga Beinteins og Jógvan Hansen. „Hér eru á ferð- inni einstaklega ljúfir og skemmtilegir tónleikar með gömlu góðu sönglögunum sem allir þekkja og elska. M.a. má heyra lög eins og Til eru fræ, Ég er kominn heim, Heyr mína bæn, Kata rokkar, Játning og fleiri lög í þessum dúr úr íslenskri dægurlagasögu. Þetta eru tónleikar sem enginn tón- listarunnandi má láta fram hjá sér fara. Guðrún, Sigga og Jógvan eru landsþekkt- ir söngvarar og þeim til halds og traust verður hinn snjalli píanóleik- ari, Þórir Úlfarsson. Gestasöngvari er Sigursteinn Hákonarson (Steini í Dúmbó) og þá má segja að þarna sé kominn skotheldur söngkvartett,“ segir í tilkynningu. Tónleikarn- ir hefjast kl. 20 og er aðgangseyr- ir er kr. 2.500 og miðasala við inn- ganginn. Um Kalman Kalman - listafélag er ætlað að verða góð viðbót í menningar- líf á Akranesi. Félagið mun starfa í nánu samstarfi við hið öfluga tónlistarlíf sem er við Akraneskirkju sem og í samstarfi við aðra sem hafa áhuga á góðu og göf- ugu listasamfélagi. Kalman - listafélag er hugarfóstur Sveins Arnars Sæmunds- sonar organista Akranes- kirkju og listvina hans. Þró- un félagsins er í mótun en markmiðið er að bjóða upp á a.m.k. eina tónleika í mánuði yfir vetrartímann, standa fyrir námskeiðum, fyrirlestrum og öðru sem býður upp á listsköpun og jákvætt umhverfi. Einnig er markmiðið að þróa sumar- tónleikaröð eins og víða tíðkast og munu þessir tónleikar gefa tóninn fyrir tónleika sumarsins. mm Árleg vorhátíð var haldin í Hjúkr- unar- og dvalarheimilinu Silfurtúni í Búðardal síðastliðinn laugardag. Þar var margt um manninn og ým- islegt til skemmtunar eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þar sem kór Félags eldri borgara skemmti meðal annars með söng og Hesta- mannafélagið Glaður kom með nokkra reiðskjóta í heimsókn. bae Vorhátíð í Silfurtúni Golfkúlan slegin á Nesvelli í Reykholts- dal. Félög aldraðra á Akranesi og Borgarfirði í samstarf í pútti Theodóra Þorsteinsdóttir heldur stofutónleika á heimili sínu á sunnudaginn ásamt góðum gestum. Hér er hún á tónleikum í Borgarneskirkju ásamt fjölskyldu sinni sem vafalaust mun koma fram á sunnudaginn. Fjölbreyttir IsNord tónleikar framundan Jazzsöngkonan Þóra Sif Svans- dóttir kemur fram á útitónleikum í Englendingavík á IsNord ásamt Birgi Þórissyni hljómborðsleikara. Sumartónleikar á vegum Kalmans listafélags á Akranesi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.