Skessuhorn - 12.06.2013, Blaðsíða 7
13. júní fimmtudagur
20:00 Tónleikar „Við eigum samleið“ í Vinaminni
Sigga Beinteins, Guðrún Gunnars og Jógvan Hansen munu flytja
skemmtilega og ljúfa söngdagskrá. Sérstakur gestur verður Skagamaðurinn
Sigursteinn Hákonarson (Steini í Dúmbó). Undirleikari verður hinn snjalli
píanóleikari Þórir Úlfarsson. Tónleikarnir eru í samvinnu við Kalman sem er
nýstofnað listafélag á Akranesi. Ekki missa af þessu!
15. júní laugardagur
14.00 Knattspyrna eins og hún gerist best.
Á Akranesvelli keppa ÍA og ÍR í 1. deild kvenna.
Herminator Invitational boðsmótið í golfi
fer fram hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi.
16. júní sunnudagur
13.30-17.00 Ljósmyndasýning
Finnur Andrésson opnar ljósmyndasýningu að Skólabraut 26-28.
Sýningin stendur til 13. júlí. Finnur mun sýna 30 ljósmyndir frá Akranesi
og nágrenni sem teknar eru frá 2011 til 2013. Opnunartími er virka daga
frá 13.30 - 17.00 og um helgar frá 13.00-18.00.
17. júní mánudagur
10.00-14.00 Þjóðlegur morgunn á Safnasvæðinu
Þjóðlegur morgunverður. Opið og ókeypis aðgangur í söfnin.
Gestir sem mæta í þjóðbúningi fá óvæntan glaðning.
Boðið verður upp á andlitsmálun, ekta 17. júní blöðrur og nammi til sölu og
fleira skemmtilegt.
13.00 Hátíðarguðsþjónusta í Akraneskirkju
Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson þjónar fyrir altari.
14.00-17.00 Kaffisala kirkjunefndar Akraneskirkju
í safnaðarheimilinu Vinaminni
14.00 Skrúðganga frá Vinaminni
Gengið verður niður Skólabraut, Vesturgötu um Háteig og upp Suðurgötu að
Akratorgi. Að venju verða Skólahljómsveit Akraness, Skátafélag Akraness og
lögreglan í fararbroddi.
14.30 Á Akratorgi
Fánahylling í umsjón Skátafélags Akraness,
blásarar Skólahljómsveitar Akraness leika undir
• Hátíðarræða Kristján Kristjánsson
• Ávarp fjallkonu
• Þjóðsöngurinn: Félagar úr kór Akraneskirkju undir stjórn Sveins Arnar
• Bæjarlistamaður, umsjón Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
Að lokinni hátíðardagskrá tekur við fjölbreytt skemmtidagskrá
Söngdeild Tónlistarskólans
Gunnar Már Ármannsson og Katrín Valdís Hjartardóttir.
Undirleikur: Birgir Þórisson.
Umsjón með atriði hefur Elfa Margrét Ingvarsdóttir.
Elskaðu friðinn
Atriði úr söngleik Brekkubæjarskóla Elskaðu friðinn.
Umsjón með atriði hafa Heiðrún Hámundardóttir og Samúel Þorsteinsson.
Tónlistarval unglinga í grunnskólum Akraness og
Tónlistarskólanum
Nemendur úr grunnskólunum héldu til Svíþjóðar í maímánuði og
slógu þar í gegn á tónleikum.
Flytjendur: Aðalsteinn Bjarni Valsson, Hjördís Tinna Pálmadóttir,
Margrét Brandsdóttir og Sigurlaug Rún Hjartardóttir.
Umsjón með atriði hefur Heiðrún Hámundardóttir.
Hljómsveitarval Grundarskóla
Nemendur úr 6. og 7. bekk Grundarskóla leika nokkur lög sem æfð voru upp í
hljómsveitarvali í skólanum. Umsjón með atriði hefur Samúel Þorsteinsson.
Dansstúdíó Írisar
Dansatriði nemenda úr Dansstúdíó Írisar.
Umsjón með atriði hefur Íris Ósk Einarsdóttir.
Stúlkukindurnar
Hljómsveitin Stúlkukindurnar leika nokkur lög. Hljómsveitina skipa Aníta Sól
Ágústsdóttir, Ingibjörg Birta Pálmadóttir, Ingigerður Sólveig Höskuldsdóttir,
Harpa Rós Bjarkadóttir, Hrefna Berg Pétursdóttir, Sólrún Sigþórsdóttir og
Sunneva Lind Ólafsdóttir.
Umsjón með atriði hefur Samúel Þorsteinsson.
Sigurvegari í söngkeppni FVA
Heiðmar Eyjólfsson sigurvegari í söngkeppni FVA 2013 tekur lagið.
14.00-17.00 Hoppukastalar á Merkurtúni
16.00 Listasetrið Kirkjuhvoll, Myndlistasýningin VER
Sýningin er samsýning þeirra Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur,
Sólveigu Aðalsteinsdóttur og Þóru Sigurðardóttur. Meginhluti verkanna eru
ljósmyndir og teikningar sem að nokkru lýsa sjónarhorni gestsins, þannig eru þau
athugun á umhverfi og staðháttum á Akranesi, en einnig á innviðum Kirkjuhvols
og nærumhverfi höfundanna. Sýningin verður opin miðvikudaga til sunnudaga
frá 14.00 til 17.00 og stendur til 28. júlí 2013.
20.00-22.00 Sundlaugarpartý
Sundlaugarpartý í sundlauginni á Jaðarsbökkum fyrir krakka sem fæddir eru
1997, 1998 og 1999. Aðeins 100 komast ofan í í einu.
Fyrstir koma fyrstir fá. Frítt inn.
Gleðilega Þjóðhátíð!
17. júní á Akranesi
Glæsileg hátíðardagskrá fyrir alla fjölskylduna