Skessuhorn


Skessuhorn - 12.06.2013, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 12.06.2013, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013 Myndlistarsýningin VER verður opnuð 17. júni klukkan 16 í Lista- setrinu Kirkjuhvoli á Akranesi. Sýningin er samsýning þeirra Guð- rúnar Hrannar Ragnarsdóttur, Sól- veigu Aðalsteinsdóttur og Þóru Sig- urðardóttur. Meginhluti verkanna eru ljósmyndir og teikningar sem að nokkru lýsa sjónarhorni gests- ins. Þannig eru þau athugun á um- hverfi og staðháttum á Akranesi, en einnig á innviðum Kirkjuhvols og nærumhverfis höfundanna. Heiti sýningarinnar VER felur í sér vís- un í orð og orðsifjar. Sem forlið- ur í orðunum ver-tíð og ver-búðir tengist orðið skjóli, en einnig haf- inu og sjósókn. Listamennirnir hafa lagt stund á myndlist í 30 ár og sýnt víða. Verk hverrar og einnar hafa sterk höf- undareinkenni en einnig er margt sem sameinar og tengist í list þeirra og lífi. Jafnframt því að vinna að myndlist stunda listamennirnir kennslu í myndlist á öllum stigum listmenntunar, þ.e. á grunn,- fram- haldsskóla- og háskólastigi. Sýning- arnar má líta á sem þrjár einkasýn- ingar þar sem athugun, hversdag- ur og nærumhverfi er samnefnari. Listaverkin beina sjónum að nánd stundarinnar og staðarins – um leið og þau skírskota með sínum hætti til annars tíma, annars rýmis. Sýningin í Kirkjuhvoli er opin fimm daga vikunnar á miðvikudög- um til sunnudaga, frá kl. 14.00 - 17.00. Sýningu lýkur 28. júlí. -fréttatilkynning Lífið gerist varla fjörugra á Akra- nesi en helgina þegar pollamótið fyrir 7. aldursflokk í knattspyrnu fer fram en síðustu ár hefur það borið nafnið Norðurálsmótið, eftir að- alstyrktaraðila ÍA. Núna er aðeins rúm vika í að mótið hefjist og víst að margir bæjarbúar, pollar og að- standendur þeirra um allt land eru fullir tilhlökkunar. „Ég hitti einmitt í Reykjavík núna á dögunum föð- ur sem þrjú ár í röð hefur átt barn á mótinu. Hann sagði að það væri mikil sorg á heimilinu núna, þegar ekki yrði farið á Skagann á Norður- álsmót,“ sagði Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri ÍA þegar blaða- maður Skessuhorns ræddi við hann um undirbúning og fyrirsjáanlega þátttöku á mótinu. Ljóst er að metfjöldi félaga mun taka þátt að þessu sinni, þau verða nú 28 í stað 27 sem var mest áður. Þrjú ný félög senda nú lið á mót- ið, það eru Grindavík, Ægir í Þor- lákshöfn og nágrenni og Sindri á Hornafirði. Keppnisliðin verða 144 og er það hámarksfjöldi þriðja árið í röð. Keppt verður á 18 völl- um samtímis og leiknir samtals 576 leikir á mótinu. Knattspyrnumenn- irnir, sem eru frá 6-8 ára, eru 1.240 skráðir til leiks. Gert er ráð fyrir að sjö til átta þúsund manns leggi leið sína á svæðið um mótshelgina. Jákvæðir og gestrisnir Þórður segir Norðurálsmót- ið skemmtilegasta verkefnið sem knattspyrnuforystan á Akranesi vinni að af mörgum skemmtileg- um. Að undirbúningi koma 30-40 manns og fjöldi sjálfboðaliða við framkvæmd mótsins er varlega áætl- aður 600-700. „Það fer mjög gott orð af mótinu. Alls staðar sem mað- ur kemur er fólk að tala um mót- ið og hvað það sé gaman að koma á Akranes þessa helgi. Við byrjuðum eftir mótið 2010 að gera könnun hjá gestunum hvernig þeim fyndist til takast og í raun hefst strax eftir hvert mót undirbúningur fyrir það Laugardaginn 8. júní var Kaffi Emil opnað með pompi og prakt í húsnæði Sögumiðstöðvarinnar í Grundarfirði, sem nú heitir Menn- ingarmiðstöðin Grund. Það eru þau Guðrún Hrönn Hjartardótt- ir, Heimir Þór Ásgeirsson, Ragn- ar Smári Guðmundsson og Þórð- ur Már Gylfason sem sjá um rekst- ur kaffihússins og þar verða ýmsir smáréttir í boði ásamt girnilegum kökum og kaffidrykkjum alla daga á meðan upplýsingamiðstöðin er opin. Það verður enginn svikinn af góðgætinu sem þarna er í boði. tfk Nýtt kaffihús var opnað síðastlið- inn sunnudag í Ólafsvík en það ber heitið Kaffi Belgur. Það eru þær Rakel Gunnarsdóttir, Rut Einars- dóttir og Ólína Kristinsdóttir sem reka kaffihúsið sem er staðsett að Grundarbraut 2a, þar sem áður var Gilið, og er að þeirra sögn kaffi- hús með léttum veitingum. Nafnið segja þær tengjast Ólafi Belg land- námsmanni af svæðinu. Ætla þær stöllur að hafa opið sunnudaga til fimmtudaga frá klukkan 11 til 22 og á föstudögum og laugardög- um frá klukkan 11 til 23. Hafa þær ásamt eiginmönnum sínum unn- ið hörðum höndum við undirbún- ing undanfarið en engin starfsemi hefur verið í húsinu frá því á síðasta ári. Kaffihúsið tekur rúmlega sjötíu manns í sæti og er hægt að sitja úti sem inni og á efri hæðinni er boð- ið upp á frítt net fyrir þá sem það vilja. Óhætt er að segja að bæjarbú- ar hafi tekið opnuninni vel en að sögn Rutar var mikið að gera fyrsta daginn og margir sem lögðu leið sína til þeirra. þa Myndlistarsýningin VER opnuð í Kirkjuhvoli Nýtt kaffihús í Ólafsvík Guðrún Hrönn Hjartardóttir blandar ljúffenga drykki. Nýir rekstraraðilar á Kaffi Emil Metfjöldi félaga verður á Norðurálsmótinu sem hefst eftir tíu daga næsta, þá metið hvað vel er gert og hvað hugsanlega þyrfti að bæta. Í fyrstu var könnun með spurningum send á tengiliði félaga sem áttu lið á mótinu. Núna síðustu árin hefur könnunin verið útvíkkuð með því að senda hana til fjölda forelda sem tengjast þátttökuliðunum. Undan- tekningarlaust hefur komið fram í þessum svörum mikil ánægja gesta. Í svörunum endurspeglast hvað við getum verið ánægð með foreldr- ana okkar, sem fá þá einkunn að þeir séu mjög jákvæðir og gestrisn- ir,“ segir Þórður. Hann segist ekki í vafa um að þarna eigi nokkurn þátt foreldrakaffi sem foreldrar barna í ÍA á Norðurálsmóti bjóði gestafor- eldrunum til. „Ég held þetta hljóti að vera stærsta kaffisamsæti á land- inu. Þarna er 2000-3000 manns boðið í ókeypis rosalega flott köku- hlaðborð,“ segir Þórður. Góð auglýsing fyrir Akranes Aðspurður segir Þórður að vallar- svæðið á Jaðarsbökkum sé í góðu standi til að taka við mótinu. „Núna tökum við í notkun þann hluta æf- ingasvæðisins sem var endurunn- ið og sáð í fyrir tveimur árum. Þar verða fimm keppnisvellir og mun- ar miklu að fá þetta svæði inn aftur. Þrátt fyrir stórt æfingasvæði verða tveir vellir inni í Akraneshöllinni. Höllin nýtist líka að hluta sem leik- svæði fyrir börnin og sem skjól- svæði ef veðrið er ekki eins og það á að vera, en yfirleitt ert gott veður á Norðurálsmóti. Ég held að stór ástæða þess hvað mótið er vinsælt sé einmitt hvað mótssvæðið er gott. Við erum með leikjaland á svæðinu og tengjum það við Langasandinn sem alltaf er vinsæll hjá börnunum. Síðan tengjum við líka Garðalund við tjaldsvæði mótsgesta á Safn- asvæðinu, með því að hafa leik- svæði og afþreyingu í skógræktinni. Ég held að varla sé hægt að hugsa sér betri auglýsingu fyrir Akranes en Norðurálsmótið,“ segir Þórður. Öflugt lið í dómarastörfunum Gríðarlegan fjölda dómara þarf til að dæma vel á sjötta hundrað leiki á Norðurálsmóti. Þórður segir að dómaramálin séu aðallega í höndum meistaraflokkanna, 2. flokks og 3. flokks karla og kvenna, auk gamalla leikmanna og Dómarafélags Akra- ness. Yngstu dómararnir á mótinu í ár eru fæddir 1998. Kosturinn við það að vera dómari á Norður- álsmóti er að það er ekki erfitt að dæma leikina. „Það er frekar létt að dæma og meginhlutverk dómar- ans er eiginlega að kenna, því þarna eru knattspyrnumennirnir margir að stíga sín fyrstu skref á fótbolta- vellinum,“ segir Þórður. Þegar talið berst að framkomu foreldra, þegar börnin þeirra eru að keppa, segir hann að mörg félög hafi það fyrir reglu að hvetja sín lið og beini því til foreldra að vera ekki með áköf köll til sinna barna. „Þannig viljum við líka hafa það hjá ÍA en auðvitað er það líka þannig að margir for- eldrar eru að koma með sitt barn í fyrsta skipti á mótið og þekkja ekki alveg sín takmörk í spennunni. Það eru margir að læra,“ segir Þórður. Gott skipulag á Norðurálsmóti Það sem forráðamenn barna og fé- laga sem koma á Norðurálsmót eru hvað ánægðastir með er skipulagið og hvað allar tímasetningar ganga vel eftir. Þórður segir að komið sé fast form á skipulagið frá ári til árs og traust fólk í lykilhlutverkum frá uppeldissviði félagsins. Fram- kvæmd mótsins er skipt upp í ell- efu verksvið, svo sem dómgæslu, matsal, tjaldsvæði og svo framveg- is. Síðan er foreldrum barna í yngri flokkum raðað á vaktir á hverju verksviði. „Þannig tryggjum við nægjan mannskap alls staðar og gott skipulag og tímasetningar er eitt af því sem skiptir höfuðmáli á svona móti,“ segir Þórður Guð- jónsson. Hann er annar tveggja starfsmanna ÍA í mótsstjórninni fyrir Norðurálsmót, hinn er Rak- el Jóhannsdóttir. Aðrir í mótsstjór- ninni að þessu sinni eru: Berglind Þráinsdóttir, Guðráður Sigurðs- son, Arnbjörg Stefánsdóttir, Bjarki Pétursson, Lárus Ársælsson, Ólaf- ur Ingi Guðmundsson og Sigríður Þorsteinsdóttir. þá Frá skrúðgöngu við upphaf Norðurálsmóts. Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA. Líf og fjör á Norðurálsmóti.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.