Skessuhorn - 12.06.2013, Blaðsíða 11
11MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013
ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA
BLIKKSMIÐJA
Loftræstingar – Reykrör
Klæðningar – Nýsmíði
Viðhald – Efnissala
JÁRNSMIÐJA
Gjafagrindur – Nýsmíði
Viðhald – Þjónusta
Hesthúsinnréttingar
RAFMAGNS-
VERKSTÆÐI
Nýlagnir – Viðhald
Viðgerðaþjónusta
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
Þjóðhátíðardegi Íslendinga verður fagnað víða í sveitarfélaginu.
Á Hvanneyri stendur Ungmennafélagið Íslendingur fyrir dagskrá og þjóðhátíðargrilli.
Lagt verður af stað frá Sverrisvelli að Skjólbeltum kl:11:00.
Í Lindartungu verður ungmennafélagið Eldborg og Kvenfélagið Björk með leiki og veitingar.
Í Brautartungu sér Ungmennafélagið Dagrenning um dagskrá sem hefst kl:14:00.
Ungmennafélag Reykdæla stendur fyrir hátíðahöldum í Reykholtsdal með hefðbundnum hætti.
Dagskrá fer fram í Reykholti og í Logalandi.
Nánari dagskrá auglýst á viðkomandi stöðum.
Hátíðarhöld á vegum Borgarbyggðar fara fram
í Skallagrímsgarði í Borgarnesi.
Dagskrá:
Kl: 09.00 - 12.00 Sundlaugin opin.
Sundlaugin Borgarnesi opin fyrir almenning. Heitt kaffi á laugarbakkanum.
Kl: 10.00 17. júní hlaup á Skallagrímsvelli.
Fjölmennum í skokkið og förum í leiki með börnunum.
Kl: 12.00 Andlitsmálun í Óðal.
Götuleikhús vinnuskólans tekur á móti hressum krökkum í Óðal og málar fána á andlit.
Kl: 13.15 Skrúðganga frá Óðal.
Skátar og Götuleikhús vinnuskólans leiða Skrúðgöngu niður í Skallagrímsgarð.
Krakkar munið að koma með fána og veifur ef þið eigið.
Kl: 13.00 - 17.00 Safnahús sýnir Ævintýri fuglanna og Börn í 100 ár.
Sannarlega óvenjulegar sýningar, sjónræn upplifun sem gleður alla fjölskylduna.
Gestir ganga um híbýli forfeðra sinna þar sem ýmislegt fróðlegt kemur á óvart.
Íslenskir varpfuglar af ýmsum stærðum og gerðum sem fanga augu og eyru áhorfandans.
Kl: 13.30 Guðsþjónusta í Skallagrímsgarði.
Guðsþjónusta í Skallagrímsgarði prestur séra Þorbjörn Hlynur Árnason, Kór Borgarneskirkju
leiðir söng undir stjórn Steinunnar Árnadóttur organista.
Kl: 14.00 Hátíðardagskrá í Skallagrímsgarði.
Hátíðarávarp: Vilhjálmur Egilsson nýráðin Rektor Háskólans á Bifröst.
Ávarp fjallkonu: Hver skyldi vera fjallkonan í ár?
Einar Mikael töframaður: Frumsýnir glæsilegar sjónhverfingar og töfrabrögð ásamt aðstoðarkonu sinni.
Þóra Sif Svansdóttir: Nýútskrifuð úr jazzdeild Fíh syngur nokkra slagara, Birgir Þórisson sér um undirleik.
Jóhanna Guðrún og Davíð Sigurgeirsson: Skemmta hátíðargestum í garðinum af sinni einskæru snilld
Kynnir hátíðarinnar verður Bragi Þór Svavarsson
Að lokinni dagskrá á sviði ekur Fornbílaklúbburinn framhjá Skallagrímsgarði að
Hjálmakletti þar sem hægt verður að skoða glæsileg farartæki fram eftir degi.
Skátar og Götuleikhús vinnuskólans verða með leiktæki, andlitsmálun, brjóstsykurgerð og candyfloss við
skátahúsið í Skallagrímsgarði. Kaffisala á vegum Kvenfélags Borgarness – ágóði rennur til líknarmála.
Ef veður verður óhagstætt þá færum við hátíðarhöldin í Hjálmaklett.
Í framhaldi af umhverfisúttekt á
Grundartanga sem þrír sérfræðing-
ar gerðu að beiðni Faxaflóahafna og
kynnt var nýlega, gerði stjórn hafn-
arsamlagsins bókun á fundi sín-
um sl. föstudag 7. júní. Þar var m.a.
samþykkt að beina því til eigenda
fyrirtækisins, sem eru Reykjavík-
urborg, Hvalfjarðarsveit, Akranes
og Borgarbyggð, að mótuð verði
stefna um framtíðaruppbyggingu
á Grundartanga. Þar verði m.a.
gert ráð fyrir að framleiðslustarf-
semi og þjónusta taki mið af niður-
stöðu úttektarskýrslunnar t.d. varð-
andi brennisteinstvíoxíð. Áfram
verði gert ráð fyrir iðnfyrirtækjum
á svæðinu. Þá verði rætt við sveitar-
stjórn Hvalfjarðarsveitar um skipu-
lag svæðisins. Miðað verði við að
framleiðsla og þjónusta fyrirtækj-
anna nýti græna orku og starfi sam-
kvæmt umhverfismarkmiðum Faxa-
flóahafna sf.
Í ályktun stjórnar Faxaflóahafna
er þeirri ósk komið á framfæri við
Umhverfisstofnun að stofnun-
in komi á fót samráðsvettvangi og
auknu samráði milli þeirra aðila sem
vinna að umhverfisvöktun á Grund-
artangasvæðinu. Þá verði framsetn-
ing umhverfisupplýsinga enn bætt
þannig að íbúar í nágrenni svæðis-
ins hafi greiðan aðgang að grund-
vallarupplýsingum varðandi stöðu
mála. Þeim tilmælum er beint til
Umhverfisstofnunar og Norður-
áls hf. að komið verði á upplýsinga-
miðlun til íbúa í grennd við Grund-
artanga svo að þeir geti brugðist
við ef óhagstætt veðurfar er talið
geta aukið líkur á að dreifing flúors
verði umfram það sem þynningar-
svæði og reiknilíkön gera ráð fyrir.
Þá er þeim tilmælum einnig beint
til Umhverfisstofnunar, Elkem Isl-
and ehf. og Norðuráls hf. að skýrsla
starfshópsins um úttekt á umhverf-
isáhrifum verði tekin til sérstakrar
umfjöllunar á vettvangi þessara að-
ila og tillögur skýrsluhöfunda nýtt-
ar til þess að frekari sátt megi nást
um umhverfismál á svæðinu.
Í bókun stjórnar Faxaflóahafna
segir m.a: „Landkostir á Grund-
artanga felast í góðri hafnarað-
stöðu, öflugu afhendingarkerfi á
rafmagni, landrými og nálægð og
greiðum samgöngum við öflugan
vinnumarkað. Fjarlægð frá þéttbýli
er heppileg, en á móti kemur að í
grennd við Grundartanga er stund-
aður landbúnaður og ferðaþjónusta,
sem taka þarf tillit til. Á grund-
velli umhverfisstefnu Faxaflóa-
hafna sf. og í ljósi ákveðinnar tor-
tryggni varðandi umhverfismæling-
ar og umhverfisvöktun ákvað stjórn
Faxaflóahafna sf. að láta vinna sjálf-
stæða og óháða úttekt á umhverfis-
málum á Grundartanga. Tilgang-
ur þeirrar úttektar var að útbúa lista
yfir þá umhverfisþætti sem tengjast
iðnaði á Grundartanga, leggja mat
á mengunarálag og nýta niðurstöðu
úttektarinnar til að móta stefnu um
framtíðaruppbyggingu.“ þá
Eigendur Faxaflóahafna
móti stefnu um
framtíðaruppbyggingu
á Grundartanga