Skessuhorn - 12.06.2013, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013
Götur fái nöfn
frá Paimpol
GRUNDARFJ: Á bæjarráðs-
fundi Grundarfjarðarbæjar
þriðjudaginn 4. júní sl. var lagt
fram erindi frá Grundapol, vina-
bæjarsamtökum Grundarfjarð-
ar og Paimpol í Frakklandi. Í er-
indinu voru lagðar fram þrjár
tillögur, það er að ein eða fleiri
götur í Grundarfirði fái göt-
unöfn frá Paimpol ásamt nú-
verandi heitum, að skilti verði
komið upp sem segi að Grund-
arfjörður sé vinabær Paimpol og
að munir frá Paimpol verði gerð-
ir aðgengilegir almenningi. Bæj-
arráð þakkaði fyrir erindið og
vísaði tveimur fyrstu tillögunum
til umhverfisnefndar Grundar-
fjarðar og þeirri þriðju til menn-
ingar- og markaðsfulltrúa. –ákj
Gistinóttum
fjölgaði um 30%
LANDIÐ: Gistinætur á hót-
elum í apríl á landinu voru
133.000 og fjölgaði um 10% frá
apríl í fyrra. Gistinætur erlendra
gesta voru um 79% af heildar-
fjölda gistinátta í mánuðinum en
þeim fjölgaði um 9% frá sama
tíma í fyrra. Jafnframt fjölgaði
gistinóttum Íslendinga um 12%.
Þetta kemur fram í frétt frá Hag-
stofunni. Athygli vekur að á sam-
anlögðu svæði Vesturlands og
Vestfjarða voru 3.700 gistinætur
í apríl sem er um 30% meira en
í sama mánuði árið 2012. Mest
fjölgaði gistinóttum þó á Austur-
landi en þar voru 4.200 gistinæt-
ur í apríl samanborið við 2.500 í
apríl á síðasta ári. Á höfuðborg-
arsvæðinu voru 102.000 gisti-
nætur á hótelum í apríl sem er
aukning um 10% frá sama mán-
uði í fyrra. Á Suðurnesjum voru
gistinætur á hótelum 5.400 apríl
og fjölgaði um 13%. Á Norður-
landi voru gistinætur 6.700 sem
er um 10% meira en í apríl 2012.
Gistinóttum á hótelum fækkaði
á Suðurlandi um 6% en þar voru
gistinætur um 11.000 samanbor-
ið við 11.800 í apríl 2012. –ákj
Sofnaði við stýrið
LBD: Alls urðu fimm umferð-
aróhöpp í umdæmi lögreglunnar
í Borgarfirði og Dölum í liðinni
viku og þar af eitt með meiðslum.
Í því tilviki hafði ökumaðurinn
sofnað við aksturinn og lenti bif-
reiðin útaf veginum og valt a.m.k.
tvo hringi áður en hún hafnaði á
hjólunum, skammt neðan við
Bifröst í Norðurárdal. Ökumað-
urinn, sem var að koma að norð-
an, kvaðst hafa fundið til syfju og
mikillar þreytu og ætlað að fara
að stoppa þegar hann sofnaði
skyndilega. Ökumaðurinn slapp
lítið meiddur enda var hann í ör-
yggisbelti og líknarbelgir blésu út
og vörðu hann. Var hann fluttur á
sjúkrahús. Kranabifreið var feng-
in til að flytja bifreiðina burt og
var hún gjörónýt eftir velturnar.
-mm
Hyundai bifreið-
ar innkallaðar
LANDIÐ: Fyrirtækið BL ehf.
hefur innkallað 618 bifreiðar af
gerðinni Hyundai framleiddar
á árunum 2007 til 2011. Þetta
kemur fram á vef Neytenda-
stofu. Ástæða innköllunarinn-
ar er bilun í rofa sem ekki hefur
áhrif á bremsukerfið sem slíkt.
Gaumljós getur komið í mæla-
borð, hraðastillir getur orð-
ið óvirkur og bremsuljós gætu
seinkað í versta falli ekki kom-
ið. Því þarf að skipta út rofanum
fyrir uppfærðan rofa. Gerðirn-
ar sem um ræðir eru Santa Fe II
(apríl 2007 – júlí 2011), Tucon
(maí 2007 – febrúar 2009) og
IX55 (desember 2007 – febrú-
ar 2009). Viðkomandi bifreið-
areigendur munu fá sent bréf
vegna þessarar innköllunar.
–ákj
Aflatölur fyrir
Vesturland
5. – 11. júní.
Tölur (í kílóum) frá Fiski-
stofu:
Akranes 26 bátar.
Heildarlöndun: 22.602 kg.
Mestur afli: Ingunn Sveins-
dóttir AK: 2.801 kg í einni
löndun.
Arnarstapi 9 bátar.
Heildarlöndun: 7.838 kg.
Mestur afli: Jóhannes á Ökr-
um AK: 1.754 kg í tveimur
löndunum.
Grundarfjörður 44 bátar.
Heildarlöndun: 132.026 kg.
Mestur afli: Vörður EA:
40.951 kg. í einni löndun.
Ólafsvík 43 bátar.
Heildarlöndun: 86.051 kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarnason
SH: 17.201 kg. í þremur lönd-
unum.
Rif 40 bátar.
Heildarlöndun: 97.197 kg.
Mestur afli: Örvar SH:
27.828 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur 37 bátar.
Heildarlöndun: 82.144 kg.
Mestur afli: Fjóla SH: 7584
kg í tveimur löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Vörður EA – GRU:
40.951 kg. 5. júní.
2. Gullberg VE – GRU:
37.429 kg. 5. júní.
3. Örvar SH – RIF:
26.030 kg. 5. júní.
4. Rifsnes SH – RIF:
13.929 kg. 5. júní.
5. Guðmundur Jensson SH
– OLA: 7.798 kg. 5. júní.
hlh
Við útskrift nemenda frá Brekku-
bæjarskóla á Akranesi sl. miðviku-
dag færðu útskriftarnemendur 10.
bekkjar sérdeild skólans tvær tölv-
ur að gjöf til minningar um skóla-
félaga þeirra, Sindra Dag Garðars-
son, sem lést 24. júní 2011. Sindri
Dagur var fæddur 28. febrúar 1997
og var nemandi í sérdeildinni frá sex
ára aldri. „Það var einstaklega gam-
an að foreldrar Sindra Dags skyldu
koma og vera með okkur á þess-
um tímamótum,“ segir í tilkynn-
ingu frá hópnum. Þá styrkti Omn-
is krakkana í þessu verkefni og lagði
fram vinnu við að setja upp búnað
í vélarnar. Vilja þau jafnframt færa
þeim kærar þakkir fyrir.
ákj/ Ljósm. Kristinn Pétursson
Um síðustu helgi var lok-
ið við að koma fyrir nýj-
um flotbryggjum í höfninni
á Sauðárkróki. Loftorka í
Borgarnesi framleiðir flot-
bryggjurnar og er verkefnið
á Króknum það stærsta sem
Loftorka í Borgarnesi hef-
ur tekið að sér að framleiða
fyrir Króla, sem er um-
boðsaðili SF Marina á Ís-
landi. Bergþór Ólason hjá
Loftorku segir að annars
vegar hafi verið um að ræða
80 metra langa bryggju úr
fjórum einingum, með sjö
12 metra löngum áfestum fingr-
um. Þeir eru notaðir sem viðlegu-
kantur fyrir stærri smábáta. Einn-
ig var komið fyrir 60 metra langri
bryggju úr þremur einingum, með
léttari fingrum fyrir allt að 34 báta.
Aðstaða smábátaeigenda á Sauð-
árkróki batnar stórum við þessar
framkvæmdir.
Bergþór segir bryggjurnar fram-
leiddar og prófaðar í aðstöðu Loft-
orku að Engjaási, en þar er
meðal annars búið að koma
upp 30 metra langri „sund-
laug“ til að hallaprófa flot-
bryggju einingar. „Það er
gaman að hugsa til þess að
hér í Borgarnesi, sem hef-
ur ekki lagt mikla áherslu á
hafnsækna starfsemi, sé nú á
þremur árum búið að fram-
leiða rúmlega 900 lengd-
armetra af flotbryggjum.
Til viðbótar við þetta stóra
verkefni á Sauðárkróki hafa
vorverkefnin í flotbryggjun-
um meðal annars verið tvær
nýjar bryggjur sem notaðar eru sem
viðlegukantur fyrir hvalaskoðunar-
báta í Reykjavík,“ segir Bergþór
Ólason hjá Loftorku.
þá
Færðu sérdeildinni gjöf til
minningar um Sindra Dag
Útskriftarnemendur 10. bekkjar Brekkubæjarskóla.
Þær Hjördís Tinna Pálmadóttir og Sól-
rún Sigþórsdóttir færðu sérdeildinni
gjöfina f.h. bekksins en Halldóra
Garðarsdóttir veitti þeim viðtöku.
Flotbryggjurnar komnar niður í Sauðárkrókshöfn.
Loftorka framleiðir flotbryggjur
fyrir Sauðárkrókshöfn