Skessuhorn - 12.06.2013, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013
Síðastliðinn föstudag voru stúd-
entar brautskráðir frá Menntaskóla
Borgarfjarðar í fimmta skipti. Tíu
stúdentar luku námi á félagsfræða-
braut, ellefu á náttúrufræðibraut og
tveir luku viðbótarnámi til stúd-
entsprófs. Bjarni Traustason kenn-
ari stýrði athöfninni, Lilja S. Ólafs-
dóttir aðstoðarskólameistari flutti
annál og Vilhjálmur Egilsson, rekt-
or Háskólans á Bifröst, flutti ges-
taávarp. Að lokinni brautskráningu
hélt Þórkatla Dagný Þórarinsdótt-
ir ræðu fyrir hönd útskriftarhópsins
og athöfninni lauk með ávarpi Kol-
finnu Jóhannesdóttur skólameist-
ara. Nýstúdentar sáu um tónlistar-
flutning; Magnús D. Einarsson lék
1. þátt úr 14. sónötu Beethovens,
Jóhanna María Þorvaldsdóttir
söng lag úr söngleiknum um Mary
Poppins og Magnús Kristjánsson
flutti lagið Circle of Life eftir El-
ton John. Að lokum var öllum við-
stöddum boðið til kaffisamsætis.
Ræddi um sérstöðu
lítilla framhaldsskóla
Í ávarpi Kolfinnu Jóhannesdóttur
skólameistara kom m.a. fram gagn-
rýni á nýlegar hugmyndir um sam-
einingu framhaldsskóla sem birt-
ust í skýrslu verkefnisstjórnar sam-
ráðsvettvangs um aukna hagsæld á
Íslandi. Kolfinna benti á að horfa
þyrfti á hugtök á borð við hagsæld
frá sjónarhóli fleiri en einnar fræði-
greinar. Hún nefndi að niðurstöður
margra rannsókna hafi sýnt að litlir
skólar ná betri árangri hvað náms-
gengi varðar. Kolfinna lagði áherslu
á að litlir framhaldsskólar á lands-
byggðinni hefðu á margan hátt for-
skot, skólanefndir hefðu hagsmuna
að gæta í þágu eigin samfélags, skól-
arnir væru þungamiðja samfélags-
ins, hefðu sterk tengsl við nemend-
ur og fjölskyldur þeirra og allt starf
þeirra og þjónusta væri með pers-
ónulegri hætti en í stærri skólum.
Verðlaun fyrir
námsárangur
Dúx MB að þessu sinni var Bjarki
Þór Grönfeldt Gunnarsson frá
Brekku í Norðurárdal. Hann hlaut
meðaleinkunnina 9,15. Bjarki Þór
útskrifast nú með skólasystkinum
sínum en hann lauk reyndar námi
við skólann í desember síðastliðn-
um og hefur stundað nám í sál-
fræði við Háskólann í Reykjavík á
vormisseri. Bjarki Þór hlaut fjölda
viðurkenninga fyrir góðan árang-
ur; frá Arionbanka fyrir besta ár-
angur á stúdentsprófi, frá Mennta-
Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson
er dúx Menntaskóla Borgarfjarð-
ar skólaárið 2012-2013 en hann
er frá bænum Brekku í Norður-
árdal. Bjarki er fæddur árið 1994
og verður 19 ára síðar á þessu
ári. Bjarki fékk fjölda viðurkenn-
inga á útskriftarathöfninni, bæði
fyrir góðan námsárangur sem og
starf sitt í félagslífi menntaskólans
og má því með sanni segja að þar
sé efnilegur einstaklingur á ferð.
Ekki síðri efnileg er yngri syst-
ir hans, Anna Þórhildur, sem nú
þegar hefur hafið nám í MB ein-
ungis 14 ára gömul og meira að
segja lokið stúdentsprófi í dönsku.
Anna verður 15 ára síðar á þessu
ári en hún er fædd árið 1998. Í
vor lauk hún bæði 9. og 10. bekk
í Varmalandsskóla með hæstu ein-
kunn og mun hún hefja fullt nám
á náttúrufræðibraut næsta haust í
MB, einu ári á undan jafnöldrum
sínum. Foreldrar Önnu og Bjarka
eru þau Íris Grönfeldt og Gunnar
Þór Þorsteinsson.
Í samtali við Skessuhorn sögðu
systkinin hafa alltaf átt gott með
að læra en bæði segjast þau gríð-
arlega fróðleiksfús. Þó þau deili
þörfinni til að vita meira eru sér-
svið þeirra ólík, Bjarki heillast af
hug- og félagsvísindum á meðan
Önnu þykir raunvísindaheimur-
inn heldur skemmtilegri. „Ég er
ekki mjög hrifinn af gráum svæð-
um sem mér finnst einkenna svör-
in í heimi hugvísindanna, þar eru
svörin svolítið víð. Ég vil sjá skýr
svör við hinum ýmsu spurningum
og þannig svör fást oftast í raunvís-
indaheiminum,“ segir Anna sem
kveðst hlakka til að takast á við
framhaldsskólanám næsta haust.
Bjarki brosir yfir þessum pæling-
um systur sinnar enda hafa þau
oftar rætt saman um áhugasvið sín.
Hann segist þó nær raunvísindun-
um nú um stundir en hann er í sál-
fræðinámi í Háskólanum í Reykja-
vík og segir hann systur sína fylgj-
ast með námi sínu af áhuga. Bjarki
segist ganga vel í háskólanáminu
og kveðst jafnvel hafa áhuga síð-
ar meir að sérhæfa sig í vinnusál-
fræði.
Bæði leggja þau stund á ýmis
áhugamál utan námsins. Bjarki
hefur til dæmis látið að sér kveða
á vettvangi stjórnmálanna og var á
lista Vinstri grænna í Norðvestur-
kjördæmi í síðustu alþingiskosn-
ingum. Spurð um stjórnmála-
áhuga sinn segist Anna ekki vera
jafn pólitísk og bróðir sinn. Bjarki
segir hins vegar að það eigi eftir að
koma í ljós síðar meir. „Jú, ég hef
nú ákveðnar skoðanir á því hvern-
ig eigi að stjórna landinu,“ viður-
kennir þá Anna fyrir blaðamanni.
Sjálf hefur hún meiri áhuga á tón-
list og tungumálum. Hún stundar
píanónám í Tónlistarskóla Borg-
arfjarðar og þá hefur hún áhuga á
að læra kínversku og kóresku með
tíð og tíma en hún segir menn-
ingu þessara landa heilla sig. Bæði
verða að vinna í Borgarfirði í sum-
ar, Bjarki í Safnahúsi Borgarfjaðr-
ar í Borgarnesi og Anna í Garð-
yrkjustöðinni Laugalandi í Staf-
holtstungum. Þegar sumri sleppir
hefst loks næsti áfangi á mennta-
vegi þessara efnilegu systkina úr
Norðurárdalnum. hlh
Systkinin Bjarki Þór Grönfeldt og Anna Þórhildur Gunnarsbörn frá Brekku í
Norðurárdal.
Efnileg systkini úr
Norðurárdalnum
Brautskráð frá Menntaskóla Borgarfjarðar
skóla Borgarfjarðar fyrir vand-
aðasta lokaverkefnið, frá Kaup-
félagi Borgfirðinga fyrir góðan ár-
angur í samfélagsgreinum og frá
Kvenfélagi Borgarness fyrir góðan
árangur í íslensku. Þá fékk Bjarki
Þór viðurkenningar frá Getspeki-
félagi Menntaskóla Borgarfjarðar
vegna þátttöku í spurningakeppni
framhaldsskólanna Gettu betur og
frá skólablaðinu Eglu fyrir ritstörf.
Amelia Christine Scholl hlaut
viðurkenningu frá Stofnun Vigdís-
ar Finnbogadóttur og Háskóla Ís-
lands fyrir góðan árangur í erlend-
um tungumálum.
Dagbjört Birgisdóttir hlaut við-
urkenningu frá Borgarbyggð fyrir
góð störf í þágu félagslífs nemenda
og stjórnar nemendafélagsins. Hún
fékk einnig viðurkenningu skóla-
blaðsins Eglu fyrir ritstörf.
Davíð Andri Bragason hlaut við-
urkenningu Menntaskóla Borg-
arfjarðar fyrir sjálfstæði, færni og
framfarir í námi.
Hildur Hallkelsdóttir hlaut við-
urkenningu frá danska sendiráðinu
fyrir góðan árangur í dönsku og hún
hlaut jafnframt hvatningarverðlaun
Zontaklúbbs Borgarfjarðar.
Hulda Geirsdóttir hlaut viður-
kenningu frá Háskóla Reykjavíkur
fyrir góðan árangur í raungreinum.
Svandís Björk Guðmundsdóttir
hlaut hvatningarverðlaun Heilsu-
eflandi skóla sem stýrihópur
Heilsueflandi framhaldsskóla hjá
embætti landlæknis veitir.
Þórkatla Dagný Þórarinsdótt-
ir hlaut viðurkenningu Gámaþjón-
ustu Vesturlands fyrir góðan árang-
ur í náttúruvísindum.
Mæðgin útskrifuðust
saman
Að endingu má geta þess að mæðg-
in útskrifast saman frá skólanum að
þessu sinni sem stúdentar, Guð-
lín Erla Kristjánsdóttir og sonur
hennar Sigurdór Ísak Hálfdánar-
son. Erla er lyfjatæknir og sjúkra-
liði að mennt og hefur auk þess rek-
ið hannyrðaverslun. Hún útskrifað-
ist með viðbótarnám til stúdents-
prófs. Ísak, sem útskrifaðist af nátt-
úrufræðibraut, hefur sótt um skóla-
vist við íþróttakennaradeild Há-
skóla Íslands á Laugarvatni. „Erla
er í hópi fimm kvenna sem útskrif-
uðust að þessu sinni eftir að hafa
hafið menntaskólanám á “fullorð-
insaldri”. Tilkoma MB hefur aukið
til muna möguleika þeirra einstak-
linga sem hefur langað að bæta við
menntun sína en ekki haft tök á því
að sækja hana um langan veg. All-
nokkrir „eldri“ nemendur stunda
nú nám við skólann og ekki ber á
öðru en þeir samlagist nemenda-
hópnum vel,“ segir Kolfinna Jó-
hannesdóttir, rektor skólans.
mm
Mæðginin Erla og Ísak ásamt Hálfdáni Þórissyni, eiginmanni og föður.
Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara.