Skessuhorn - 12.06.2013, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013
Fyrir tæpu ári fékk gamla Lands-
bankahúsið á Suðurgötu 57 á Akra-
nesi nýtt hlutverk eftir kaup Akra-
neskaupstaðar á húsinu í byrjun árs
2012. Frá þeim tíma hefur verið
unnið að því að koma starfsemi fyr-
ir í húsinu auk nauðsynlegra breyt-
inga og endurbóta á húsnæðinu.
Aðstandendur starfseminnar í hús-
inu fannst tími til kominn að kynna
hana og bjóða íbúum Akraness og
nágrennis að skoða aðstöðuna.
Haldið var opið hús í gamla Lands-
bankahúsinu sl. fimmtudag og kíkti
fólk í heimsókn, reyndar nokkru
færri en reiknað hafði verið með.
Forsvarsmenn starfseminnar í
húsinu er mjög ánægðir með að-
stöðuna og segja húsnæðið bjart,
rúmgott og skemmtilegt. Á jarð-
hæðinni er Símenntunarmiðstöð
Vesturlands og þar verður einn-
ig upplýsingamiðstöð fyrir ferða-
menn. Inga Dóra Halldórsdótt-
ir framkvæmdastjóri hjá Símennt-
unarmiðstöðinni segir aðstöðuna
gjörbreytta á Akranesi. „Áður vor-
um við hingað og þangað, má segja
í misjafnlega góðri aðstöðu. Nú
erum við með alla starfsemina á
einum stað; skrifstofu, námsráðgjöf
og kennslu,“ sagði Inga Dóra. Á
annarri húð hússins eru Skagastað-
ir, athafnasetur fyrir atvinnuleit-
endur á aldrinum 16-30 ára í öðr-
um endanum og í hinum eru starfs-
fólk heimaþjónustu og búsetuþjón-
ustu Akraneskaupstaðar. Sú starf-
semi hafði ekki neina aðstöðu áður
og var því mjög létt yfir starfsfólk-
inu í þessari þjónustu hjá kaup-
staðnum í opna húsinu á fimmtu-
daginn. „Þetta er þvílíkur munur að
vera nú kominn með þennan sama-
stað hér,“ sagði starfsfólkið.
Á efstu hæð gamla Landsbanka-
hússins er svo endurhæfingarhús-
ið HVER. Thelma Hrund Sig-
urbjörnsdóttir forstöðumaður
HVERS sagði um stórbætta að-
stöðu að ræða. „Hún er til bóta
fyrir alla starfsemina, svo sem til
fræðslu, viðtala og iðju. Það er mun
rýmra á okkur við matarborðið hér
en á gamla staðnum, enda þurfum
við pláss fyrir 25-30 manns sem
stundum eru hérna í hádeginu. Það
er allt bjartara hérna og það létt-
ir væntanlega lundina. Svo er ég
komin með hálfgerða bankastjóra-
skrifstofu,“ sagði Thelma Hrund
létt í bragði.
þá
Umboðsmaður skuldara segir nið-
urstöðu Hæstaréttar, sem nýverið
var felldur, í máli Plastiðjunnar ehf.
marka tímamót varðandi réttar-
stöðu lántaka vegna endurútreikn-
ings ólögmætra gengistryggðra
lána. Fordæmisgildi dómsins sé
skýrt og hvetur umboðsmaður fjár-
málafyrirtæki til að hraða endurút-
reikningi lána í samræmi við það.
Umboðsmaður skuldara vann álit-
ið að beiðni Eyglóar Harðardóttur,
félags- og húsnæðismálaráðherra
sem segir mikilvægt að þessari
óvissu hafi nú verið eytt. „Ég vænti
þess að fjármálastofnanir muni nú
hefja endurreikninga tafarlaust og
gera það fljótt og vel.“
Í málinu, nr.50/2013, komst
Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu
að Landsbankanum væri óheim-
ilt að krefja Plastiðjuna um óverð-
tryggða vexti Seðlabanka Íslands
fyrir liðna tíð. Að mati umboðs-
manns skuldara er því nú komið
skýrt fordæmi frá Hæstarétti um
að óheimilt sé að endurreikna lán
til skemmri tíma, t.d. bílalán, með
vöxtum SÍ aftur í tímann a.m.k. í
þeim tilfellum þar sem vextir hafa
verið greiddir og fullnaðarkvitt-
un liggur því til grundvallar. Um-
boðsmaður telur fordæmið víðtækt
og taki ekki einungis til lána Lands-
bankans sem aðila að málinu heldur
einnig til annarra lánastofnana sem
veitt hafa ólögmæt gengistryggð
lán til skemmri tíma.
Umboðsmaður skuldara telur
ljóst af niðurstöðu dómsins að end-
urreikna beri meginþorra skamm-
tímalána í samræmi við upp-
gjörsaðferð Hæstaréttar í máli nr.
464/2012. Í því felst að afborganir af
höfuðstól lánssamnings, sem inntar
hafa verið af hendi til og með þess
tíma er viðkomandi samningur var
endurreiknaður, komi að fullu til
frádráttar upphaflegum höfuðstól,
sem ber hvorki gengistryggingu né
verðbætur af öðrum toga. Fjárhæð
greiddra vaxta hefur þar ekki áhrif,
enda teljast þeir að fullu greiddir
vegna þessa tímabils. Embætti um-
boðsmanns skuldara leggur áherslu
á mikilvægi þess að endurútreikn-
ingum fjármálafyrirtækja verði
hraðað eins og unnt er. „Fordæmis-
gildi dómsins er skýrt og ekkert að
vanbúnaði að hefja endurútreikn-
ing samkvæmt honum þegar í stað“
segir í áliti umboðsmanns.
Athygli er vakin á því að á vef
embættis umboðsmanns skuldara
er reiknivél sem byggir á uppgjörs-
aðferð Hæstaréttar. mm
Hanna Birna Kristjánsdóttir inn-
anríkisráðherra veitti í síðustu viku
forsvarsmönnum Landhelgisgæsl-
unnar heimild til að ganga til samn-
inga vegna áframhaldandi leigu á
tveimur björgunarþyrlum til fjög-
urra ára. Landhelgisgæslan hef-
ur nú þegar gengið frá samning-
um vegna leigunnar. „Með leigu-
samningnum hefur verið eytt þeirri
óvissu sem ríkt hefur í þyrlubjörg-
unarmálum Landhelgisgæslunnar.
Í framhaldi af þessari niðurstöðu
mun ráðherranefnd um ríkisfjármál
taka ákvörðun um tímasetningu út-
boðs vegna kaupa á langdrægum
björgunarþyrlum sem framtíðar-
lausn í þyrlubjörgunarmálum þjóð-
arinnar. Georg Lárusson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, var afar sátt-
ur við þessa niðurstöðu og ákvörð-
un ráðherra enda í samræmi við til-
lögu Landhelgisgæslunnar,“ segir
í tilkynningu frá Landhelgisgæsl-
unni. mm
Hraði endurútreikningi
gengistryggðra ólögmætra lána
Ráðherra og forsvarsmenn Landhelgisgæslunnar.
Óvissu vegna þyrlumála eytt
Gamla Landsbankahúsið á Akranesi opnað
formlegra með nýrri starfsemi
Inga Dóra Halldórsdóttir framkvæmdastjóri og Hekla Gunnarsdóttir verkefnis-
stjóri hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands.
Thelma Hrund Sigurbjörnsdóttir forstöðukona HVERS endurhæfingarhúss.
Vinkonurnar Salvör Ragnarsdóttir og Gréta Ólafsdóttir voru meðal gesta.
Starfsfólk heimaþjónustu og búsetuþjónustu Akraneskaupstaðar; Ástrós Una
Jóhannesdóttir, Minney Ragna Eyþórsdóttir, Valgerður Kristín Guðbjörnsdóttir og
Rut Hjartardóttir.
Signý Jóhannesdóttir formaður Stéttarfélags Vesturlands, Helga Gunnarsdóttir
framkvæmdastjóri Fjölskyldustofu Akraneskaupstaðar og Ingibjörg Gestsdóttir
sem starfar við upplýsingamið ferðamanna.
Hjónin Bragi Þórðarson og Elín Þorvaldsdóttir litu við í heimsókn og eru hér á
spjalli við Gest Friðjónsson.