Skessuhorn - 12.06.2013, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013
Á föstudaginn fór fram á Hótel
Borgarnesi fyrsta úthlutun Fram-
kvæmdaráðs Vesturlands til verk-
efna sem valin voru í Sóknaráætlun
Vesturlands fyrir árið 2013. Átta
verkefni fengu styrki, samtals 24,1
milljón króna. Hæsta styrkinn fékk
Háskólinn á Bifröst, samtals 10
milljónir króna sem verður nýtt-
ur í verkefni til að auka samstarf
skóla og atvinnulífs á Vesturlandi.
Markaðsátak fyrirtækja í ferða-
þjónustu frá Eldborg á Mýrum að
Bíldudal til eflingar ferðaþjónustu
utan háannatíma fékk 4,5 millj-
ónir króna, Dalabyggð fékk fjór-
ar milljónir króna vegna dreifnáms
í Dölum, Treasures ehf. fékk eina
milljón til verkefnisins Norðurljós
yfir Snæfellsjökli, Vör Sjávarrann-
sóknarsetur fékk 1,5 milljón vegna
verkefnisins Þorskaslóð, Hildur
Björnsdóttir og Hafdís Bergsdótt-
ir á Akranesi fengu eina milljón í
verkefnið Skagaferðir, Ferðaþjón-
ustan Þórisstaðir og Snilldarferð-
ir ehf. fengu 1,15 milljón vegna
verkefnis til að auka afþreyingu á
Vesturlandi og þá fékk Þórishólmi
ehf. eina milljón til að þróa nýjar
leiðir til vinnslu og veðmætaaukn-
ingar á ígulkerum.
Að auki mun Framkvæmdaráð
úthluta 21,7 milljón króna til ann-
arra verkefna til eflingar ferða-
þjónustu utan hefðbundins ferða-
mannatíma, til verkefnis tengt efl-
ingu matvælaiðnaðar á Vestur-
landi og til ímyndarverkefna tengd
Grundartangasvæðinu. Tilkynnt
verður á næstu vikum um úthlut-
un til þeirra. Val verkefna byggð-
ist á greiningarvinnu Byggðastofn-
unar og Atvinnuráðgjafar Vestur-
lands en það var Framkvæmdaráð
sem tók endanlega ákvörðun um
úthlutun. Í samtali við Skessuhorn
sagði Gísli Gíslason, formaður
stjórnar Framkvæmdaráðsins, að
vonir standi til að góður árangur
náist í þeim sprotum sem verið er
að stinga út og að þeir leiði af sér
fleiri sprota. „Þetta eru allt mjög
skemmtileg verkefni sem dreif-
ast vítt um héraðið. Að baki þeim
stendur áhugasamt fólk og von-
andi að það kveiki í fleirum til að
nýta þau tækifæri sem eru á Vest-
urlandi,“ sagði Gísli.
Samstarf efli fyrirtæki
og atvinnulífið
Markmið Háskólans á Bifröst með
Félagar í Björgunarfélagi Akra-
ness hafa tekið að sér að veita leið-
sögn fyrir gönguhópa á Akrafjall
tvö kvöld í viku í sumar. Daní-
el Magnússon félagi í BA fer fyr-
ir hópi í Björgunarfélaginu sem
ætlar að mæta í þessa leiðsögn
að bílaplaninu við rætur Akra-
fjalls á þriðjudögum og fimmtu-
dögum klukkan 18. „Fólk getur
safnast saman við planið eða haft
samband við mig í síma 844 7881.
Við erum nokkrir strákar í þessu,
erum náttúrlega í vinnu og skipt-
um þessu á milli okkar,“ segir
Daníel. Hann segir að lítil reynsla
sé komin á það ennþá hve mikil
eftirspurn verði eftir leiðsögn á
fjallið. „Við byrjum á að fara upp
Selbrekkuna og síðan er það eftir
óskum hópanna á hvern tindanna
við förum, yfirleitt ekki þá alla í
sömu ferðinni,“ segir Daníel.
Hann sagði að það hefði verið að
ósk aðila í ferðaþjónustu á Akra-
nesi sem Björgunarfélag Akraness
ákvað að bjóða upp á þessa þjón-
ustu. þá
Þumallinn á Akrafjalli á leiðinni á
Háahnjúk.
Veita leiðsögn á Akrafjallið
Fyrsta úthlutun vegna Sóknaráætlunar Vesturlands
verkefni sínu er að auka tengsl milli
skólans og fyrirtækja á Vesturlandi.
Um er að ræða samstarf við lítil og
meðalstór fyrirtæki á svæðinu um
gerð rekstraráætlana, þ.m.t í land-
búnaði, og binda forsvarsmenn
Bifrastar vonir við samstarf við
Landbúnaðarháskólann á Hvann-
eyri í því sambandi. Meginmark-
mið verkefnisins er að gefa nem-
endum á Bifröst kost á að glíma
við raunveruleg verkefni. „Við vilj-
um biðja atvinnulífið um að hjálpa
okkur við að mennta nemendur
okkar og er ég sannfærður um að
þeir geta gert heilmikið gagn fyr-
ir fyrirtækin í leiðinni,“ sagði Vil-
hjálmur Egilsson verðandi rektor
Háskólans á Bifröst um verkefnið.
„Það þarf víða að fara í gegnum
áætlanagerð og ýmsa grunnþætti í
rekstri fyrirtækja sem oft verða út-
undan í daglegu amstri. Því er um
að gera að leyfa nemendunum að
glíma við svona verkefni og hjálpa
til. Það getur bara eflt fyrirtækin
og atvinnulífið á svæðinu.“
Lengja
ferðamannatímann á
Snæfellsnesi
Samstarfsverkefni fyrirtækja í
ferðaþjónustu frá Eldborg á Mýr-
um að Bíldudal fékk 4,5 milljón-
ir króna úthlutað til að vinna sam-
eiginlega að markaðsrannsókn-
um, afurðaþróun og kynning-
ar- og sölumálum til þess að efla
ferðaþjónustu utan háannatíma á
svæðinu. Verkefninu er ætlað að
skila árangri í hagræðingu í rekstri
þátttakenda og auknum sýnileika
þeirra á markaði. Að sögn Páls Kr.
Pálssonar hjá Sæferðum í Stykkis-
hólmi, sem tók við fjárveitingunni
fyrir hönd verkefnisins, þá telur
hann svæðið eiga mikla möguleika
á jaðartímabilunum svokölluðu en
hópurinn horfir til tímabilanna
september – nóvember og febrúar
– maí. „Svæðið býður upp á margt
á þessum tíma, bæði á landi og
sjó, sem getur dregið að ferðafólk.
Fyrstu skref í verkefninu verður að
skilgreina markhópa okkar í átak-
inu en það gerum við á grund-
velli gagna og markaðsrannsókna
sem gerðar hafa verið. Sú vinna fer
fram í júní og júlí. Í framhaldinu
ætlum við að búa til ramma utan
um þær vörur sem við hyggjumst
bjóða upp á,“ segir Páll.
Dreifnám í Dölum
Verkefnið dreifnám í Dölum fékk
fjórar milljónir króna til að koma á
fót svokölluðu framhaldsnámi í sveit-
arfélaginu í samtarfi við Mennta-
skóla Borgarfjarðar. Dreifnám tekur
til fyrstu tveggja áranna í mennta-
skóla. Verkefnið felst í því að bæta
aðgengi íbúa að framhaldsmenntun
og er fyrirmynd dreifnámsins sótt til
Hvammstanga og Vesturbyggðar.
„Styrkurinn verður nýttur til und-
irbúnings á stofnun dreifnámsins,
meðal annars til greiningarvinnu og
áætlanagerðar. Við munum skoða á
næstu dögum hvort að við getum
boðið upp á dreifnámið strax í haust
eða að ári,“ sagði Sveinn Pálsson,
sveitarstjóri Dalabyggðar.
Norðurljós yfir
Snæfellsjökli
Það er Pauline McCarthy í Treas-
ures ehf. sem hefur umsjón með
verkefninu Norðurljós yfir Snæ-
fellsjökli sem fékk eina milljón í sinn
hlut í úthlutuninni. Pauline hefur
fengist við hönnun og framleiðslu
á minjagripum sem skírskota til
Vesturlands undanfarin ár en verk-
efnið sem fær styrk nú snýr að því
að útbúa bauk sem inniheldur hand-
gert sælgæti frá Vesturlandi. Snæ-
fellsjökull mun prýða baukinn og
ásamt sælgætinu verður inni í hon-
um smágerður bæklingur með upp-
lýsingum um jökulinn. Ætlunin er
að markaðssetja vöruna hér heima
og erlendis með það að markmiði
að vekja áhuga ferðamanna á lands-
hlutanum.
Þorskaslóð miðlað til
ferðamanna
Vör sjávarrannsóknarsetur við
Breiðafjörð fékk 1,5 milljón úthlut-
að til miðlunar á niðurstöðum þver-
fræðilegs rannsóknarverkefnis á
þorskstofninum við Íslandsstrend-
ur. Ætlunin er að miðla upplýsing-
um úr verkefninu til ferðamanna og
almennings með upplýsingaskilt-
um, sýningum á einstökum svæð-
um, með stafrænni framsetningu
á vefsíðu og með smáforriti fyr-
ir snjallsíma og spjaldtölvur. Rann-
sóknarverkefnið er fjölþætt en í því
hefur m.a. verið fjallað um sveiflur
í vistkerfi sjávar, veðurfarsbreyting-
ar og áhrif þorsksins á þróun sjáv-
arbyggða á Snæfellsnesi og annars
staðar á Vesturlandi.
Skagaferðir
Ferðaþjónustan Skagaferðir fékk
eina milljón króna í styrk en það sér-
hæfir sig í pakkaferðum um Akranes
og nærsveitir fyrir ungt fólk. Mark-
hópur Skagaferða eru efri bekkir
grunnskóla og framhaldsskóla auk
útskriftarhópa, og er markmið ferð-
anna að hvetja ungt fólk til útivistar
og skemmtunar yfir sumartímann.
Einnig er ætlunin að auka ferða-
mannastraum til Akraness. Það eru
þær Hildur Björnsdóttir og Haf-
dís Bergsdóttir sem standa að baki
Skagaferðum og ætla þær að leggja
áherslu á útivist, ævintýri og hreyf-
ingu í Skagaferðum, en öðrum þræði
líta þær á framtakið sem lið í að efla
afþreyingarmöguleika á Akranesi.
Aukin afþreying á
Vesturlandi
Ferðaþjónustan Þórisstaðir og
Snilldarferðir ehf. á Þórisstöðum í
Hvalfjarðarsveit fengu 1,15 millj-
ón króna úthlutaða til að efla fjöl-
breytni í afþreyingarmöguleikum á
Vesturlandi. Fyrirtækin á Þórisstöð-
um hafa á prjónunum að bjóða upp
á margvíslega afþreyingu allt árið
svo sem skipulagðar fjórhjólaferðir,
gönguferðir, bátaferðir og lazertag.
Með því að fjölga afþreyingarmögu-
leikum verður stuðlað að fjölg-
un ferðamanna á Vesturlandi auk
þess sem verkefnið styrkir grund-
völl annarra ferðaþjónustufyrirtækja
á svæðinu.
Ígulkeravinnsla efld
Fyrirtækið Þórishólmi ehf. í Stykk-
ishólmi fékk loks í sinn hlut eina
milljón króna til að þróa nýjar leiðir
til vinnslu og verðmætaaukningar á
ígulkerum. Verkefnið verður unnið
í samstarfi við Matís. Í umsögn um
verkefnið segir að vonir standi til að
það skili af sér verðmætaaukningu í
útflutningi á ferskum afurðum, nýrri
þekkingu og fjölgun starfa. hlh
Styrkþegar og forsvarsmenn sóknaráætlunar tókust í hendur að undirskrift lokinni á föstudaginn.