Skessuhorn - 12.06.2013, Blaðsíða 19
19MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013
gler og speglar 54 54 300 • smiðjuvegi 7 • kópavogi
einangrunargler
sandblásið gler • k-gler
sjálfhreinsandi gler
speglar • o.fl. o.fl.
sendum
um
allt land
síðan 196
9
allt
í gleri
allt að
80%
minna gegnumflæði
hita og óþægilegra
ljósgeisla
vottuð framleiðsla
sólvarnargler
handrið & skjólveggir
ÚTBOÐ
Orkuveita Reykjavíkur og Akraneskaupstaður
óska eftir tilboðum í verkið:
Endurnýjun gangstéttar og veitulagna
Krókatún Akranesi
Verkið felst í að endurnýja gangstétt, götulýsingu og veitulagnir á um
200 m kafla við Krókatún milli Vesturgötu og Grundartúns. Verkið er
nánar skilgreint í útboðsgögnum ORV 2013/01.
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og
með miðvikudeginum 12. júní 2013
á vefsíðu Orkuveitunnar www.or.is/UmOR/Utbod.
Tilboð verða opnuð hjá Orkuveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík, fimmtudaginn 27. júní 2013 kl. 11:00.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Ljómalind - sveitamarkaður
Sólbakka 2, Borgarnesi
S: 437-1400
Opið mánudaga-fimmtudaga frá kl. 10-18,
föstudaga frá kl. 10-19 og um helgar frá kl. 11-16
Í liðinni viku tók til starfa nýtt
ferðaþjónustufyrirtæki í Reykholts-
dal í Borgarfirði. Fjögur systkini frá
Grímsstöðum hafa tekið sig saman
og stofnað veitingastaðinn Sveita-
kaffi og jafnframt tekið á leigu
golfskálann Byrgishól sem er við
Reykholtdalsvöll, í Nesi. Jarðirnar
Grímsstaðir og Nes liggja einmitt
saman, nokkru neðar í norðanverð-
um dalnum en Reykholt. Systkinin
heita Kristbjörg, Hannes, Gréta og
Jóhanna Sjöfn, Guðmundarbörn.
Öll stunda þau aðra vinnu en munu
skipta á milli sín verkum og nýta
hæfileika sína hvert á sínu sviði.
Hannes er lærður matreiðslumaður
og rak meðal annars veitingastaðinn
Madonnu í Reykjavík þar til á síð-
asta ári. Kristbjörg rekur ásamt Sig-
urði Braga Sigurðssyni eiginmanni
sínum trésmíðaverkstæðið Fanntó-
fell í Reykjavík, en það fyrirtæki hóf
einmitt göngu sína í Reykholti fyr-
ir um kvartöld. Gréta starfar sem
lyfjatæknir í Reykjavík en Jóhanna
Sjöfn býr og starfar í sveitinni, rek-
ur m.a. Hönnubúð í Reykholti og
framleiðir auk þess smyrsl úr ís-
lenskum jurtum, en hún er mennt-
uð í ferðamálafræðum. Blaðamað-
ur Skessuhorns settist niður með
þeim Hönnu Sjöfn og Kristbjörgu
í síðustu viku og fékk að forvitnast
lítillega um væntanlega starfsemi í
Sveitakaffi.
„Við ætlum að gera þessa til-
raun að reka góðan veitingastað
hér í sveitinni og trúum því að þörf
sé fyrir þjónustu af þessu tagi. Hér
mun ferðaþjónusta eflast á næstu
árum. Um leið tókum við að okkur
að þjónusta golfspilara hér á Reyk-
holtsdalsvelli, sem er 9 holu golf-
völlur, og munum einnig sjá um
gistiheimilið í Nesi, en í tveimur
elstu bæjarhúsunum hefur Bjarni
Guðráðsson bóndi og eigandi alls
hér komið upp gistingu undir nafni
Ferðaþjónustu bænda. Þar er gisti-
pláss fyrir 14 manns í átta her-
bergjum. Samningurinn við Bjarna
byggist einmitt á því að hann legg-
ur okkur til aðstöðuna en leiguna
greiðum við með því að vinna við
gistiheimilið og þjónustu við golf-
spilara,“ segja þær Kristbjörg og
Hanna Sjöfn.
Hráefni úr sveitinni nýtt
til fullnustu
Á veitingastaðnum Sveitakaffi verð-
ur opið frá 9-21 alla daga. „Við ætl-
um að leggja mikla áherslu á að nýta
til matargerðar það sem framleitt
er og vex hér í sveitinni, svona „Lo-
cal food“. Við systkinin erum sann-
færð um að hvergi sé betra hráefni
að fá en hér á svæðinu og ætlum því
ekki að leita yfir lækinn til að reyna
að nálgast eitthvað annað. Kjötið
verður t.d. frá bændum hér, fisk-
ur m.a. úr vötnunum á Arnarvatns-
heiði, sveppir og bláber úr sveitinni
og krydd úr móum og holtum. Sal-
atið kaupum við t.d. úr ræktun Ír-
isar á Kjalvararstöðum og móð-
ur okkar, Steinunnar á Grímsstöð-
um, en þær rækta báðar frábært sal-
at. Grænmetið kemur svo úr rækt-
un garðyrkjubænda hér í sveitinni,
það besta sem völ er á.“
Dagsstund í sveitinni
Sveitakaffi býður einnig upp á skipu-
lagningu afþreyingar undir nafninu
Dagsstund í sveitinni. „Okkur lang-
ar að bjóða upp á dagsstund fyrir
hópa, þar sem lögð verður áhersla
á náttúruna og þessa miklu matark-
istu sem Borgarfjörðurinn er. Dag-
skráin gæti orðið þannig að gestir
mæta að morgni hingað í Sveita-
kaffi og fá morgunmat. Þeir taka
þátt í að hræra í hverabrauð og gera
tilbúið í einhvern af hverum sveit-
arinnar þar sem það bakast á með-
an annað verður gert. Boðið verður
upp á gönguferðir, jurtasöfnun og
ýmsa dagskrá, svo sem óvissuferð
með kokkinum, og síðdegis farið að
elda kvöldverð sem unninn verður
úr hráefni sem þátttakendur taka
þátt í að safna og velja. Kvöldverð-
ur verður svo framreiddur og hans
notið í kvöldkyrrðinni, farið í heita
pottinn og reynt að skapa skemmti-
lega stemningu, nú eða spila einn
golfhring hér á vellinum,“ segja
þær systur.
Loks segja þær að í undirbún-
ingi sé að opna síðar í sumar sveita-
markað í gömlu hlöðunni í Nesi, en
það hafi sýnt sig að vaxandi eftir-
spurn sé eftir að kaupa ýmsan varn-
ing beint frá býli.
Nánari upplýsingar um Sveita-
kaffi má finna á samnefndri Sveita-
símasíðu (e. Facebook) og á slóð-
inni www.nesreykholt.is
mm
Sveitakaffi er til húsa í golfskálanum Byrgishól í Nesi.
Sveitakaffi mun leggja áherslu
á hráefni úr sveitinni
Allt klárt fyrir komu gesta í notalegu umhverfi í Byrgishól. Gamla orgelið í Nesi í
bakgrunni.
Jóhanna Sjöfn og Kristbjörg Guðmundsdætur.
Í elstu tveimur íbúðarhúsunum í Nesi er rekið gistiheimili.