Skessuhorn - 12.06.2013, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013
Veiðivörur fyrir
fjölskylduna
Baulan - Sími 435-1440 Afgreiðslutímiþriðjud. til föstud. 12.30 – 18.00
Veiðivörur í miklu úrvali
Stekkjarholti 8-10 • Akranesi • 431 4318 • 894 2298
www.veidibudin.is • veidibudin@veidibudin.is
Veiðivörur í úrvali Spúnar
Kaststangir
Veiðihjól
Fluguhjól
Flugur
Vöðlur
Flugustangir Spúnabox
Veiðitöskur Gervibeita Silunganet
Opið á
laugardögum
10-16
Nafn: Jón Ásgeir Sigurvinsson.
Starfsheiti/fyrirtæki: Veiðivörð-
ur við Norðurá í Borgarfirði
Fjölskylduhagir/búseta:
Kvæntur sr. Elínborgu Sturlu-
dóttur, búsettur í Stafholti.
Áhugamál: Búinn að gleyma
hver þau voru eitt sinn.
Vinnudagurinn 9.6.2013:
Mætt til vinnu? Var kominn að
Glanna um sjöleytið þar sem ég
las af teljara við laxastiga hversu
margir laxar voru gengnir upp
stigann sem og hitastig vatnsins.
Að því loknu fór ég í veiðihús til
þess að kanna hvað hefði veiðst
á síðustu vakt. Tók hreystur-
sýni af fiski í kæligeymslu. Sýn-
inu ásamt fleiri slíkum kem ég
síðan til Veiðimálastofnunar til
rannsóknar.
Fyrir hádegi fór ég í eftirlits-
ferð og síðan heim þar sem ég
sló grasflötina og snæddi hádeg-
isverð.
Um hálf tvö fór ég upp í veiði-
hús til að fá lokastöðu á veiði
fráfarandi holls og taka á móti
nýjum veiðimönnum. Um hálf-
fjögur voru allir veiðimenn
komnir og ég búinn að láta þá
draga um veiðisvæði en veiði á
kvöldvakt hefst kl. 16.
Eftir kvöldmat fór ég í eftirlits-
ferð, skráði veiði í Skrínu, raf-
ræna veiðibók í netinu, og tók
síðan á móti veiðimönnum, sem
voru að koma í veiðihúsið í Mel-
koti, kl. 22:30 og gaf þeim ráð
og leiðbeiningar.
Fastir liðir alla daga? Það telst
m.a. til fastra liða að lesa af telj-
ara í Glanna, fara í eftirlitsferð-
ir, fylgjast með kæligeymslu í
veiðihúsi og taka hreystursýni ef
mögulegt er.
Hvað stendur upp úr eftir
vinnudaginn? Að fyrsti laxinn
veiddist í Stekknum um morg-
uninn.
Var dagurinn hefðbundinn?
Já.
Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi? Í júní 2012.
Er þetta framtíðarstarfið þitt?
A.m.k. fram á haust.
Hlakkar þú til að mæta í vinn-
una? Það fer eftir ýmsu.
Eitthvað að lokum? Betri er
slepptur lax en enginn.
Dag ur í lífi...
Veiðivarðar
Skessuhorn mun á næstu vikum fylgj-
ast með gangi mála í lax- og silungs-
veiðinni á Vesturlandi. Veiðimenn,
landeigendur og aðrir sem stunda
eða tengjast stangveiði eru hvattir til
að senda ritstjórn myndir og fregnir
af gangi mála. Netfangið er: skessu-
horn@skessuhorn.is
„Þetta veit á mjög gott sumar,
nú koma yfir 2.000 laxar á land,“
sagði Bjarni Júlíusson formaður
Stangveiðifélags Reykjavíkur glað-
ur í bragði eftir að hafa veitt fyrsta
lax sumarsins eftir einungis tveggja
mínútna veiði við opnun Norður-
ár í Borgarfirði sl. miðvikudag. Veiði
í ánni hófst á slaginu klukkan sjö og
fékk Bjarni 72 sm hrygnu í þriðja kasti
í Brotinu við Laxfoss á fluguna Black
Eyed Prawn. Það var félagi hans Árni
Friðleifsson varaformaður SVFR
sem aðstoðaði Bjarna við löndunina
áður en hann renndi sjálfur fyrir fisk,
með góðum árangri. Fyrsta laxinum
var sleppt eftir mælingu og mynda-
töku þar sem stór hópur fréttamanna
var saman kominn á árbakkanum.
Bjarni sagði laxinn vænan, lítið eitt
lúsugan en tiltölulegan nýgenginn.
„Oft hefur þurft lengri tíma til að
veiða fyrsta laxinn við opnun Norð-
urár og er þessi skjóta veiði til vitn-
is um að áin á eftir að gefa vel af sér
í sumar,“ bætti Bjarni við. Gott veð-
ur var við opnun Norðurár, en við-
staddir hana voru meðal annarra
stjórn SVFR, stjórnarmenn í Veiði-
félagi Norðurár, starfsfólk veiðihúss-
ins á Rjúpnahæð auk hóps ljósmynd-
ara og blaðamanna eins og fyrr seg-
ir. Níu laxar til viðbótar við hrygnu
Bjarna formanns áttu svo eftir að
bætast við á fyrstu vaktinni á mið-
vikudaginn og sl. sunnudag voru 30
laxar komnir á land.
Opnun Norðurár markar sem
fyrr upphaf laxveiðitímabilsins en
sama dag hófst reyndar einnig veiði í
Blöndu. Fleiri ár verða svo opnaðar á
næstu dögum. Víða hafa menn verið
að kíkja eftir fiskum og séð líf. Þann-
ig hefur t.d. frést af göngum af fiski
í Haukadalsá í Dölum. Í Straumun-
um, ármótum Norðurár og Hvítár er
ágætt líf sem og í Brennunni. Veiði
hefst í dag í Þverá og um næstu helgi
í Kjarará.
Arnarvatnsheiðin opnuð
að hluta
Veiðifélag Arnarvatnsheiðar mun
hefja sölu veiðileyfa á sunnanverða
heiðina næstkomandi laugardag, 15.
júní. Að sögn Snorra Jóhannesson-
ar veiðivarðar er klaki ekki enn far-
inn úr jörðu á heiðinni og því eru
ákveðnir vegaslóðar viðsjárverð-
ir og jafnvel ófærir. Þá er mikið vatn
í Norðlingafljóti og getur það verið
varasamt nema á stærstu bílum. Fyrst
í stað verður af þessum sökum bann-
að að aka t.d. í Hlíðarvatn og veiði-
menn almennt hvattir til að ganga
fremur en freista þess að aka um ill-
færa vegi með tilheyrandi hættu á
landsspjöllum. Jörð hefur verið auð
á Arnarvatnsheiði og þess vegna hef-
ur klaki farið síðar úr jörðu en mörg
undangengin ár. Engu að síður er
hægt að komast fjölfarnari vegi eins
og að veiðihúsunum við Úlfsvatn og
Arnarvatn litla. Nánari upplýsing-
ar um færð, sölu veiðileyfa og ann-
að er hægt að fá á heimasíðu félags-
ins: www.arnarvatnsheidi.is
mm/hlh
Ertu búinn að fá þér
Veiðikortið!
www.veidikortid.is
Veiðitímabilið er byrjað. Kr. 6.900.-
00000
Fyrsti lax sumarsins beit á í þriðja kasti
Stjórnarmenn SVFR umkringdir blaðamönnum og ljósmyndurum á bökkum
Norðurár. Ljósm. hlh.
Bjarni Júlíusson formaður SVFR og Árni Friðleifsson varaformaður með fyrsta lax
sumarsins í Norðurá. Ljósm. hlh.