Skessuhorn


Skessuhorn - 12.06.2013, Qupperneq 30

Skessuhorn - 12.06.2013, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 2013 Hvaða frægu persónu myndir þú helst vilja hitta? Hilmar Orri Jóhannsson: Steven Gerrard. Monika Eiðsdóttir: Justin Bieber. Hrönn Þorsteinsdóttir: Hljómsveitarmeðlimi One Di- rection. Kristbjörg Ásta Viðarsdóttir: Beyoncé. Svanlaugur Atli Jónsson: Eminem. Spurning vikunnar (Spurt í Grundarfirði) Golfvertíðin er nú gengin í garð og koma golfvellirnir fjórir á Snæ- fellsnesi vel undan vetri. Starf golf- klúbbanna sem þá reka er komið á fullt skrið og ýmis verkefni í píp- unum. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í formönnum golfklúbbanna á Snæfellsnesi í síðustu viku og for- vitnaðist um hvað væri á döfinni í starfi þeirra. Nýtt æfingasvæði opnað í sumar Dagný Þórisdóttir er formaður Golfklúbbsins Mostra í Stykkis- hólmi. Hún segir Víkurvöll koma vel undan vetri og leggist golfsum- arið framundan vel í klúbbmeðlimi. Í sumar verður tekið í notkun nýtt æfingasvæði á vellinum sem mun gjörbylta aðstöðu þar til æfinga. Á æfingasvæðinu verður hægt að æfa vipp, þar verður ný æfingaflöt til að æfa pútt og loks stórt æfinga- svæði þar sem hægt verður að æfa önnur högg. Gestir æfingasvæð- isins munu eiga þess kosts að geta fengið leigðar kúlur úr sjálfvirkri boltavél. Dagný segir framkvæmd- ir á lokastigi og býst hún við að æf- ingasvæðið verði tekið formlega í notkun seinni part sumars. Að öðru leyti er rekstur GMS með svipuðu sniði og fyrri ár. Klúbburinn sér um rekstur tjaldstæðisins í Stykkishólmi og selur inn á það í klúbbhúsinu þar sem einnig er starfrækt upplýsinga- miðstöð ferðamanna. Alls vinna sjö starfsmenn hjá Mostra í sumar, bæði við afgreiðslustörf í golfskála og við hirðingu Víkurvallar. Fjöldi golfmóta er loks á dagskrá í sumar segir Dagný, meðal annars Plássið – Open 15. júní, keppni í 2. deild kvenna í Sveitakeppni Golfsam- bands Íslands í ágúst og loks hið ár- lega Opna Hótel Stykkishólmur í byrjun september. Áhersla lög á unglingastarf „Bárarvöllur er í góðu ástandi og kemur vel undan vetri. Við erum búin að spila inn á flatir í allt vor,“ sagði Dagbjartur Harðarson for- maður Golfklúbbsins Vestarr í Grundarfirði spurður um ástand Bárarvallar í upphafi sumars. Hann segir golfvertíðina fara vel af stað og hefur verið góð mæting í mót klúbbsins í vor. Sem dæmi hafi 70 kylfingar mætt til leiks á Sjómanna- dagsmót G. Run sem klúbburinn hélt í lok maí. „Í tengslum við mót- ið gaf G. Run klúbbnum holubolla, flaggstangir og flögg á flatir vallar- ins. Vestarr á góða bakhjarla sem styðja við starf hans með mynd- arlegum hætti og verður stuðn- ingurinn seint fullþakkaður,“ seg- ir Dagbjartur. Fleiri mót eru á döf- inni hjá Vestarr í sumar á borð við Soffamótið á bæjarhátíðinni Á góðri stundu í júlí og mót í Snæ- fellsnessmótaröðinni í júlí, sem er keppni golfklúbbanna á Snæfells- nesi. Dagbjartur segir að ekki séu stórar framkvæmdir fyrirhugaðar á Bárarvelli í sumar heldur verði lögð áhersla á almenna snyrtingu, gerð blómabeða og snyrtingu göngu- stíga, til að gera völlinn meira að- laðandi. Þá er nýliða- og unglinga- námskeið á dagskrá en Dagbjartur segir Vestarr leggja áherslu á upp- byggingu unglingastarfs. Alls eru fjórir starfsmenn í vinnu hjá Vest- arr í sumar, bæði á golfvellinum og í afgreiðslunni í golfskála. Félagar í dag eru á bilinu 120-130, um 14% af íbúafjölda Grundarfjarðarbæjar. Teigagerð og lenging brauta Fróðárvöllur er í ágætu ásigkomu- lagi eftir veturinn að sögn Örvars Ólafssonar formanns Golfklúbbs- ins Jökuls í Ólafsvík. „Vorið var kalt til að byrja með en eftir að hitnaði í veðri fór völlurinn að taka við sér. Nú bíðum við bara eftir að hætti að rigna, þá verður hægt að fara spila á fullu,“ sagði Örvar í sam- tali við Skessuhorn í liðinni viku. Hann segir að unnið sé að nokkr- um breytingum á vellinum og verð- ur meðal annars ein braut lengd yfir í par 5 og verður þá par vall- arins 36. Á nokkrum holum hafa nýir teigar verið byggðir upp og þá hefur ný flöt verið gerð á 1. holu vallarins. Þrír vallarstarfsmenn eru í vinnu á vellinum í sumar en ekki er starfsmaður í skála. GJÓ hefur náð góðum árangri í Sveitakeppni GSÍ karla undanfarin sumur og er sveit klúbbsins í 2. deild. Keppni í 2. deild fer fram í Vestmannaeyj- um í ágúst og mun sveit klúbbsins því halda í víking til Eyja síðsum- ars. Meðal móta sem eru á dagskrá í sumar hjá GJÓ er Opna Hrað- frystihúss Hellissands 15. júní nk. og Meistaramót þann 28. júní. Garðavöllur undir jökli iðagrænn Veðrið hefur leikið við Garðavöll undir jökli í Görðum í Staðarsveit, að sögn Hauks Þórðarsonar for- manns Golfklúbbs Staðarsveitar. „Ég myndi segja að völlurinn hafi aldrei verið betri. Garðavöllur er svokallaður strandvöllur og lætur á sjá í þurrkum. Góð vætutíð hefur verið að undanförnu og því er hann iðagrænn nú um stundir,“ segir Haukur. „Nokkuð hefur verið unn- ið í lagfæringum á vellinum undan- farna mánuði og hafa verið byggð- ir upp nýir teigar á 6. og 9. holu. Þá höfum við verið að vinna að því að laga 8. flöt og taka í gegn hið fræga barð sem er við flötina og gest- ir vallarins þekkja vel.“ Golfklúbb- ur Staðarsveitar er líklega fámenn- asti golfklúbbur á Íslandi en fé- lagar eru 18 talsins, bændur og sjó- menn á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þrátt fyrir smæðina er góð stemn- ing í klúbbnum og ýmislegt jafnan á döfinni. Haukur segir klúbbfélaga sjá sjálfa um hirðingu Garðavallar og reka hann í samstarfi við Ferða- þjónustuna í Görðum, þar sem klúbbhús vallarins er. Hann segir GST eiga góða að og styrki fyrir- tæki á svæðinu starf hans af mynd- ugleika sem Haukur þakkar fyrir. Að jafnaði heldur klúbburinn eitt mót í mánuði og fór fyrsta mótið fram í lok maí, Kríumótið, að sjálf- sögðu til heiðurs kríunni. Haukur segir félaga loks bíða spennta eftir lokamóti sumarsins, Tuddamótinu í september, þar sem Guttorm- ur-Tuddi, golfklúbbur brottfluttra suður-Snæfellinga, etur kappi við heimamenn í GST. „Þá mætast stál- in stinn í hörkukeppni, en í mikilli stemningu,“ sagði Haukur að lok- um. hlh Félagar í Golfklúbbnum Jökli í Ólafsvík að loknu kveðjumóti Gústa Geirs sl. haust. Golfvellirnir á Snæfellsnesi koma vel undan vetri Frá Garðavelli undir jökli. Ljósm. Friðþjófur Helgason. Þriðja flötin á Bárarvelli í Grundarfirði. Ljósm. Guðmundur Gíslason. Nýja æfingasvæðið sem verður tekið í notkun á Víkurvelli í Stykkishólmi í sumar, séð frá golfskálanum. Ljósm. Björg Einarsd.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.