Skessuhorn


Skessuhorn - 30.04.2014, Page 15

Skessuhorn - 30.04.2014, Page 15
15MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014 Verkalýðsfélag Akraness, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, VR, FIT Félag iðn- og tæknigreina, Kennarasamband Íslands og Sjúkraliðafélag Íslands standa fyrir dagskrá á hátíðar- og baráttudegi verkafólks 1. maí 1. maí Akranesi! Félagsmenn fjölmennið! Safnast verður saman við Kirkjubraut 40, kl. 14:00 og genginn verður hringur á neðri-Skaga. Undirleik í göngu annast Skólahljómsveit Akraness. Að göngu lokinni verður hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3ju hæð Kirkjubrautar 40. Fundarstjóri: Vilhjálmur Birgisson Ræðumaður dagsins: Skafti Steinólfsson, verkamaður Grundartangakórinn syngur nokkur lög Kaffiveitingar Athugið! Frítt í bíó fyrir börnin í Bíóhöllinni kl. 15:00 S K E S S U H O R N 2 0 1 4 Kór Akraneskirkju ytur ensk og íslensk þjóðlög Sumarleg og falleg efnisskrá Stjórnandi: Sveinn Arnar Sæmundsson Aðgangseyrir kr. 1.500 (ekki tekið við greiðslukortum) Hádegistónleikar í Reykholtskirkju Laugardaginn 3. maí kl. 12 S K E S S U H O R N 2 01 4 Lausar stöður í leikskólanum Uglukletti Leikur – Virðing - Gleði Leikskólinn Ugluklettur er þriggja deilda leikskóli. Þar eru að jafnaði 65 börn á aldrinum 18 mánaða til 5 ára. Í Uglukletti byggir leikskólastarfið á hugmyndafræði Jákvæðrar sálfræði þar sem meðal annars er horft til hugmynda Mihaly Csikszentmihalyi um Flæði auk kenninga um sjálfræði barna. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu skólans www.ugluklettur.borgarbyggd.is. Leikskólakennari í 100% stöðu Menntunar- og hæfniskröfur leikskólakennara: Leikskólakennaramenntun Færni í mannlegum samskiptum Sjálfstæð vinnubrögð Skipulagshæfni, frumkvæði, áhugi og metnaður Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfé- laga og Kennarasambands Íslands. Til greina kemur að ráða starfsmenn með aðra menntun og/ eða reynslu. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2014 Matráður í afleysingar Matráð vantar í afleysingar í leikskólanum í 100% stöðu um nokkurra mánaða skeið. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Leikskólinn Ugluklettur er tilraunaleikskóli hjá landlæknisem- bættinu í verkefninu heilsueflandi leikskóli og þarf matráður að starfa í anda þess. Matráður ber ábyrgð á matseld, matseðlagerð, innkaupum, skipu-lagningu og framkvæmd starfsins í eldhúsinu í samvin- nu við leikskólastjóra. Auk þess sér matráður um þvotta. Hæfniskröfur Góð þekking á næringarfræði og hollustufæði fyrir börn á leikskólaaldri Hreinlæti og snyrtimennska skilyrði Frumkvæði, sveigjanleiki og samstarfsvilji Lipurð og færni í samskiptum Reynsla af rekstri mötuneyta kostur Í samræmi við lög um leikskóla nr. 90/2008 þurfa þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólum Borgarbyggðar að skila sakavottorði. Samkvæmt jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru jafnt karlar sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu. Ugluklettur er reyklaus vinnustaður. Umsóknum skal skilað til Kristínar Gísladóttur leikskólastjóra sem veitir nánari upplýsingar í síma 4337150, netfang; ug- luklettur@borgarbyggd.is. S K E S S U H O R N 2 01 4 Freisting vikunnar Bollakökur eða „cupcakes“ eins og þær kallast á enskunni slá oftast nær í gegn enda litríkar og gómsætar. Undirrituð hefur, við mikla ánægju annarra fjölskyldumeðlima, bakað fjöldann allan af bollakökum og gert ótal tilraunir til að reyna að finna bestu uppskriftina af klassískum am- erískum bollakökum með kremi. Eftir mikla leit og mörgum bolla- kökum síðar datt ég niður á þessa uppskrift í barnaafmæli. Kökurnar eru mjúkar og svampkenndar, alveg eins og þær eiga að vera, og alveg sérstaklega bragðgóðar. Hægt er að nota ímyndunaraflið þegar kökurnar eru skreyttar og um að gera að leika sér með fallega liti og jafnvel mis- munandi bragðtegundir á kremi. Bollakökur: 5 dl hveiti 3,5 dl sykur 3 tsk lyftiduft ½ tsk salt 4 eggjahvítur 100 g smjör 2,5 dl mjólk 2 egg 1 ½ tsk vanilludropar Aðferð: Hitið ofninn í 180 gráð- ur. Blandið saman hveiti, sykri, lyftidufti, smjöri, mjólk og van- illudropum. Þeytið á lágum hraða í um 2 mínútur. Setjið síðan eggja- hvíturnar út í og þeytið áfram á háum hraða þangað til deig- ið verður loftkennt eða í um 2 mínútur. Bætið nú eggj- unum tveimur saman við og þeytið stuttlega saman. Setjið deigið í múffuform- in og fyllið hvert form upp að um tveimur þriðju. Raðið form- unum á ofnplötu og bakið í 20-25 mínútur, stingið þá tannstöngli í eina múffuna til að sjá hvort hún sé tilbúin. Kælið kökurnar áður en kremið er sett á þær. Þessi uppskrift gerir um 24 kökur. Krem: 300 g smjör 500 g flórsykur 2 tsk vanilludropar 4 tsk heitt vatn (soðið vatn) Aðferð: Hrærið saman smjörinu og flórsykrinum með handþeyt- ara. Bætið vanilludropum og vatni saman við. Hrærið áfram þant- að til að kremið er mjúkt og fínt. Blandið matarlit saman við krem- ið. Gaman er að nota mismunandi liti, hafa t.d. þriðjungi af kreminu rautt, þriðjung grænt og þriðjung gult. Setjið kremið í kremsprautu og sprautið á múffurnar. Skreytið með kökuskrauti, sælgæti eða öðru litríku og góðu. grþ Ekta amerískar bollakökur Nú er sumarið gengið í garð og því alveg tilvalið að baka sumarlegar og góðar vanillubollakökur. Á fundi samninganefndar ASÍ með Samtökum atvinnulífsins í gær setti Alþýðusamband Íslands fram kröfu um breyttar áherslur í komandi kjaraviðræðunum. Ljóst er að til- raun til þess að gera stöðugleika- samning til lengri tíma er í upp- námi, segir í tilkynningu frá Gylfa Arnbjörnssyni forseta ASÍ. „Frá því að ríkisstjórnin gaf út yfirlýsingu í nóvember 2013 um að haga stefnu sinni og ákvörðunum út frá mark- miðum um stöðugleika og áréttaði mikilvægi samráðs um ýmis mál, einkum peningamál, hefur fátt eitt gerst annað en að stefna stjórnvalda er talin ýta undir óvissu um verðlag og gengi. Ofan í kaupið ætlar rík- isstjórnin að taka af borðinu einu trúverðugu leiðina í peningamálum með því að slíta aðildarviðræðum við ESB,“ segir Gylfi. „Ríkisstjórn og sveitarfélög hafa að undanförnu samþykkt veru- leg frávik frá þeirri meginlínu sem lá til grundvallar kjarasamning- unum sem gerðir voru í desemb- er 2013 og febrúar 2014. Aðildar- samtök ASÍ geta ekki við það unað að launafólki sé mismunað með þessum hætti. Það getur ekki ver- ið þannig að almennt launafólk beri eitt ábyrgð á stöðugleika og lágri verðbólgu á meðan aðrir sæki sér meiri kaupmáttarauka með meiri launahækkunum. Það verða all- ir að axla ábyrgð. Eins og þróun verðlags undanfarna mánuði sýn- ir var raunverulegur möguleiki á því að koma hér á nýju og breyttu vinnulagi sem lagt gæti grunn að varanlegum stöðugleika. Félags- menn ASÍ vildu gera slíka tilraun. Því miður vantaði framtíðarsýn stjórnvalda og samstöðu á vinnu- markaði svo leiðin væri fær. Þess vegna hljóta aðildarsamtök ASÍ að fara inn í viðræður um næsta kjara- samning á þeim grundvelli að krefj- ast réttmætra leiðréttinga á kjör- um sinna félagsmanna til jafns við aðra,“ segir Gylfi Arnbjörnsson. mm Nýjar áherslur í kjaraviðræðum ASÍ og SA

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.