Skessuhorn - 11.06.2014, Page 15
15MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2014
Auglýst eftir umsóknum í
Vaxtarsamning Vesturlands
Vaxtarsamningur Vesturlands veitir styrki til
nýsköpunar- og atvinnuþróunarverkefna
á Vesturlandi.
Á heimasíðu Vaxtarsamningsins www.vaxtarsamningur.is
undir flipanum „Umsóknir“ er umsóknareyðublað og
upplýsingar um reglur og viðmið varðandi styrkveitingar.
Umsóknum skal skilað rafrænt á netfangið
vaxtarsamningur@vaxtarsamningur.is
Umsóknir sem berast fyrir 20. júní n.k.
verða teknar fyrir á næsta fundi.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
1
4
Á þjóðhátíðardaginn lýkur vetrar-
starfi Dómkórsins í Reykjavík og
um líkt leyti er það til siðs að kór-
félagar leggi land undir fót. Að
þessu sinni liggur leiðin í Borgar-
fjörð þar sem sungið verður í Reyk-
holtskirkju klukkan 15 laugardag-
inn 14. júní. Á dagskránni verða
þjóðlög og sálmar úr ýmsum áttum.
Meðal þess sem kórinn syngur eru
lög eftir Borgfirðinginn Ingibjörgu
Bergþórsdóttur frá Fljótstungu, þar
af eitt við ljóð eftir nágranna henn-
ar, Guðmund Böðvarsson.
Dómkórinn hefur starfað í nú-
verandi mynd á fjórða áratug. Auk
þess að sinna kirkjusöng í Dóm-
kirkjunni heldur kórinn tónleika
reglulega og stendur fyrir árlegum
Tónlistardögum Dómkirkjunnar á
haustin. Á síðustu tónleikum kórs-
ins flutti hann Carmina Burana
í félagi við Kór Menntaskólans í
Reykjavík en Kári Þormar dómorg-
anisti stjórnar báðum kórunum um
þessar mundir. Flutningurinn hlaut
fjórar stjörnur af fimm mögulegum
í umsögn Jónasar Sen gagnrýnanda
Fréttablaðsins. Aðgangur að tón-
leikunum í Reykholti er ókeypis og
allir velkomnir.
-fréttatilkynning
Ljóst var sl. fimmtudag að starfs-
fólk Grundaskóla á Akranesi varð
í fyrsta sæti í dagakeppni heilsu-
og hvatningarverkefnisins Hjólað
í vinnuna 2014, í flokki fyrirtækja
með 70 til 129 starfsmenn. Á þessu
ári voru 567 vinnustaðir sem skráðu
1248 lið til leiks með 9145 liðs-
menn í dagakeppni Hjólað í vinn-
una. Keppnisdagar voru 15 dag-
ar og sigraði það fyrirtæki þar sem
hlutfall hjóladaga starfsfólks var
hæst. Starfsfólk Grundaskóla var
efst í sínum flokki þar sem hlutfall
þess voru 8,56 dagar sem er tæplega
degi lengur en það fyrirtæki sem
kom næst á eftir. Er þetta í þriðja
skiptið sem starfsfólk Grundaskóla
endar í efsta sæti keppninnar, síðast
var það árin 2011 og 2012.
487 lið voru skráð til leiks í kíló-
metrakeppni og alls voru hjólaðir í
báðum flokkum 734.946 kílómetr-
ar eða sem nemur 548,9 hringjum
í kringum landið. Við það sparað-
ist um 118 tonn af útblæstri CO2,
og rúmlega 70 þúsund lítrar af elds-
neyti sem gerir sparnað upp á 17
milljónir króna. Brenndar voru um
46 milljónir kaloría, sé þessi vega-
lengd gengin, en 24 milljónir ka-
loría sé hún hjóluð, sé miðað við 80
kg mann sem annars æki á fólksbíl.
jsb
Nú í júnímánuði eru þrír tónlistar-
menn á ferð um landið með tjald-
vagn í eftirdragi og skottið fullt af
hljóðfærum. Heim-
sækja þeir öll dvalar-
og hjúkrunarheimili
á Íslandi og spila fyrir
heldri borgara landsins
sem þar búa, aðstand-
endur þeirra og það
góða fólk sem þar starf-
ar. Verkefnið er fram-
tak tónlistarfólksins og
gefur það alla vinnu
sína. „Tilgangurinn er
að nota mátt tónlistarinnar til þess
að sameinast, njóta og gleðjast og
þannig sýna þeim þakklæti og virð-
ingu í verki fyrir framlag þeirra
til uppbyggingar á samfélaginu
sem við búum í,“ segir Ása Berg-
lind Hjálmarsdóttir ein þremenn-
inganna. Hinir tveir eru Tóm-
as Jónsson og Jökull Brynjarsson.
Þau spila á hin ýmsu hljóðfæri og
syngja. Einnig gefst tónleikagest-
um tækifæri á að spreyta sig í hljóð-
færaleik því þau munu eins og áður
sagði verða með fullt
skott af hinum ýmsu
hljóðfærum.
Hægt er að fylgjast
með ferðalagi þeirra og
ævintýrum á Facebook
síðu sinni „nuverður -
glaumur.“ Þar birta þau
myndir frá hljómleik-
um, náttúru og mann-
lífi Íslands sem á vegi
þeirra verður. facebo-
ok.com/nuverdurglaumur. Tón-
leikaferð þeirra um Vesturland lýk-
ur í dag, miðvikudag í Silfurtúni
í Búðardal klukkan 13 og Reyk-
hólum klukkan 16. Næstu áfanga-
staðir eru Hólmavík og Hvamms-
tangi. Frá því á laugardaginn hafa
þau verið á Akranesi, Borgarnesi,
Grundarfirði, Ólafsvík og Stykkis-
hólmi. mm
„Mér sýnist að fólk hafi gjarnan
viljað fá nýtt blóð í sveitarstjórnina
og er þakklát fyrir traustið. Það
er alltaf spennandi að takast á við
nýja hluti en ég hef ekki tekið þátt
í svona verkefni áður,“ segir Valdís
Gunnarsdóttir, einn þriggja nýrra
aðalfulltrúa í sveitarstjórn Dala-
byggðar. „Ég átti svo sem ekki von
á því að ég yrði kosin þar sem ég til-
kynnti framboðið ekki fyrir en dag-
inn fyrir kjördaginn og mitt nafn
náði því ekki inn í Dalapóstinn þar
sem frambjóðendur voru kynntir.
Annars finnst mér í sjálfu sér að við
frambjóðendur hérna sleppum vel
með að þurfa ekki að gera grein fyr-
ir okkar helstu stefnumálum og fyr-
ir hvað við stöndum þegar við bjóð-
um okkur fram. Hér þekkir fólk
mig sjálfsagt helst fyrir að vera kona
Gísla dýralæknis og annar rekstrar-
aðili í Leifsbúð,“ segir Valdís. Hún
hefur aðeins búið í Dölunum í tæpt
eitt og hálft ár, flutti í Búðardal um
áramótin 2012-2013 og segja má að
hún hafi þá strax fallið fyrir samfé-
laginu í Dölunum.
Hlynnt persónukjöri
„Það er ekki minn stíll að sitja hjá
og það var ástæðan fyrir því að ég
ákvað að gefa kost á mér í sveitar-
stjórnina. Líka það að ég er hlynnt
persónukjörinu. Ég hefði aldrei
lagt nafn mitt við framboðslista eða
stjórnmálaafl. Persónukjörið gef-
ur fólki að ég held meiri möguleika
að fylgja sinni sannfæringu, það
þarf þá ekki að taka þátt í einhverri
málamiðlun við flokkslínur. Mér
sýnist að það sé að verða vinsælla að
kjósa persónubundið í sveitarstjór-
nir, að sé aukið kall eftir því. Samt
eru náttúrlega skiptar skoðanir um
þetta, hvort það eigi að vera lista-
kosningar eða persónukjör. Ég
varð vör við þá umræðu hérna fyrir
kosningarnar,“ segir Valdís.
Spurð hver verði hennar aðal-
áherslumál í sveitarstjórninni seg-
ir Valdís að hún sé svolítið upp-
tekin af því að vel verði farið með
fjármuni sveitarsjóðs, haldið vel
um pyngjuna. „Hér er láglauna-
svæði og tekjur sveitarfélagsins þar
af leiðandi litlar. Ég er samt undr-
andi á því hvað margt hefur verið
gert hér og sýnist að ágætlega hafi
verið staðið að málum. Það er alveg
ljóst að meta þarf vel í hvað á að láta
peningana og mál eins og velferðar-
mál og menningarmál eru ofarlega
í huga hjá mér. Síðan er líka um að
gera að nýta samtakamáttinn. Íbú-
arnir sjálfir geta gert heilmikið til
að bæta lífsgæðin án þess að það
kosti peninga, alla vega ekki mikla
peninga. Jákvæð hugsun í samfé-
laginu skilar miklu og margir geta
látið gott af sér leið. Það má segja
að það sé hin hliðin á því sem þekkt
er víða, að margir hafa uppi kröfur
um þetta og heitt en vilja svo ekki
taka þátt í samfélagslegum verkefn-
um,“ segir Valdís Gunnarsdóttir.
þá
„Ekki minn stíll að sitja hjá“
Spjallað við Valdísi Gunnarsdóttur nýjan sveitarstjórnarfulltrúa í Dalabyggð
Valdís Gunnarsdóttir einn þriggja nýrra fulltrúa í sveitarstjórn Dalabyggðar.
Starfsfólk Grundaskóla eftir sigurinn 2012.
Grundaskóli efstur í sínum
flokki í Hjólað í vinnuna
Frá æfingu kórsins á Carmina Burana í Langholtskirkju.
Ljósm. Telma Rós Sigfúsdóttir.
Dómkórinn syngur í Reykholti
Heimsækja öll dvalarheimili
landsins og gleðja íbúa
Þríeykið Tómas Jónsson,
Jökull Brynjarsson og Ása
Berglind Hjálmarsdóttir.
Ljósm: Sjálfsmynd.