Skessuhorn


Skessuhorn - 25.06.2014, Qupperneq 8

Skessuhorn - 25.06.2014, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 Fagráð lögreglu LANDIÐ: Ríkislögreglu- stjóri hefur sett á stofn fimm manna utanaðkomandi fag- ráð sem taka á til umfjöllunar mál er varða beina og óbeina mismunun, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni, kynbundið ofbeldi og einelti innan lögreglunnar. Sam- kvæmt tilnefningu jafnrétt- isnefndar lögreglunnar hef- ur ríkislögreglustjóri skip- að Davíð Þór Björgvinsson prófessor, sem jafnframt er formaður ráðsins, Láru V. Júlíusdóttur hrl., Jón Friðrik Sigurðsson prófessor, Önnu Kristínu Newton sálfræðing og Finnborgu Salome Stein- þórsdóttur jafnréttisfulltrúa lögreglunnar til að taka sæti í fagráðinu. Allar tilkynning- ar til fagráðsins skulu ber- ast skriflega til formanns, með tölvupósti á netfangið fagrad@logreglan.is -mm Aflatölur fyrir Vesturland 14. - 20. júní. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 17 bátar. Heildarlöndun: 14.074 kg. Mestur afli: Grímur AK: 2.168 kg í þremur löndun- um. Arnarstapi 2 bátar. Heildarlöndun: 4.289 kg. Mestur afli: Bárður SH: 3.300 kg í tveimur löndun- um. Grundarfjörður 3 bátar. Heildarlöndun: 57.728 kg. Mestur afli: Áskell EA: 52.985 kg í einni löndun. Ólafsvík 14 bátar. Heildarlöndun: 60.394 kg. Mestur afli: Ólafur Bjarna- son SH: 15.566 kg í þremur löndunum. Rif 11 bátar. Heildarlöndun: 220.781 kg. Mestur afli: Rifsnes SH: 77.248 kg í tveimur löndun- um. Stykkishólmur 19 bátar. Heildarlöndun: 68.032 kg. Mestur afli: Andri SH: 5.774 kg í fimm löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Rifsnes SH – RIF: 54.290 kg. 19. júní 2. Áskell EA – GRU: 52.985 kg. 18. júní 3. Tjaldur SH – RIF: 51.795 kg. 16. júní 4. Örvar SH – RIF: 23.927 kg. 18. júní 5. Markús SH – RIF: 23.445 kg. 18. júní mþh Kjaradeilu vísað til ríkis- sáttasemjara AKRANES: Verkalýðsfélag Akraness hefur vísað til Rík- issáttasemjara deilu félagsins við Samband íslenskra sveit- arfélaga vegna þeirra starfs- manna sem starfa hjá Akra- neskaupstað. Samningur- inn rann út 1. maí síðastlið- inn og þrátt fyrir að um tveir mánuðir séu liðnir hafa litl- ar viðræður átt sér stað, seg- ir í frétt á heimasíðu félagins. Það hefur lagt fram ítarlega kröfugerð en ekki fengið neina efnislega svörun hvað hana varðar. „Grundvallar- atriðið í þessu er að Sam- band íslenskra sveitarfélaga hefur samið við fjöldann allan af hópum og næg- ir að nefna í því samhengi BHM, grunnskólakennara og nú síðast leikskólakenn- ara. Hafa þær launahækkanir verið langtum hærri heldur en samið var um í svokölluð- um ASÍ samningum á hinum almenna vinnumarkaði. Það er mat Verkalýðsfélags Akra- ness að það eigi að vera afar einfalt mál að semja við fé- lagið enda hefur Samband íslenskra sveitarfélaga slegið tóninn í áðurnefndum samn- ingum,“ segir Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA. –þá Óhöpp og of hár ökuhraði LBD: Alls voru 20 ökumenn teknir fyrir of hraðan akst- ur í umdæmi lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum í lið- inni viku. Einn réttindalaus ökumaður var stöðvaður á akstri. Þrjú umferðaróhöpp urðu í vikunni þar af eitt þar sem fólk kenndi eymsla og leitaði sjálft til læknis. Auk þessara óhappa var ekið á þrjú lömb og eina kind á veg- um í umdæminu. Þá var út- lendum ferðamönnum með bilaðan bíl á Snæfellsnesvegi komið til aðstoðar. Einn- ig var Björgunarsveitin Ok kölluð til aðstoðar erlendum ferðamönnum sem höfðu fest bíl sinn í aurbleytu upp við Langjökul. –þá Jaðargata á sunnudaginn SNÆFELLSNES: Sögu- ferð og náttúruskoðun með Sæmundi Kristjánssyni verð- ur á sunnudaginn á Snæfells- nesi. Gengið verður um fal- legt, gróið hraun eftir gam- alli þjóðleið, Jaðargötu, frá Miðhúsum í Breiðuvík að Hraunhafnarósi / Búðum. Hross og menn hafa markað djúp spor í hraunið í gegn- um tíðina. Gengið verður um slóðir þekktra sögustaða s.s. bæjarstæði Axlar-Bjarn- ar, Iglut jörn og Leikskála. Nauðsynlegt að vera vel skó- aður, hafa drykkjarvatn og annað nesti. Ekkert þátt- tökugjald, en nánari upplýs- ingar veittar hjá Þjóðgarðin- um Snæfellsjökli. –fréttatilk. Íbúar á Akranesi hafa nú bæst í hóp þeirra sem geta nýtt sér háhraða 4G teng- ingu en í vikunni var kveikt á fyrsta 4G sendi Vodafone í bænum. Þar með geta Skagamenn og gestkom- andi farið að nýta sér þessa nýju tækni. Flutningshraði 4G tengingar er umtals- vert meiri en 3G og jafnast á við góða heimanetteng- ingu. Auk þess að bjóða upp á meiri hraða en 3G er hún mun afkastameiri og býður upp á meira gagnamagn. Í tilkynningu frá Vodafone segir að með 4G tengingu megi til dæm- is með auðveldum hætti fylgjast með beinum útsendingum frá HM á spjaldtölvum eða í snjallsímanum, fylgjast með fréttum og veðri eða streyma tónlist og mynd- efni greiðlega, hvar sem er í bænum. Nauðsynlegt er að eiga 4G síma eða net- búnað sem getur tengt eitt eða fleiri tæki við 4G net. Vodafone hefur einnig inn- leitt 4G tæknina á helstu sumarhúsasvæðum í Borg- arfirði og víðar og munu fleiri sendar verða gangsett- ir víðar um land á næstunni. mm Búið er að veiða rúmlega helming- inn af þeim strandveiðikvóta sem gefinn var út fyrir svæði D í júní, en svæðið nær frá Höfn í Hornafirði til og með Borgarbyggð. Heildar- kvóti svæðisins fyrir júnímánuð er 525 tonn en af þeim var í lok síð- ustu viku búið að veiða tæplega 277 tonn. Það eru því enn rösklega 248 tonn eftir af strandveiðikvóta svæð- isins, þar á meðal á eftir að veiða um 200 tonn af þorski, 66 tonn af ufsa, sjö tonn af karfa og 613 kíló af ýsu. Strandveiðar á svæði D ganga því fremur hægt þennan mánuðinn en þess má geta að strandveið- ar á svæði A stóðu aðeins yfir í sjö veiðidaga en þá var 858 tonna kvóti þess svæðis allur kominn á land. jsb „Þetta er á lokasprettinum hjá okk- ur, enda eins gott. Það er beðið eftir þessu,“ sagði Lárus Einarsson bygg- ingameistari sem vinnur að lengingu ferjubryggjunnar við Stykkishólms- höfn. Hann hefur síðustu dagana ásamt Lúðvík Kemp vélvirkja unnið að því að reka niður stálstaura sem að hluta munu bera uppi bryggjuna. Þeir voru á fullu við það verk þegar blaðamaður Skessuhorns var á ferð- inni í Stykkishólmi í lok síðustu viku. Sátu þá á stálbita og voru að ganga frá stálstaur til niðurrekstrar. Ferju- bryggjan verður lengd um 12 metra og byrjuðu framkvæmdir í vor. Taf- ir hafa orðið á þeim frá áætlun m.a. vegna breytinga á undirstöðum. Eft- ir að búið var að steypa undirstöður í lokuðu rými undir fjórðung breidd- arinnar á bryggjunni, sem tengingu fyrir stálbita og staura undir bryggju- dekkinu, var ákveðið að steypa ann- an fjórðung til viðbótar í undir- stöðu. Lárus bryggjusmiður segir að sú breyting hafi að hans mati ver- ið til mikilla bóta auk þess sem hún hafi minnkað kostnað við smíðina. Þetta sparaði þrjá stálstaura og stál- bita undir dekkið, en hver stálstaur kostar um eina milljón króna. Áætlað er að framkvæmdum við smíði ferju- bryggjunnar verði að mestu lokið fyrir miðjan júlímánuð. þá ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA BLIKKSMIÐJA Loftræstingar – Reykrör Klæðningar – Nýsmíði Viðhald – Efnissala JÁRNSMIÐJA Gjafagrindur – Nýsmíði Viðhald – Þjónusta Hesthúsinnréttingar RAFMAGNS- VERKSTÆÐI Nýlagnir – Viðhald Viðgerðaþjónusta Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is Kortið sýnir útbreiðslusvæði 4G kerfis Vodafone. 4G tenging á Akranesi Enn töluvert eftir af strandveiðikvóta á svæði D Unnið að stauraniðurrekstri undir dekk ferjubryggjunnar. Framkvæmdir við ferju- bryggjuna á lokasprettinum Lúðvík Kemp er nær á mynd og Lárus Einarsson. Þeir eru hér að ganga frá stál­ staur til niðurreksturs.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.