Skessuhorn


Skessuhorn - 25.06.2014, Síða 17

Skessuhorn - 25.06.2014, Síða 17
17MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014 Upplýsingar veitir: Þórir Þorvarðarson thorir@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 30. júní nk. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Fjármálastjóri Fiskmarkaður Íslands er stærsti fiskmarkaður á Íslandi og fer u.þ.b.40% af öllu seldu magni á íslenskum fiskmörkuðum í gegnum félagið. Fiskmarkaður Íslands starfar á 9 stöðum: Akranesi, Arnarstapa, Grundarfirði, Ólafsvík, Reykjavík, Rifi, Skagaströnd, Stykkishólmi og Þorlákshöfn. Aðalskrifstofa fyrirtæksins er í Ólafsvík en þar er jafnframt stærsti móttökustaðurinn. Einnig rekur félagið öfluga flokkunar- og slægingarþjónustu á Rifi. Fiskmarkaður Íslands hf. óskar eftir að ráða fjármálastjóra til starfa. Starfs- og ábyrgðarsvið • Hefur yfirumsjón með fjárreiðum og bókhaldi félagsins • Annast útreikning launa og samskipti við opinbera aðila sem að því snýr • Annast tölvukerfi félagsins og tæknimál • Ætlast er til að viðkomandi geti einnig leyst af/tekið þátt í verksviði sölustjóra og öðlist þekkingu á sölukerfum félagsins sem og tölvukerfum því tengdu • Annast milligöngu um viðskipti á aflamarki sem og öðrum þjónustuþáttum við viðskiptavini félagsins • Annast ásamt stöðvarstjórum mönnunarmál og innkaup á rekstrarvörum Menntun og hæfniskröfur • Viðskiptamenntun sem nýtist í starfi • Þekking á Navision, Microsoft hugbúnaði og færni til þess að læra á sérkerfi félagsins • Haldgóð almenn þekking á sjávarútvegsmálum Vantar hross og nautgripi til slátrunar. Sumarverð á hrossum 110 kr/kg. fyrir HRIA. Forðist biðlista í haust. Í samræmi við stefnu félagsins um ráðstöfun tekjuafgangs, greiddi það bændum í mars sl. 2,7% viðbót ofan á afurðaverð síðasta árs fyrir allar kjöttegundir. Sláturpantanir í síma 480 4100. Sláturfélag Suðurlands Selfossi Hrossa- og nautgripabændur!!! Reykholtskirkja Verið innilega velkomin í Reykholtskirkju S K E S S U H O R N 2 01 4 - L jó sm . G Ó Messa sunnudaginn 29. júní 2. sd. e. trin. kl. 14.00 Til sölu hreinræktaðir brúnir labradorhvolpar Ættarbók & heilsufarsskoðun Mjög flottir foreldrar: Lab Adventure´s Milton Keynes og Höfðastrandar Grýla sem uppfylla rúmlega allar þær kröfur sem HRFÍ gerir um ræktun á þessari tegund. Bæði hafa þau verið sýnd með góðum árangri, mjaðma- og olnbogamynduð og augnskoðuð. Hvolparnir verða tilbúnir til afhendingar um miðjan júlí með ættbók frá HRFÍ, örmerktir og heilsufarsskoðaðir. Þetta eru mjög efnilegir labradorar sem koma til með að henta frábærlega sem heimilisdýr, sýningardýr eða í veiðina. Upplýsingar gefur Svavar í síma: 822 5950 S K E S S U H O R N 2 01 4 Lögmannsstofan LEX hef- ur gefið út 70 síðna leiðarvísi fyrir ferðaþjónustuna um þau lögfræðilegu atriði sem þarf að huga að við stofnun og rekstur ferðaþjónustufyrir- tækja. Ritinu er dreift ókeyp- is til ferðaþjónustufyrirtækja um allt land, þar á með- al þeirra rúmlega 150 fyrir- tækja í greininni sem starfa á Vesturlandi. „Það hefur ver- ið mikill vöxtur í ferðaþjón- ustunni á Vesturlandi,“ segir Helgi Jóhannesson lögmað- ur hjá LEX, ritstjóri leiðar- vísisins. „Fyrir tíu árum voru 45 gististaðir á Vesturlandi öllu, en 2013 voru þeir 65 á skrá Hagstofunnar. Ferða- þjónustufyrirtæki með leyfi frá Ferðamálastofu voru 75 á Vesturlandi í fyrra og til viðbótar koma svo bílaleig- ur og fólksflutningafyrirtæki á svæðinu. Þegar svo mikill vöxtur á sér stað á skömmum tíma er ekki sjálfgef- ið að allir hafi nægilega yfirsýn um þau fjölmörgu lagalegu álitamál sem geta komið upp við stofnun og rekstur fyrirtækjanna. Snertifletir ferðaþjónustunnar við yfirvöld, lög og reglur eru margir og ekki allir jafn augljósir. Við hjá LEX ákváðum því að leggja okkar af mörkum til að vísa veginn og gefa ferðaþjónustunni af- raksturinn,“ segir Helgi. Í leiðarvísinum er farið ít- arlega yfir leyfisöflun, stofn- un einkahlutafélaga, ábyrgð, tryggingamál, skattamál, samningagerð, samskipti við yfirvöld og fleira. Leiðarvísir- inn er ekki tæmandi leiðbein- ingarrit, en ætti að gefa góða yfirsýn. Eintök liggja frammi hjá sýslumönnum og dóm- stólum og einnig er leiðarvís- irinn aðgengilegur á vefsíðu LEX svo og á vefsíðu SAF, Samtaka ferðaþjónustunnar. „Þessi leiðarvísir okkar hjá LEX er jafnt ætlaður stjórn- endum í nýjum sem rótgrón- um fyrirtækjum, til að hjálpa þeim að átta sig á því hvort þeir séu með allt á hreinu í lagalegu tilliti, eða hvort þeir þurfa að bæta úr í einstaka atriðum,“ seg- ir Helgi Jóhannesson. mm Umhverfisstofnun hefur að gefnu tilefni vakið athygli á því að á mörg- um friðlýstum svæðum á landinu er að finna viðkvæmar náttúru- myndanir. Gestir svæðanna eru því beðnir um að hafa það í huga að þar megi hvergi raska jarðmynd- unum. Þá er bannað að hrófla við steintegundum eða flytja þær út af svæðunum. Þetta á við um marga vinsæla ferðamannastaði, svo sem Einkunnir, Húsafellsskóg og Bárð- arlaug, en alls eru 19 friðlýst svæði á Vesturlandi. Friðlýst svæði á Vesturlandi: Andakíll Hvanneyri var friðlýst sem búsvæði árið 2002, en árið 2011 var búsvæð- ið stækkað og fékk nafnið Andakíll. Bárðarlaug, Snæfellsbæ Bárðarlaug var friðlýst sem nátt- úruvætti árið 1980. Blautós og Innstavogsnes Var friðlýst árið 1999. Breiðafjörður Þessi annar stærsti flói landsins var friðlýstur árið 1995. Búðahraun Eystri hluti Búðahrauns var friðað- ur árið 1977, en hraunið er eitt feg- ursta gróðurlendi Íslands. Einkunnir, Borgarbyggð Voru friðlýstar sem fólkvangur árið 2006. Eldborg í Hnappadal Eldborg er sérstaklega formfag- ur sporöskjulaga eldgígur sem var friðlýstur árið 1974. Flatey á Breiðafirði Austurhluti eyjunnar var friðlýstur árið 1975 vegna fuglaverndunar, en bannað er að fara um það svæði frá 15. apríl til 15. ágúst. Geitland, Borgarbyggð Geitland var friðlýst árið 1988. Grábókargígar í Borgarbyggð Gígarnir voru friðlýstir árið 1962, en friðlýsingunni breytt árið 1975. Grunnafjörður Grunnafjörður er friðland og var hann friðlýstur árið 1994. Hraunfossar, Borgarbyggð Hraunfossar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1987. Húsafellsskógur, Borgarbyggð Skógurinn var friðlýstur árið 1974. Kalmanshellir, Borgarbyggð Hellirinn er í Hallmundarhrauni og var friðlýstur árið 2011. Melrakkaey Eyjan var friðlýst árið 1971. Steðji (Staupasteinn) Steðji stendur á Skeiðhóli við Hvammsfjall í Hvalfirði, en hann var friðlýstur árið 1974. Ströndin við Stapa og Hellna Ströndin var friðlýst árið 1979, en þar er að finna margar sérkennileg- ar bergmyndanir við sjó. Vatnshornsskógur, Skorradal Skógurinn var friðlýstur árið 2009, til að vernda náttúrulegan og há- vaxinn birkiskóg. Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull er á utanverðu Snæfellsnesi, um 170 ferkílómetrar að stærð. mm Minnt á jarðmyndanir á friðlýstum svæðum Hraunfossar voru friðlýstir sem nátt­ úruvætti árið 1987. Helgi Jóhannesson er höfundur leiðarvísisins sem LEX gefur út. Gefa út lögfræðilegan leiðarvísi fyrir ferðaþjónustuna

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.