Skessuhorn - 23.07.2014, Page 13
13MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2014
Það er ekki alltaf sælan ein að vinna á lyftara
eins og þessi lyftaramaður sem vinnur á fisk-
markaðinum í Ólafsvik fékk að kynnast. Var
hann að fara með þrjú kör af makríl áleiðis á
hafnarvogina þegar þau duttu af lyftaranum og
innihaldið dreifðist um planið. En góðir starfs-
félagar hjálpa hverjir öðrum og fljótt kom einn
greiðvikinn og rétti hönd við að moka makíln-
um aftur í körin.
af
Sjórinn utan við höfnina og Langasand á Akra-
nesi kraumaði á mánudaginn af makríltorf-
um sem lónuðu í yfirborðinu. Þrátt fyrir að
halda mætti að Þröstur Reynisson á smábátn-
um Snarfara AK-17 væri einn af fjölmörgum
makrílveiðibátum, er sú ekki raunin. Þröstur er
á strandveiðum og var þarna að ná sér í beitu,
samkvæmt upplýsingum sem Skessuhorn aflaði
á hafnarvoginni á Akranesi. Makríll er úrvals-
beita þar sem þetta er feitur fiskur og því nýtti
Þröstur tækifærið, sigldi eina 70 metra út frá
hafnarkjaftinum og bætti birgðastöðuna í beit-
unni.
mm/ Ljósm. gó
Aldrei of varlega farið
Olíukostnaðurinn í lágmarki
www.bifrost.is
Æskilegast er að umsækjendur búi á Bifröst eða í nágrenni. Nánari upp lýsingar veitir
Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir í síma 894 1076 eða með tölvupósti til gudrunbjorg@bifrost.is.
Umsóknir skulu sendar á rektor@bifrost.is. Umsóknafrestur er til 1. ágúst nk.
Háskólinn á Bifröst er leiðandi í nýjum kennsluháttum og leggur áherslu á að mennta sam félags lega ábyrga
stjórnendur og starfsmenn. Starf skólans mótast af þremur grunngildum: samvinnu, frumkvæði og ábyrgð.
Spennandi störf við Háskólann á Bifröst
Framkvæmdastjóri kennslu og þjónustu
Helstu verkefni
• Stjórn kennslu- og þjónustusviðs og þátttaka í nefndastarfi skólans
• Gerð námsskráa, námskeiðslýsinga og kennsluáætlana í samstarfi
við starfsmenn
• Verkefni tengd kennslu, innritunum og brautskráningu,
sem og umsjón með tölfræðilegum upplýsingum um nemendur
• Umsjón með framkvæmd kennslumats og úrvinnsla þess
• Samskipti við ráðuneyti, nemendur og kennara
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni
• Reynsla af störfum í háskólaumhverfi æskileg,
ekki síst á sviði kennslumála
• Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
• Góð tölvukunnátta
• Góð íslensku- og enskukunnátta
Námsráðgjafi
Helstu verkefni
• Námsráðgjöf, aðstoð við nemendur við skipulagningu náms
• Aðstoða nemendur við að leita lausna í málum þeirra
• Gæta að jafnræði meðal nemenda
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Reynsla af náms- eða starfsráðgjöf er æskileg
• Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
• Góð íslensku- og enskukunnátta