Skessuhorn - 23.07.2014, Blaðsíða 31
31MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2014
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Víkingur frá Ólafsvík gerði jafntefli
við KA þegar liðin mættust á Ólafs-
víkurvelli í fyrstu deild karla í knatt-
spyrnu á laugardaginn. Þetta var
annar heimaleikur Víkingsmanna í
röð en fyrr í vikunni sigruðu þeir
Hauka með þremur mörkum gegn
einu. Leikurinn á laugardaginn
var jafn og spennandi til lokasek-
úndu. Fyrsta mark leiksins koma á
33. mínútu þegar Kemal Cesa kom
Víkingi yfir. Staðan var eitt núll í
hálfleik, heimamönnum í vil.
Seinni hálfleikur byrjaði rólega
en svo fór að færast líf í leikinn. Á
72. mínútu jafna gestirnir frá Akur-
eyri þegar liðsmaður Víkings varð
fyrir því óláni að skora sjálfsmark.
Heimamenn létu ekki deigan síga
og aðeins fjórum mínútum síðar
kom Steinar Már Ragnarsson Vík-
ingi í forystu á ný. Allt leit út fyrir
að Víkingar væru að landa heima-
sigri og þremur mikilvægum stig-
um í toppbaráttu fyrstu deildarinn-
ar. Það varð hins vegar ekki raunin
því á lokasekúndum leiksins jöfn-
uðu KA-menn metin. Lokatölur
í Ólafsvík 2-2 og er Víkingur nú í
sjötta sæti, aðeins tveimur stigum á
eftir Skagamönnum sem sitja í öðru
sæti deildarinnar.
Næsti leikur Víkings Ó. er úti-
leikur gegn Selfossi á Jáverksvellin-
um á föstudaginn klukkan 19:15.
jsb/ Ljósm. af
Grundarfjörður sigraði Víði úr
Garði þegar liðin mættust á Grund-
arfjarðarvelli í þriðju deild karla í
knattspyrnu á fimmtudaginn. Tals-
verður vindur var í Grundarfirði á
meðan leikurinn fór fram. Heima-
menn í Grundarfirði byrjuðu að
spila á móti vindi og lágu aftar-
lega á vellinum. Víðismönnum
tókst ekki að nýta sér meðvindinn
til að skora en Grundfirðingarnir
gerðu það hins vegar tvívegis á síð-
ustu mínútum fyrri hálfleiks. Fyrst
skoraði Danijel Smiljkovic á 39.
mínútu og svo Ragnar Smári Guð-
mundsson á 45. mínútu.
Seinni hálfleikur var kaflaskiptur
og spennandi. Víðismenn skoruðu
þegar tæplega tvær mínútur voru
liðnar og minnkuðu muninn. Þá
tók við langur kafli þar sem gest-
irnir frá Suðurnesjunum sóttu stíft
að marki heimamanna. Grund-
firðingar sem höfðu nú vindinn
í bakið vörðust vel og freistuðu
þess að fara hratt í skyndisóknir.
Það bar árangur á 76. mínútu þeg-
ar Kristinn Aron Hjartarson kom
Grundfirðingum í tveggja marka
forystu á ný. Víðismenn svöruðu
með marki nokkrum mínútum
síðar og voru síðustu tíu mínútur
leikins æsispennandi. Þar skiptust
bæði lið á að sækja og hefðu hæg-
lega getað skorað sitthvort mark-
ið. Boltinn fór hins vegar ekki oft-
ar í netið og lokatölur 3-2 fyr-
ir Grundarfjörð. Grundarfjörður
komst með sigrinum í fimmta sæti
deildarinnar en staðan í þriðju
deildinni er nú mjög jöfn og mun-
ar aðeins fimm stigum á fyrsta og
níunda sæti.
Næsti leikur Grundarfjarðar er
gegn Magna á Grundarfjarðarvelli
á föstudaginn 25. júlí kl. 19:00.
jsb
Skagakonur eru enn án stiga á botni
úrvalsdeildar eftir tap gegn Fylki í
Árbænum á mánudagskvöldið. Leik-
urinn byrjaði rólega en fyrstu tíu
mínúturnar voru Fylkiskonur beitt-
ari í sínum aðgerðum. Skagakonur
vörðust vel og beittu skyndisóknum
sem sköpuðu oft vandræði fyrir vörn
Fylkis. Jafnræði var með liðunum um
tíma en nokkrum mínútum áður en
flautað var til leikhlés skoruðu Fylk-
iskonur.
Lítið marktækt gerðist í upphafi
síðari hálfleiks. Skagakonur áttu þó
tvö ágætis skot á markið en tókst ekki
að koma boltanum í netið. Um miðj-
an seinni hálfleikinn sóttu Fylkiskon-
ur og voru nálægt því að skora annað
mark. Eftir þá sókn dró verulega úr
hraða leiksins. Bæði lið áttu nokkur
marktækifæri undir lokinn en hvor-
ugu tókst að nýta sér það. Eins marks
sigur Fylkis því staðreynd.
Næsti leikur Skagakvenna er gegn
FH á þriðjudaginn í næstu viku á
Akranesvelli klukkan 19:15.
jsb
Skagamenn höfðu ekki stríðsgæf-
una með sér í 1. deildarkeppninni
í síðustu viku. Þeir töpuðu 0:1 fyr-
ir heimamönnum á Selfossi á föstu-
dagskvöld og á þriðjudagskvöldið
þar á undan 2:4 fyrir KA á Akranes-
velli. ÍA er engu að síður ennþá í
öðru sæti deildarinnar með 21 stig,
jafnt Þrótti og HK en sex stigum
minna en Leiknir sem er á toppn-
um. KA er síðan í fimmta sætinu
með 20 stig og Víkingur Ó í því
sjötta með 19 stig.
Leikurinn á Selfossi sl. föstu-
dagskvöld fór fram við erfið skil-
yrði en það hellirigndi meðan hann
fór fram. Fyrri hálfleikurinn var
án marka en leikurinn einkennd-
ist af mikilli baráttu. Það var síðan
strax á upphafsmínútu seinni hálf-
leiks sem Selfyssingurinn Ingi Rafn
Ingibergsson skaut af 40 metra færi
á mark Skagamanna. Boltinn sigldi
yfir Árna Snæ í marki ÍA og í net-
ið. Eftir þetta jókst sóknarþungi
Skagamanna en erfiðlega gekk að
finna glufur á vörn Selfyssinga.
Þeirra taktík í sumar hefur verið að
liggja til baka og beita skyndisókn-
um og það gerðu þeir í þessum leik.
Skagamenn áttu tvö góð færi und-
ir lok leiksins en ekki tókst að skora
þannig að 1:0 sigur Selfyssinga var
niðurstaðan.
Næsti leikur ÍA verður á Akra-
nesvelli á fimmtudagskvöld gegn
Grindavíkingum sem eru eins og
stendur í fallsæti. Grindvíkingar
hafa engu að síður verið að sækja í
sig veðrið að undanförnu eftir dap-
urt gengi í sumar og búast má við
hörkuleik. þá/ Ljósm. jsb.
Um næstu helgi mun Bílaklúbb-
ur Skagafjarðar standa fyrir þriðju
umferð í Íslandsmeistaramótinu í
rallý. Klúbburinn, sem fagnar 25
ára afmæli sínu með þessari keppni
,hefur um árabil haldið eina bestu
keppni mótsins í nágrenni Sauðár-
króks. Leikar hefjast á föstudags-
kvöld klukkan 18:00 við Skagfirð-
ingabúð og verður ekið um Þver-
árfjall en það er skemmtileg áhorf-
endaleið þar sem ekið er sam-
hliða þjóðveginum, ýmist vinstra
eða hægra megin. Meðan á keppni
stendur er þjóðvegurinn lokaður á
þeim stað sem ekið er yfir veginn
en áhorfendur geta staðsett sig á
milli lokana og notið keppninnar
þannig enn betur. Keppninni lýkur
síðan á föstudagskvöldið með inn-
anbæjarleið um Sauðárkrókshöfn.
Er fólk hvatt til að mæta og fylgj-
ast með.
Eftir næturhlé verður haldið upp
á Mælifellsdal en þar reynir gríðar-
lega á bæði bíla og áhafnir þar sem
sú leið er 22 km löng. Sú leið verður
ekin fram og til baka. Þess má geta
að ýmsar áhafnir hafa endað keppni
á þeim leiðum. Að því loknu verð-
ur Vesturdalurinn einnig ekinn fram
og til baka. Síðasta leið keppninn-
ar er að venju áhorfendaleiðin um
svokallaðar Nafir. Hún hefur ávallt
verið augnayndi áhorfenda. Auk
þess verður síðari ferðin svoköll-
uð “Gestacoara-leið.” Á slíkri leið
fá gestir að spreyta sig sem aðstoð-
arökumenn. Þrír heppnir vinnings-
hafar af sýningunni “Kraftur” verða
meðal þeirra. Er fólk hvatt til að
koma og fylgjast með keppninni en
bent á að virða öryggislokanir.
TímOn-félagar mæta galvaskir í
þessa keppni að venju. Heimamað-
urinn í Skagafirði, Baldur Haralds-
son, hefur látið hlúa örlítið að bíln-
um og ætti hann því að verða eins og
best verður á kosið. Bæði Baldur og
Borgfirðingurinn Aðalsteinn Sím-
onarson eru vel kunnugir rallýakstri
í Skagafirði en þetta er þriðja sum-
arið sem þeir keppa þar saman. Eft-
ir sigur í síðustu keppni leiða þeir fé-
lagar á Íslandsmeistaramótinu með
átta stiga forskot á þá Hilmar B. Þrá-
insson og Elvar Smára Jónsson. Þeir
Baldur og Aðalsteinn hafa því það
markmið að ná fullu húsi stiga. mm
KA jafnaði á lokasekúnd-
unum í Ólafsvík
Boltinn þenur möskva KA marksins eftir aukaspyrnu Jóns Vilhelms Ákasonar sem
skoraði seinna mark ÍA.
Skagamenn án stiga
frá Selfossi
Skagakonur töpuðu í Árbænum
Kristinn Aron Hjartarson skoraði sigurmark Grundarfjarðar gegn Víði. Hann sést
hér henda sér á boltann inni í vítateig andstæðinganna.
Mikil spenna í leik
Grundarfjarðar og Víðis
Vestlendingar gætu eignast
Íslandsmeistara í rallý