Skessuhorn - 27.08.2014, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2014
Mánaðarleg
innheimta
SKESSUHORN: Frá og með
1. september nk. verður inn-
heimtu áskriftar á Skessuhorni
breytt. Framvegis verður áskrift
innheimt mánaðarlega hjá þeim
sem greitt hafa með greiðsluseðli,
í stað tveggja mánaðar fresti áður.
Hætt verður að senda út greiðslu-
seðla til þeirra sem eru yngri en
70 ára (fæddir 1945 og síðar).
Innheimtukrafa mun eftir sem
áður birtast í heimabanka áskrif-
enda þar sem hægt er að fram-
kvæma greiðslu. Fyrirtæki og þeir
sem eru 70 ára og eldri fá áfram
senda greiðsluseðla. Þeir sem þess
óska sérstaklega geta áfram fengið
greiðsluseðla í pósti, en þurfa þá
að senda beiðni um slíkt í tölvu-
pósti til skrifstofustjóra Skessu-
horns á netfangið bokhald@
skessuhorn.is fyrir 1. september
nk. Hvetjum við áskrifendur til
að færa áskrift yfir á greiðslukort.
Breyting þessi er gerð til að draga
úr póst- og dreifingarkostnaði og
felur hún engan viðbótarkostn-
að í sér fyrir áskrifendur. Áskrift-
arverð verður áfram óbreytt út
2014. –fréttatilk.
Fjögur óhöpp í
umferðinni
SNÆFELLSNES: Fjögur um-
ferðaróhöpp urðu í umdæmi
lögreglunnar á Snæfellsnesi í
liðinni viku. Lítilsháttar meiðsli
á fólki urðu í einu þeirra.Um
miðja síðustu viku var ökumað-
ur í Grundarfirði handtekinn
grunaður um ölvun við akstur.
Sömuleiðis var ökumaður stöðv-
aður við Rif grunaður um akstur
undir áhrifum fíkniefna. Beðið
er eftir rannsóknarniðurstöðum
í báðum þessum málum. –þá
Brotist inn
í bílskúr
AKRANES: Í vikunni var brot-
ist inn í bílskúr á Akranesi og
þaðan stolið talsverðu af verk-
færum til bílaviðgerða ásamt
tölvu til bilanagreininga. Þarna
hafði læst hurð verið spennt
upp til að komast inn. Málið er
í rannsókn. Lögreglan á Akra-
nesi stöðvaði í vikunni átta öku-
menn fyrir of hraðan akstur og
einn ökumaður var færður á
lögreglustöð vegna gruns um
ölvun við akstur. –þá
Fjarskiptamál
óviðunandi
BORGARBYGGÐ: „Fjar-
skiptasamband er ein mikil-
vægasta forsenda búsetu og at-
vinnu. Í Borgarbyggð er ástand
fjarskipta víða óviðunandi. Það
á við bæði um net- og farsíma-
samband. Verst er staðan á Mýr-
um, í Kolbeinsstaðarhreppi og í
uppsveitum Borgarfjarðar. Íbú-
ar sveitarfélagsins eru orðnir
langþreyttir á þessu ástandi. Það
sama á við um atvinnulífið, þar
sem þetta hefur víða hamlandi
áhrif. Þá skiptir miklu máli fyrir
hina fjölmörgu ferðamenn sem
sækja sveitarfélagið heim, að geta
treyst á gott fjarskiptasamband,“
segir í ályktun sem samþykkt var
á fundi sveitarstjórnar Borgar-
byggðar fyrr í mánuðinum. Þá
segir að sveitarstjórn beini þeim
eindregnu tilmælum til innanrík-
isráðuneytisins að það hlutist til
um að þegar verði lokið við upp-
byggingu dreifkerfis fyrir fjar-
skiptasamband á þeim svæðum
í sveitarfélaginu sem nú eru án
viðunandi þjónustu. –mm
Eitt og annað verður að gerast á
Vesturlandi um næsti helgi og ærið
tilefni til að bregða sér af bæ. Árlegt
töðugjaldaball með Geirmundi verð-
ur í Þverárrétt á föstudaginn. Hval-
fjarðardagar verða um næstu helgi
og Sumarhátíð Kaupfélags Borg-
firðinga verður í Borgarnesi á laug-
ardaginn sem og skottsala í Sveita-
markaðinum Ljómalind handan við
þjóðveginn.
Spáð er mildu veðri næstu dagana.
Á fimmtudag og föstudag verði hæg
austlæg átt og skýjað með köflum,
en súld við suðurströndina. Hiti víða
10 til 15 stig, en allt að 20 stigum í
innsveitum norðan- og vestantil á
laugardag. Þann dag er útlit fyrir dá-
litla vætu víða en þurrt að kalla fyr-
ir norðan. Á sunnudag er spáð vax-
andi austanátt með rigningu, eink-
um austantil. Hiti 8 til 16 stig og hlýj-
ast hér á Vesturlandi.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns í tilefni þess að skólar voru að
byrja: „Ef þú gætir, myndir þú mennta
þig meira?“ Flestir eru þeirrar skoð-
unar. Já svöruðu 60%, nei var svar 22
prósenta. Þá voru 18% sem svöruðu
því til að þeir vissu það ekki eða eru
nú þegar í námi.
Í þessari viku er spurt
Hvernig finnst þér net- og síma-
samband á landsbyggðinni?
Vestlendingar vikunnar eru nem-
endur í tíunda bekk Grundaskóla á
Akranesi sem hafa tekið að sér gang-
brautavörslu við aðalbrautir við skól-
ann í þessari viku og síðan aftur þeg-
ar skammdegið hellist yfir í haust.
Kostir þessa verkefnis eru fjölmargir
og er það til fyrirmyndar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Síðasltliðinn sunnudag var hátíðar-
messa í Kolbeinsstaðakirkju á Snæ-
fellsnesi. Þar var þess minnst að
hinn 10. júní 1934 var kirkjan vígð
í þeirri mynd sem hún er nú og er
því 80 ára vígsluafmæli kirkjunn-
ar á þessu ári. Sr. Þorbjörn Hlyn-
ur Árnason, prófastur í Vestur-
landsprófastsdæmi predikaði og Sr.
Páll Ágúst Ólafsson sóknarprest-
ur á Staðarstað þjónaði fyrir altari.
Zsuzsanna Budai annaðist orgel-
leik og stjórnaði almennum safnað-
arsöng sem leiddur var að samein-
uðum kór Fáskrúðarbakkasóknar
og Kolbeinsstaðasóknar. Að athöfn
lokinni var öllum boðið til kaffi-
samsætis í félagsheimilinu Lindar-
tungu.
Kirkjan sjálf var byggð úr stein-
steypu árið 1933 og vígð árið eft-
ir. Þórarinn Ólafsson var yfirsmið-
ur. Meðal góðra gripa kirkjunnar
er altaristafla eftir Brynjólf Þórð-
arson listmálara, patína og brauð-
öskjur frá 1725, gotneskt Kristslík-
neski úr kopar og fornir koparstjak-
ar. Skírnarskálin er frá 1732 og út-
skorinn umbúnaður hennar er eftir
Friðrik Friðleifsson. Síðast en ekki
síst ber að nefna kaleik kirkjunn-
ar sem Skessuhorn gerði skil fyrr
í sumar. Sá kaleikur er sexhundruð
ára gamall og er enn í fullri notkun.
Var hann einmitt notaður í hátíðar-
messunni á sunnudaginn
grþ/ Ljósm. Þóra Sif Kópsdóttir.
Um þessar mundir er Vegagerð ríkisins að láta breikka og bæta Kvíabryggjuveg. Auk þess verður lagt bundið stlitlag á
veginn. sk
Ferðaþjónusta Vestfjarða ehf. á
Patreksfirði hefur gert samning við
Fjórðungssamband Vestfirðinga
um rútuakstur á sérleyfinu Patreks-
fjörður – Brjánslækur – Ísafjörður.
Fyrstu áætlunarferðirnar voru farn-
ar síðastliðinn mánudag. Leiðin
verður tvískipt. Annars vegar milli
Bæta veginn að Kvíabryggju
Ferjurútan hefur endastöð á Brjánslæk en þangað siglir einmitt Breiðafjarðar-
ferjan Baldur.
Ferjurúta milli Patreksfjarðar og
Brjánslækjar allt árið
Patreksfjarðar og Brjánslækjar, hins
vegar milli Ísafjarðar og Brjáns-
lækjar. Fyrirtækið mun sinna þessu
verkefni í samstarfi við Vestfjarða-
leið ehf. og Sæferðir hf. í Stykkis-
hólmi enda er um að ræða tengingu
allt árið við ferðir flóabátsins Bald-
urs. „Hér er um nýjung að ræða
og bætt úr brýnni þörf. Með þessu
gefst íbúum og ferðamönnum á
sunnanverðum Vestfjörðum færi á
að tengjast ferðum Baldurs og þar
með almenningssamgöngukerfi
Strætó í Stykkishólmi til Reykja-
víkur og um land allt,“ segir í til-
kynningu.
Ferðir milli Ísafjarðar og Brjáns-
lækjar verða þrisvar í viku til 15.
september nk., þ.e. á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum.
Gert er ráð fyrir að þær muni hefj-
ast að nýju 15. maí 2015 og verði
daglegar ferðir í tengslum við sum-
aráætlun Baldurs frá 6. júní – 25.
ágúst 2015. Með þessu gefst íbúum
og ferðamönnum á norðanverðum
Vestfjörðum einnig færi á að tengj-
ast ferðum Baldurs og þar með al-
menningssamgöngukerfi Strætó
í Stykkishólmi til Reykjavíkur og
um land allt. Þetta er veruleg þjón-
ustuaukning frá því sem verið hef-
ur undanfarin ár. Með þessu fyrir-
komulagi er einnig bætt úr brýnni
þörf, en engar almenningssam-
göngur hafa verið í sumar milli Ísa-
fjarðar og Brjánslækjar-Patreks-
fjarðar. Frá Patreksfirði verður
ekið frá Ferðamannamiðstöðinni
og N1. Frá Ísafirði verður ekið frá
Upplýsingamiðstöð ferðamanna og
biðstöðinni við Pollgötu, með við-
komu hjá N1 á Þingeyri.
mm
Séra Páll Ágúst Ólafsson sóknarprestur þjónaði fyrir altari í afmælisguðsþjónustunni og sr. Þorbjörn Hlynur Árnason
prófastur á Borg predikaði. Með þeim á myndinni eru félagar í kirkjukórnum. Í honum eru m.a. tvær konur sem eru eldri
en kirkjan sjálf. Það eru þær Hanna Jónasdóttir á Jörfa, sem var 6 ára þegar kirkjan var vígð, og Ingveldur Gestsdóttir á
Kaldárbakka sem var 9 ára. Hún man glöggt eftir því þegar kirkjan var vígð.
Áttatíu ára vígsluafmæli Kolbeinsstaðakirkju
Kolbeinsstaðakirkja á Snæfellsnesi.