Skessuhorn - 27.08.2014, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2014
Hollvinir
á golfmót
BIFRÖST: Sunnudaginn 7.
september nk. fer fram golf-
mót Hollvinasamtaka Bif-
rastar á golfvellinum Glanna.
Mæting verður í golfskálann
klukkan 13:30 en mótið hefst
klukkan 14 og ræst verður út
frá öllum teigum samtím-
is. Þátttökugjald er 3.000 kr
og eru veitingar innifaldar.
Hámarksfjöldi er 36 manns.
Keppnisfyrirkomulag er
punktakeppni. Sigurveg-
ari á mótinu fær farandbik-
ar Hollvinasamtakanna til
varðveislu. Verðlaun verða
gefin fyrir fyrstu þrjú sætin.
Einnig verða veitt verðlaun
fyrir lengsta höggið á 5/14
holu og nándarverðlaun á
9/18 holu. Skráning og nán-
ari upplýsingar gefur Þórir
Páll Guðjónsson á netfangið
thorir@bifrost.is. Skráning
þarf að berast sem fyrst og
í síðasta lagi fyrir miðviku-
daginn 3. september.
–fréttatilk.
Breyttur opn-
unartími í
Edduveröld
BORGARNES: Rekstr-
araðilar veitingastaðarins
Edduveraldar í Borgarnesi
hafa tilkynnt um breyttan
opnunartíma nú þegar langt
er liðið sumars. Frá og með
næstu mánaðamótum verð-
ur opið frá kl. 16 til 22 frá
mánudegi til fimmtudags.
Opnunartími verður lengri
um helgar, frá 16-01 á föstu-
dögum og 12-22 á lauga-
dögum og sunnudögum. Frá
1. október er síðan áform-
að að lokað verði á sunnu-
dögum og mánudögum í
Edduveröld. Samhliða þess-
um breytingum á opnunar-
tíma verður hætt að bjóða
upp á hádegismat í Eddu-
veröld nema fyrir hópa sem
panta fyrirfram, en að sögn
þeirra Erlu og Gunnu var
þátttakan ónóg til að hægt
væri að bjóða upp á hádeg-
ismatinn áfram. „Viljum við
þakka þeim sem komið hafa
til okkar í hádeginu síð-
asta eina og hálfa árið. Von-
umst til að sjá ykkur hér eftir
sem hingað til, en á breytt-
um opnunartíma,“ segja þær
stöllur í Edduveröld. Þær
segja dagskrá vetrarins fram
að áramótum í vinnslu, svo
sem rússakeppni, trúbadora-
kvöld, Pub Quiz og svo vin-
sælu jólahlaðborðin. Svo
verði náttúrlega skötuveislan
á Þorláksmessu fastur liður
áfram, sem og að veisluþjón-
ustan verður alltaf opin.
–þá
Ljóða- og menn-
ingarverðlaun
BORGARFJ: Minningarsjóð-
ur Guðmundar Böðvarsson-
ar skálds og bónda á Kirkjubóli
og Ingibjargar Sigurðardótt-
ur konu hans veitir Ljóðaverð-
laun Guðmundar Böðvarssonar
og Borgfirsk menningarverð-
laun á samkomu í Reykholts-
kirkju laugardaginn 30. ágúst
kl. 16.00. Þetta er í níunda sinn
sem verðlaunin eru veitt. Auk
afhendingar verðlauna er dag-
skrá með tónlistarflutningi og
ljóðalestri. Allir eru velkomn-
ir og alveg sérstaklega félagar
í aðildarfélögum sjóðsins, en
aðilar að sjóðnum eru: Bún-
aðarsamtök Vesturlands, Ung-
mennasamband Borgarfjarðar,
Samband borgfirskra kvenna,
Rithöfundasamband Íslands og
afkomendur Guðmundar og
Ingibjargar.
–mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
16. - 22. ágúst.
Tölur (í kílóum) frá
Fiskistofu:
Akranes 9 bátar.
Heildarlöndun: 4.886 kg.
Mestur afli: Grímur AK: 1.374
kg í þremur löndunum.
Arnarstapi 38 bátar.
Heildarlöndun: 262.997 kg.
Mestur afli: Dögg SU: 26.437
kg í þremur löndunum.
Grundarfjörður 28 bátar.
Heildarlöndun: 766.092 kg.
Mestur afli: Klakkur SK:
240.070 kg í þremur löndun-
um.
Ólafsvík 54 bátar.
Heildarlöndun: 290.838 kg.
Mestur afli: Brynja SH: 27.349
kg í sex löndunum.
Rif 32 bátar.
Heildarlöndun: 303.211 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
48.522 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 15 bátar.
Heildarlöndun: 9.204 kg.
Mestur afli: Fjóla SH: 1.567 kg
í einni löndun.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Baldvin NC – GRU:
222.861 kg. 19. ágúst.
2. Klakkur SK – GRU:
84.662 kg. 19. ágúst.
3. Klakkur SK – GRU:
79.848 kg. 17. ágúst.
4. Klakkur SK – GRU:
75.560 kg. 21. ágúst.
5. Hringur SH – GRU:
65.331 kg. 19. ágúst.
mþh
Páll Jónsson dreginn í land
Línubáturinn Páll Jónsson GK
varð fyrir vélarbilun átta mílur
vestnorðvestan af Malarrifi að-
fararnótt síðastliðinn miðviku-
dags. Skipið var á leið á miðin
þegar bilunin varð og var björgun-
arskipið Björg í Rifi kallað út um
fimmleytið. Að sögn Páls Stefáns-
son skipstjóra á Björginni skotgekk
að ná í bátinn en Björgin dró hann
til hafnar í Ólafsvík þar sem hon-
um var komið í lag áður en aftur
var snúið til veiða. Hér sést Björg
koma með Pál til hafnar í Ólafsvík
um hádegi á miðvikudag. Eins og
sjá má er töluverður stærðarmun-
ur á skipunum en Páll er 44 metra
langur. grþ/ Ljósm. þa
Bæjarstjóri hvetur forstöðumenn
til að hagræða sem mest
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri hef-
ur sent opið bréf til forstöðumanna
stofnana Stykkishólmsbæjar. Það
hvetur hann þá til að hagræða sem
mest þeir mega í rekstri stofnana
það sem eftir lifir þessa árs. Sam-
kvæmt fjármálareglum sem sveit-
arfélög búa við þurfa þau að sýna
hagnað samanlagt í þrjú ár. Ekki
sé útlit fyrir að það mark náist árin
2012-2014 í Stykkishólmi og því
þurfi að bregðast skjótt við.
Sturla segir m.a. í bréfi sínu:
„Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins
2014 sem samþykkt var 12. des-
ember 2013, og ársreikningum ár-
anna 2012 og 2013, blasir við að
bæjarsjóður stenst ekki þá kröfu
reglugerðarinnar að þessi þrjú ár
skili rekstrarafgangi. Til þess að
ná jöfnuði hefði bæjarsjóður (A og
B hluti) þurft að skila meiru en 14
milljónum í afgang árið 2014. Sam-
kvæmt fjárhagsáætlun þessa árs átti
bæjarsjóður að skila rúmum 2 millj-
ónum í afgang sem dugar ekki til
þess að standast kröfur reglugerð-
arinnar. Það sem af er þessu ári hafa
tekjur aukist lítillega umfram áætl-
anir. Rekstrarútgjöld munu hins-
vegar aukast og veldur þar mestu
áhrif nýrra kjarasamninga, ákvarð-
anir um ný verkefni og fjölgun
starfsmanna. Það blasir því við að
jöfnuður mun ekki nást á þessu ári
nema dregið verði umtalsvert úr
útgjöldum og framkvæmdum jafn-
framt frestað það sem eftir er árs-
ins.“
Biðlar Sturla til stjórnenda að
leita allra leiða til þess að draga úr
kostnaði og finna leiðir til þess að
hagræða í rekstri bæjarins. „Allar
tillögur í þeim efnum eru vel þegn-
ar og er hér með kallað eftir þeim.
Á næstunni mun ég heimsækja allar
stofnanir og funda með stjórnend-
um til þess að fá sem besta yfirsýn
um rekstur Stykkishólmsbæjar. Það
er von mín að okkur megi takast að
snúa vörn í sókn og skapa skilyrði
til þess að auka tekjur og draga sem
mest úr útgjöldum, en nýta þá fjár-
muni sem eru til ráðstöfunar til að-
gerða sem gera bæjarfélagið betur í
stakk búið til nýsköpunar og vaxt-
ar.“ mm
Sveitarstjórn heimilar tveimur leikskólum
að taka inn 12 mánaða börn
Sveitarstjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti á fundi sínum fyrr í þessum
mánuði tillögu fræðslunefndar um
að leikskólarnir Andabær á Hvann-
eyri og Hraunborg á Bifröst fái að
taka til vistunar 12 mánaða börn.
Leikskólar í sveitarfélaginu taka að
jafnaði ekki inn börn fyrr en þau
eru orðin 18 mánaða. „Við vonum
að ákvörðun þessi hafi jákvæð áhrif
fyrir aðsókn í háskólana tvo á þess-
um stöðum og samfélögið sem þeir
starfa í. Dagvistun ungra barna er
vandamál víða og t.a.m. þurfa börn
að vera orðin tveggja ára í Reykja-
vík til að komast á leikskóla,“ seg-
ir Guðveig Eyglóardóttir formað-
ur fræðslunefndar Borgarbyggðar í
samtali við Skessuhorn. Ákvörðun
þessa efnis hefur fengið góðar við-
tökur og strax í síðustu viku höfu ell-
efu umsóknir borist um leikskólavist
ársgamalla barna á þessum tveimur
leikskólum.
Í þessu sambandi er gaman að
geta þess að veruleg aukning hef-
ur orðið í fæðingum í uppsveit-
um Borgarfjarðar á þessu ári. Séra
Geir Waage í Reykholti tjáði blaða-
manni að hann hefði fengið að skíra
sjö börn á einni viku nú fyrr í ágúst
og væri það einsdæmi í preststíð
hans í Reykholti, sem nú spann-
ar 35 ár. Þá sé enn von á talverð-
um fjölda barna í héraðinu á næsta
misseri. Guðveig Eyglóardóttir
kveðst einnig fagna þessari þróun.
„Þetta eru miklir gleðigjafar í sam-
félagið okkar,“ sagði hún.
mm
Fyrsta steypan í ÞÞÞ húsið
Byggingarframkvæmdir á nýju at-
hafnasvæði bifreiðastöðvar ÞÞÞ á
Akranesi hófust á dögunum. Síðast-
liðinn fimmtudag var fyrsta steyp-
an á byggingarstað við Smiðjuvelli.
Steypt var undir og milli forsteyptra
sökkuleininga í húsinu. Húsið verð-
ur að mestu byggt úr einingum frá
Smellinn sem hefur umsjón með
byggingu hússins samkvæmt samn-
ingi. Það eru iðnaðarmenn frá
Sjamma ehf á Akranesi sem sjá um
uppslátt og steypuvinnu en þakefni
kemur frá Límtré Vírneti í Borgar-
nesi.
Nýja ÞÞÞ húsið verður alls um
1700 fermetrar að stærð á 1450 fer-
metra grunnfleti. Athafnarýmið á
Smiðjuvöllum 15 verður um 11.500
fermetrar, heldur minna en að Dal-
braut 6 þar sem ÞÞÞ hefur verið síð-
ustu 20 árin, en fyrirtækið var stofn-
að árið 1927. Þórður Þ Þórðar-
son framkvæmdastjóri segir að fyr-
irtækið eigi samkvæmt samningi að
fá húsið afhent í nóvember næst-
komandi og ÞÞÞ muni flytja á nýjan
stað fyrir eða um áramótin. Þórð-
ur kvaðst vonast til að akstur á jarð-
efnum í grunn hússins hæfust í þess-
ari viku og svolítil seinkun á fram-
kvæmdaáætlun muni vinnast upp
í framhaldi af því. Þórður segir að
forsvarsmönnum fyrirtækisins lítist
vel á nýtt svæði á Kalmansvöllum,
þótt það hefði vissulega mátt vera
heldur stærra, en þetta yrði að duga,
sagði Þórður.
þá
Smiðir hjá Sjamma ehf steypa með forsteyptum sökkuleiningum frá Smellinn í
ÞÞÞ húsið.