Skessuhorn - 27.08.2014, Síða 13
13MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2014
Hausta tekur og við förum að huga
að því að geyma mat til vetrarins
Skyrmysa er tilvalin til að sýra
slátrið og ýmsan annan mat.
Fáanleg í 2,5, 5 og 10 ltr brúsum
Hægt að panta í Ljómalind í síma 437 1400 eða
á Erpsstöðum í síma 868 0357
Einnig er hægt að panta á netfanginu erpur@simnet.is
www.erpsstadir.is Rjómabúið á facebook.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Spáir því að mikið verði af gæs á sunnanverðu landinu í haust
Sumarliði Ásgeirsson matreiðslu-
maður og ljósmyndari í Stykk-
ishólmi er auk þess ein ötulasta
gæsaskyttan á Snæfellsnesi. Í ljósi
þess að gæsaveiðitímibilið hóft 20.
ágúst síðastliðinn hitti blaðamaður
Sumarliða í liðinni viku og kann-
aði stöðuna á norðanverðu Snæ-
fellsnesi. „Þetta er í fyrsta skipti í
yfir 30 ár sem ég fer ekki á veiðar
á fyrsta degi gæsaveiðitímabilsins.
Ég stefndi í og með að því að fara
fyrsta daginn en eftir að hafa tek-
ið rúnt um helstu veiðisvæðin hér
í kring daginn fyrir opnun ákvað
ég, ásamt Kára Hilmarssyni veiði-
félaga mínum til margra ára, að
sleppa því. Ástæðurnar fyrir því eru
nokkrar. Fyrir það fyrsta þarf mað-
ur að vera mættur tilbúinn með allt
dót á veiðistað fyrir klukkan fjög-
ur um morguninn á fyrsta degi. Það
er að segja ef vilji er fyrir því að ná
fyrstu og stærstu gæsahópunum.
Það fer afar illa saman við vinnu og
það er annað sem ég þarf að sinna
núna. Einnig tók ég eftir að mikið
af gæs er enn í sárum og ungarn-
ir því enn ófleygir. Við Kári tók-
um því þá ákvörðun að láta veiðina
eiga sig þar til eftir fyrstu helgina á
veiðitímabilinu,“ segir Sumarliði.
Gæsin fer fyrr en áður
suður á bóginn
Sumarliði segir að aðstæður séu að
breytast og gæsaveiðin á norðan-
verðu Snæfellsnesi sé allt önnur en
hún var hér áður fyrr. „Ég hef fylgst
með þessu í mörg ár og sé að mikl-
ar breytingar hafa átt sér stað á síð-
ustu árum. Í fyrra tók ég eftir því
að nánast allar gæsirnar voru farn-
ar suður á bóginn um miðjan sept-
ember. Hér áður fyrr þótti ekkert
óeðlilegt að það væri mjög góð veiði
á þessum slóðum út allan mánuðinn.
Ég veit ekki nákvæmlega hvað veld-
ur því að gæsin er að fara fyrr, en
mig grunar að það sé vegna aukinn-
ar kornræktar á Suðurlandi. Gæsin
safnast saman á Suðurlandi áður en
hún flýgur úr landi og vill væntan-
lega fá besta fæðið fyrir ferðalagið,
en henni finnast nýræktir bestar og
ekki síst kornið.
Sömu aðferðir en
aukið öryggi
Sumarliði segir að menn hafi allt-
af beitt mismunandi aðferðum við
gæsaveiðar. Eina breytingin sem
hægt er að tala um síðan hann
hóf að skjóta gæs, fyrir um það
bil þremur áratugum, er að ör-
yggi skotveiðimanna hefur stór-
aukist. „Sumir skríða eftir skurð-
um og reyna að læðast að gæsinni.
Ég geri það hins vegar ekki. Mín
aðferð er einfaldlega að koma mér
vel fyrir í skurði og sitja þar róleg-
ur með kaffi í brúsa og bíða með
um 40 gervigæsir og flautu. Gæsa-
veiði er þó orðin mun meira sport
en hún var hér áður. Þá voru veiði-
mennirnir að veiða til að selja og
bændur til að vernda túnin sín.
Bændur leyfa vissulega mönnum
enn að skjóta til að vernda tún-
in, en það getur ekki hver sem er
farið og skotið eins og áður. Nú
verða menn að fara á námskeið og
flestir eru í skotveiðifélögum sem
hafa siðareglur varðandi veiðiskap.
Þetta er mjög jákvæð þróun og
veldur því að öryggi veiðimanna
hefur aukist.“
Betra að liggja fyrir gæs
þegar birtir seinna
Sumarliði er lærður matreiðslu-
maður og er gæsin að hans mati
með betri villibráð sem hægt er
að nálgast hér á landi. „Gæsin er
virkilega góður matur. Sennilega
næstbesta villibráðin á eftir stokk-
öndinni. Þótt ástandið sé ekki
gott hér á norðanverðu Snæfells-
nesi þá er það alls ekki lýsandi fyr-
ir ástandið á gæsastofninum. Sum-
arið var mjög gott og margir ungar
sem komust á legg. Það verður því
mikið af gæs, þar sem hún verður.
Mér finnst líklegt að vilji menn fá
góða veiði í ár þurfa þeir að vera
á Suðurlandi. Ég mun samt fara í
næstu viku og reyna að ná mér í
nokkrar gæsir. Í næstu viku gætu
fleiri fuglar verið komnir úr sárum
auk þess sem ekki þarf að byrja eins
snemma þar sem það munar alveg
heilum klukkutíma á birtuskilyrð-
um,“ segir gæsaskyttan Sumarliði
Ásgeirsson um upphaf gæsaveiði-
tímabilsins. Rætt var við hann í
síðustu viku.
jsb
Sumarliði í felulitunum og með tvíhleypuna sem hann notar á veiðum.
Landssöfnun
6. september
Öll njótum við þess að láta go� af okkur leiða.
Þann 6. september gefst kjörið tækifæri. Við gerumst
sjál�oðaliðar Rauða krossins part úr degi, göngum
í hús og söfnum fé til hjálparstarfs innanlands.
GAKKTU MEÐ OKKUR
Skaðaminnkun + Konukot + Athvörf + Neyðaraðstoð + Skyndihjálp
Fjölskyldumiðstöð + Fatasöfnun + Hjálparsíminn + Hælisleitendur
Sjúkrabílar + Heimsóknarvinir + Þjónusta við innflytjendur
Skráning og nánari upplýsingar
á raudikrossinn.is.
Af mannúð í ár(1.500 kr. framlag)
904 1500
(2.500 kr. framlag)
904 2500
5.500 kr. framlag)
904 5500
Söfnunarsími Rauða krossins