Skessuhorn


Skessuhorn - 30.12.2014, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 30.12.2014, Blaðsíða 9
9ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014 www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur næst út: Miðvikudaginn 7. janúar Miðvikudaginn 14. janúar Miðvikudaginn 21. janúar Miðvikudaginn 28. janúar Pantanir í blaðið 7. janúar þurfa að berast fyrir hádegi mánudaginn 5. janúar. Útgáfan næstu vikur AKRANESSTRÆTÓ KYNNING Á BREYTTRI AKSTURSLEIÐ Þann 1. janúar 2015 taka í gildi breytingar á akstursleið Akranesstrætó og ferðafjöldi verður aukinn um eina ferð. Akstursleiðirnar verða tvær, annars vegar morgunferð og hins vegar seinni ferð. www.akranes.is s. 866 2097 Minnum á flugeldasölu okkar Aldrei meira úrval og frábært verð Sölustaður: Kjaransstaðir, Hvalfjarðarsveit Jólastund á Jaðri Heimilisfólk og starfsmenn dvalar- heimilisins Jaðars í Ólafsvík gerðu sér glaðan dag mánudaginn 22. desember síðastliðinn þegar haldin voru Litlu jólin. Góðir gestir komu einnig og nutu stundarinnar. Þor- steinn Jakobsson kom og spilaði jólalög á harmonikku ásamt Sól- eyju Jónsdóttur sem söng nokkur jólalög. Signý Rut Friðjónsdótt- ir las jólavísu og Steinunn Stefáns- dóttir færði heimilisfólki jólagjöf. Óttar Sveinbjörnsson kom í heim- sókn færandi hendi ásamt tveim- ur barnabörnum, en verslunin Blómsturvellir hefur í 15 ár kom- ið í heimsókn á Dvalarheimilið til að gleðja heimilisfólk með ýmsum gjöfum. Áður en dóttursynir Ótt- ars útdeildu gjöfunum sagði hann heimilisfólki og gestum sögu frá að því þegar hann var barn. Að sögn Júníönu, dóttur Óttars, er þetta góð hefð og veitir ánægju á báða bóga. „Sérstaklega er þetta gam- an eftir að krakkarnir mínir fóru að fylgja afa sínum,“ sagði Júníana. Í lokin skiptust svo starfsmenn og heimilisfólk á gjöfum eftir að hafa fengið sér heitt súkkulaði og kræs- ingar. Það ríkti sannarlega jólaandi á þessari notalegu stund á dvalar- heimilinu. þa Á myndinni eru Pétur Steinar og Brynjar Óttar Jóhannssynir, dóttursynir Óttars, Óttar Sveinbjörnsson og Inga Jóhanna Kristinsdóttir forstöðukona á Jaðri. Pollinn veitti skjól Það var ekki alltaf auðvelt að finna skjól þegar vetrar- veður geisa hvað hörðust. Hann dó þó ekki ráðalaus mávurinn sem þarna kúrir. Hann nýtti sér bryggju- polla við Ólafsvíkur- höfn til að híma við og skýldi sér fyrir vindinum. þa Matarveisla og skemmtikvöld Söngbræðra framundan Karlakórinn Söngbræður heldur hina árlegu og rammþjóðlegu veislu sína í Logalandi í Reykholtsdal, laugardaginn 10. janúar kl. 20:00. Veislan verður með hefðbundnu sniði; söngur, matur og aftur söngur. Á matseðlinum verða svið frá Fjalla- lambi, heit og köld, saltað hrossakjöt ásamt meðlæti; rófustöppu og kart- öflumús. Eitthvað verður dagskrá- in svo krydduð með léttmeti. Gestir Söngbræðra að þessu sinni eru karla- kórarnir Grundartangakórinn og Sprettskórinn, sem áður hét Gusts- kórinn, en þarna er vísað til hesta- mannafélagsins Spretts, sem varð til við sameiningu hestamannafélag- anna Gusts í Kópavogi og Andvara í Garðabæ. Stjórnandi beggja kór- anna er Atli Guðlaugsson, tromp- etleikari og skólastjóri Listaskóla Mosfellsbæjar. Báðir flytja kórarnir létta tónlist og sjálfsagt verður stutt í hestamennskuívafið. Stjórnandi Söngbræðra er sem fyrr Viðar Guðmundsson frá Kað- alsstöðum, sem býr nú sauðfjárbúi á Miðhúsum á Ströndum. Með- leikari er Heimir Klemenzson frá Dýrastöðum í Norðurárdal. Hljóm- sveit kórsins skipa auk stjórnanda og meðleikara þeir Bjarni Guðmunds- son á gítar og Guðbjartur A. Björg- vinsson harmónikkuleikari. Að sögn Gunnars Arnar Guð- mundssonar formanns Söngbræðra koma sviðin frá Kópaskeri, af þing- eyskum gæðadilkum, sviðið með Kósangasi, en ekki með súr, sem gefur þeim aldeilis hreint himneskt bragð, eins og um heimasviðið væri að ræða. Hrossakjötið er af borg- firskum fyrrum gæðingi, saltað af kunnáttumönnum innan kórsins. Kartöflurnar koma svo úr Þykkva- bænum og rófurnar frá Reykjum, allt úrvals matvæli, vottuð og stimpl- uð. En félagar í kórnum sjá sjálfir um eldmennsku og framreiðslu. Verðið er að sögn mjög hóflegt, en það kosta 4.000 kr. inn á skemmt- unina. Aðrar léttar veitingar verða einnig seldar á hóflegu verði, sem ekki má auglýsa. Unnt er að panta miða í síma 894-9535 fyrir klukkan 22 fimmtudaginn 8. janúar. Meðfylgjandi eru svipmyndir frá sviða- og hrossakjötsveislu kórsins. mm

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.