Skessuhorn


Skessuhorn - 30.12.2014, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 30.12.2014, Blaðsíða 24
www.skessuhorn.is Ertu nokkuð að missa af? Ertu áskrifandi? Áskriftarsími: 433 5500 og www.skessuhorn.is Áramótaþorskurinn sóttur á þriðja degi jóla Ein af línutrillunum í Ólafsvík heldur í róður að morgni laugardagsins 27. desember. Dragnótarbáturinn Ólafur Bjarnason SH brunar af stað á miðin á laugardaginn. Sigurður Scheving á Lilju SH dásamar fiskinn sem hann dró úr sjó þriðja dag jóla. Skipverjar á nokkrum bátum í Ólafs- vík notuðu góðviðrið á laugardag- inn, þriðja dag jóla, og réru til fiskj- ar. Flestir þeirra höfðu tekið langt frí um jólin. Með því að róa á þriðja degi jóla voru menn bæði að horfa til þess að það spáði illa í byrjun þessar- ar viku en líka vegna væntinga um að ná góðu fiskverði á mörkuðum síð- ustu dagana fyrir áramót. Víða er- lendis er sterk hefð fyrir því að fólk borði fisk um áramót eftir mikla kjötneyslu um jólin. Viðskiptavin- ir íslenskra sjómanna og fiskfram- leiðenda í ýmsum markaðslöndum vilja fá sinn nýársfisk. Eftirspurnin er mikil miðað við framboð og því góður möguleiki að fá góð verð. Afli Ólafsvíkurbátanna var með ágætum þennan dag. Línutrillan Lilja SH var með um tvö tonn á 24 bala úr veiðiferðinni. Sigurður Scheving á Liljunni kvaðst þó al- veg hafa viljað fá meira. „Ekki al- veg sáttur,“ sagði hann og brosti þegar fréttaritari átti leið um höfn- ina í Ólafsvík. Þeir sjómenn sem réru þennan dag gátu þó verið sáttir. „Það eru dúndurverð á öllum helstu teg- undum sem eru að koma í land hér núna. Aflabrögðin eru fín miðað við hvernig veðrið er búið að vera. Það er að fiskast vel milli jóla og nýárs. Menn fara örugglega bros- andi inn í nýja árið,“ sagði Ósk- ar Meldal Gíslason hjá Fiskmark- aði Íslands í Ólafsvík í samtali við Skessuhorn í gær, mánudag. mþh/Ljósm. af

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.