Skessuhorn - 30.12.2014, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014
Michelle Bird er bandarísk að upp-
runa. Hún fæddist í San Francisco,
ólst upp þar í borg og víðar í Kali-
forníu og á Hawaii. Michelle lærði
myndlist í Bandaríkjunum og Hol-
landi þar sem hún bjó um skeið.
Hún hefur einnig búið í um ár á
Indlandi þar sem hún dvaldi við
handverksnám. Til Íslands flutti
Michelle frá Sviss þar sem hún bjó
og starfaði um nokkurra ára skeið á
vinnustofu sinni. Michelle Bird hef-
ur haldið sýningar víða um Evrópu
og í Bandaríkjunum. Einnig hefur
hún flutt fyrirlestra um myndlist,
staðið fyrir vinnuhópum í málara-
list (svonefndum „workshops“) og
lagt stund á listrænt handverk svo
sem leirmunagerð. Í maí síðast-
liðnum settist hún að í Borgarnesi
þar sem hún hefur keypt sér hús og
komið sér fyrir.
Féll fyrir töfrum
landsins
Michelle hefur þannig búið í Borg-
arnesi í sjö mánuði. Þó er liðið ár
síðan hún flutti búferlum til Ís-
lands. Fyrstu mánuðina notaði hún
meðal annars til að læra íslensku.
Henni er að takast mjög vel að ná
valdi á málinu. Í upphafi viðtalsins
talar hún íslensku áður en við skipt-
um yfir í enskuna.
„Mig langaði til að flytja til Ís-
lands vegna þess að ég fann þörf
fyrir að öðlast eins konar yfirsýn í
lífi mínu, finna góðan stað að búa
á þar sem ég gæti skynjað betur
hvað skipti raunverulega máli. Ég
kom fyrst til landsins fyrir tveimur
árum. Þá var mér og nokkrum öðr-
um listamönnum boðið að koma
að listasetrinu Bæ á Höfðaströnd í
grennd við Hofsós og dvelja þar í
rúmlega mánuð við vinnu. Ég varð
algerlega heilluð af víðerninu hér
og stórfenglegu landslaginu. Hugs-
aði með mér að þessi staður, Ísland,
væri hreinlega frábær. Ég hafði
aldrei séð jafn hreina og tæra nátt-
úru þar sem mér leið jafn vel,“ seg-
ir Michelle.
Keypti hús í Borgarnesi
Heim komin til Sviss átti hún erfitt
með að gleyma dvöl sinni á Íslandi.
Landið sótti á huga hennar. „Ég
sneri nokkrum sinnum aftur til Ís-
lands að þessari dvöl lokinni. Síðan
var ég hér á landi í nokkra mánuði
yfir sumartímann 2013. Eftir það
ákvað ég að flytjast búferlum hing-
að. Setti allt mitt í 20 feta gám og
sendi hann frá Sviss til Íslands. Það
gekk frábærlega, Eimskip stóð sig
vel í flutningnum. Ekki einn hlut-
ur haggaðist á leiðinni yfir hafið.
Ég keypti mér svo hús hér í Borg-
arnesi á yndislegum stað með fal-
legu útsýni til vesturs í átt að Hafn-
arfjalli. Fyrst féll ég fyrst og fremst
fyrir útsýninu héðan úr Borgarnesi.
Ég hafði enga hugmynd um það
hvað bærinn var dásamlegur stað-
ur að öðru leyti, hvað fólkið hérna
er gott.“
Eins og rakið var hér í upphafi þá
hefur Michelle búið víða um heim.
Þykir henni ekki mikil viðbrigði að
setjast að í þorpi á vesturströnd Ís-
lands? Michelle brosir breitt þeg-
ar hún er spurð að þessu. „Ertu að
grínast? Hér er aldrei rólegt. Að
búa hér er eins og að vera um borð
í skipi úti á miðju Atlantshafi. Um-
hverfið er alltaf að breytast.“
Vinalegt og gott fólk
Michelle útskýrir þetta nánar. Bæði
er það íslenska náttúran sem heillar
hana í margbreytileika sínum, en
manneskjurnar eru ekki síður að-
laðandi. „Mér finnst ég eiga meiri
og betri samskipti við fólk hér held-
ur en ef ég byggi í stórborg. Þar er
allt svo ópersónulegt. Fólk talar
ekki saman, það er miklu sjaldn-
ar vingjarnlegt hvers í annars garð.
Hér á Íslandi og í Borgarnesi er
þetta öðruvísi. Fólk er vingjarnlegt
en um leið hefur hver og einn nægt
rými fyrir sig. Þetta er öðruvísi en
annars staðar þar sem ég hef búið
í heiminum. Á mörgum stöðum er
fólk hreinlega alls ekki vingjarnlegt
hvert við annað. Þú getur lent í því
að eiga nágranna sem eru beinlín-
is óvinveittir. Kannski gæti svipað
gerst hér, en þó held ég ekki. Fólk
er einlægt og vinsamlegt,“ segir
Michelle og hlær.
Heldur nú sýningu í
Borgarnesi
Þessa hrifningu Michelle á fólkinu
sem hún hefur kynnst í Borgarnesi
má glöggt sjá í þeim verkum sem
hún hefur skapað síðan hún flutti
þangað og kom sér fyrir. Síðustu
mánuðir hafa verið frjóir í sköpun-
inni. Hún bendir á mörg stór mál-
verk og segist alls hafa málað um
14 slík á síðustu þremur mánuð-
um. Vinnugleðin hefur verið slík
að nú ætlar hún að halda málverka-
sýningu í Safnahúsinu í Borgarnesi.
Sýningin verður opnuð 10. janúar
næstkomandi.
„Meginþema sýningarinnar verða
verk sem ég hef málað hér í Borg-
arnesi. Þau sýna portrett af fólki
sem býr hér í bænum. Þrátt fyrir að
ég væri mjög hrifin af þessari yfir-
þyrmandi fallegu náttúru hér á Ís-
landi þá var það svo að fólkið hér í
Borgarnesi náði mjög sterklega til
mín þegar ég fór að kynnast því.
Mig langaði því til að gera myndir
af þeim. Þetta er yndislegar, hlýjar,
afar vingjarnlegar og opnar mann-
eskjur. Þau hafa reynt að aðstoða
mig í hvívetna.“
Stendur yfir í
fimm vikur
Michelle hefur þó einnig leyft
áhrifum landsins að höfða til sköp-
unargáfunnar á síðustu mánuðum.
Þannig er það bæði fegurð mann-
lífs og náttúru Borgarness og Vest-
urslands sem fær að brjótast fram í
þeirri listrænu tjáningu sem lesa má
úr nýjustu málverkum hennar.
„Ég hef einnig málað landslags-
verk á sama tíma, til dæmis Hafn-
arfjallið. Það horfir til mín dag-
lega. Stórkostlegt fjall sem breyt-
ist í sífellu. Það heillar mig. Þó leið
nokkur tími eftir að ég flutti hing-
að þar til ég lagði í að byrja að mála
mynd af því. Mér fannst svo erfitt
að átta mig á Hafnarfjalli. Það tók
sífelldum breytingum í ásýnd. Sam-
spil lita, ljóss og skugga í þessu fjalli
séð héðan úr Borgarnesi er magn-
að. Til að byrja með rissaði ég bara
upp myndir af því í flýti. Jafnvel það
var áskorun því fjallið breytti útliti
sínu svo hratt.“
Sýning Michelle Bird í Safna-
húsinu stendur til 23. febrúar. Hún
opnar klukkan 13:00 þann 10. janú-
ar. Síðan verður hún opin alla virka
daga klukkan 13 til 18 út sýning-
artímabilið og aðgangur er ókeyp-
is. „Í anddyri sýningarinnar ætla ég
að setja upp litla vinnustofu. Þar
hyggst ég sýna nokkur verk sem
eru í vinnslu. Inni í sjálfum sýning-
arsalnum verða svo portrettmynd-
ir af fólkinu í Borgarnesi og nokkur
landslagsmálverk,“ segir Michelle
Bird. mþh
Listakonan Michelle Bird:
Heilluð af fegurð Íslands og góðu fólki í Borgarnesi
Málverk af Jökli.
Michelle Bird í vinnustofu sinni í Borgarnesi. Hún horfir upp á málverk sitt af Ástu en hún er meðal þeirra íbúa í Borgarnesi sem Michelle hefur fest á léreft nú í haust og
vetur. Að baki hennar er svo eitt af málverkunum hennar af Hafnarfjalli.
Mynd Michelle af blómgyðjunni Kötu.
Portett sem sýnir þau Sigurstein og Önnu Sigríði.