Skessuhorn


Skessuhorn - 30.12.2014, Síða 22

Skessuhorn - 30.12.2014, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014 Ný norræn matargerð verð- ur þekktari á heimsvísu með ári hverju. Danskur veitingastaður hefur verið valinn besti veitinga- staður í heimi í nokkur ár. Í lok nóvember síðastliðinn hlaut ís- lenska kokkalandsliðið tvenn gull- verðlaun og endaði í fimmta sæti í heimsmeistarakeppni kokkalands- liða. Þetta er besti árangur íslenska landsliðsins í matreiðslu. Nú líður að einstaklingskeppninni Bocouse d‘Or sem er heimsmeistarakeppni einstaklinga í matreiðslu og verð- ur haldin nú í janúar. Sigurð- ur Helgason matreiðslumaður á Grillinu á Hótel Sögu hefur öðlast keppnisrétt í Bocouse d‘Or keppn- inni með góðum árangri í Evrópu- keppninni síðastliðið vor. Sigurður er Skagamaður að ætt og uppruna en Helgi faðir hans var gjarnan kenndur við Málningarþjónustuna á Akranesi. Hann hefur verið liðs- félagi í kokkalandsliðinu nokkrum sinnum en var ekki með í ár vegna undirbúningsins fyrir einstaklings- keppnina. Sigurður nýtur aðstoð- ar þjálfara kokkalandsliðsins, sem náði svo góðum árangri í haust. Kostnaður við þátttöku í einstak- lingakeppninni sem Sigurður tek- ur þátt í er mjög mikill. Sérstakt hlutafélag hefur verið stofnað til að halda utan um söfnun pen- inga vegna kostnaðar Sigurðar við keppnina. Hlutafélagið heitir Siggi Helga ehf. og er umsjónarmaður með söfnuninni Magnús H. Ólafs- son Akranesi, mark@isholf.is Eldfjall verði skapað á bakkanum Heimsmeistarakeppni einstaklinga fer fram í Lyon í Frakklandi 27.-28. janúar. Keppnisdagarnir eru tveir og allir 24 keppendurnir þurfa að reiða fram 14 forréttadiska og síð- an einn bakka sem á er aðalréttur- inn, einnig fyrir 14 manns. Sigurð- ur tengir saman í matargerð sinni ímynd hreinleika landsins, afurð- ir þess og náttúrufegurð. For- svarsmenn stuðningsmannafélags- ins Sigga Helga ehf. með Magn- ús H. Ólafsson í broddi fylking- ar telja raunverulegan möguleika á því að Íslendingar eignist besta matreiðslumann í heimi í þessari frægu keppni sem Bocouse d‘Or er. Sigurður hefur notið aðstoð- ar Sindra Gunnarssonar hönnuð- ar við að hanna bakkann. Hug- myndin er að skapa svolítið eldfjall á bakkanum þegar hann verður borið fram. Bakkinn er hringlaga 90 sm í þvermál. Grunnur bakk- ans er spegilstál með sandblásturs munstri til að undirstrika eldfjall- ið og náttúru Íslands. Eldfjallið er gert úr álstrendingum í stuðla- bergsformi með álskál í formi eld- gígs. Burðargrindin undir bakk- anum er gerð úr áli. Aðrir íhlutir, sem tengjast matnum sjálfum, eru gerðir úr silfri. Heildarkostnaður við gerð bakkans er átta milljónir króna. Gerður hefur verið sérstak- ur bæklingur um þátttöku Sigurð- ar Helgasonar í keppninni og má nálgast hann með því að hafa sam- band við Magnús Ólafsson í síma 893 2002 eða senda honum tölvu- póst. Glæsilegur ferill Sigurður Helgason fæddist á Akra- nesi 4. ágúst 1978 og lauk grunn- skólaprófi frá Grundaskóla. Árið 1997 fluttist hann í Kópavoginn og hóf nám við Menntaskólann í Kópavogi og síðar í Hótel- og veitingaskólanum. Sigurður byrj- aði matreiðsluferil sinn á veitinga- húsinu Perlunni árið 1998. Hann var valinn matreiðslunemi árs- ins árið 1999 og útskrifaðist með hæstu einkunn árið 2001. Á ár- unum 1999 -2001 starfaði hann hjá embætti Forseta Íslands við veisluundirbúning undir sterkri leiðsögn Sturlu Birgissonar mat- reiðslumeistara. Að loknu námi hélt Sigurður til Lúxemborgar þar sem hann starfaði á Resturant Lea Linster´s í sex mánuði, en sá stað- ur skartar einni Michelin stjörnu. Árið 2004 tók Sigurður við sem yf- irmatreiðslumaður á Skólabrú og starfaði þar til ársins 2006. Á ár- unum 2006-2010 starfaði Sigurður utan lands sem einkakokkur á Eng- landi, Írlandi og New York. Á ár- unum 2004-2006 starfaði Sigurður með Íslenska kokkalandsliðinu, þar sem liðið vann til verðlauna m.a. á Ólympíuleikunum í Þýskalandi, í Scot Hot í Glasgow og í Basel í Swiss. Á undarfönum árum hefur Sigurður ferðast mikið til að skoða leiðandi veitingastaði og mótað þann matarstíl, sem hann leggur upp með í matargerð sinni í dag. Árið 2010 hóf hann störf á Grill- inu í Hótel Sögu og árið 2011 tók hann þar við sem yfir matreiðslu- maður og starfar þar enn. Hráefni og bragð úr náttúrunni Matreiðslustefna Sigurðar er létt og nútímaleg. Hann hefur það að leiðarljósi að hráefni fái að njóta sín til fulls með hreinu bragði, árstíðarbundnu hráefni og fram- andi aðferðum í eldun. Sigurður notar eingöngu hágæða hráefni, sem er það ferskasta hverju sinni og frá heimasvæði. Virðing fyrir náttúrunni skiptir Sigurð miklu. Í sinni matreiðslu notast hann við hráefni og bragð úr náttúrunni. Hann stundar hvoru tveggja skot- og stangveiðar og að tína úr land- inu það sem það hefur upp á að bjóða hverju sinni. Íslensk náttúra hefur því mikil áhrif á matreiðslu- stefnu Sigurðar. Áhugamálin eru veiðar, fluguhnýtingar, snjóbretti, klifur og vinnan. „Það má segja að áhugamálin tengist matreisl- unni beint og óbeint. Vegna langra vinnudaga í heitu eldhúsi þykir mér ómissandi að eiga daga sem ég get notið undir berum himni. Ekki skemmir að vera kominn út á land, við veiðar, í göngu um landið og þá helst að tína ber, sveppi, jurtir eða vera moldugur upp fyrir haus í garðvinnu. Auðvitað snýst þetta allt um að geta aflað sér matar og að gleðja aðra með mat úr íslenskri náttúru. Það er skemmtilegt þegar bæði vinna og áhugamál fara sam- an.” Gríðarlegur kostnaður fylgir þátttökunni Íslenska Bocouse d‘Or Akademí- an styður mjög vel við bakið á Sig- urði Helgasyni. Akademían út- vegar æfingaaðstöðu í fimm mán- uði, allt hráefni til æfinga, þjálf- ara, aðstoðarfólk og svo ferðina til Lyon með keppendur, farastjóra og tonn af hráefni og búnaði. Það félag er í eigu ellefu íslenskra mat- reiðslumeistara sem allir hafa látið mikið að sér kveða á undanförn- um árum. Þeir hafa verið í fremstu víglínu fyrir Íslands hönd í ýmsum matreiðslukeppnum, sem fyrrver- andi og núverandi landsliðsmenn. Sjö úr þessum hópi hafa tekið þátt í Bocuse d’Or keppninni í Lyon í Frakklandi og náð þar góðum árangri. Gríðarlegur kostnaður fylgir því fyrir Sigurð að taka þátt í þessum tveimur keppnum, Evr- ópukeppninni síðasta vor og nú Heimsmeistarakeppninni. Hann þarf sjálfur að bera talsverðan hluta kostnaðar við þátttökuna. Áætlaður beinn kostnaður við æf- ingar og sjálft ferðalagið er um 20 milljónir króna. Þess má geta að Sigurður fór með rúmlega 800 kg af eldhústækjum og -tólum í for- keppnina ásamt 150 kílóum af ís- lenskum matvælum. Í tilkynningu frá stuðningsmannafélagi hans segir að allur stuðningur sé vel þeginn og þegar framlög berast verði kvittun fyrir greiðslu send á viðkomandi. Styrkir til félags- ins Siggi Helga ehf. bera ekki virðisaukaskatt. Ef áhugasam- ir vilja veita Sigurði fjárhagsleg- an stuðning þá er reikningsnúm- erið 0133-26-000700 og kennitala SiggaHelga ehf. er 700914 - 0540. þá Hvað finnst þér helst standa uppúr frá liðnu ári? Spurning vikunnar (Spurt í Borgarnesi) Einar O. Pálsson: Góð heilsa þannig að mér tókst að komast framúr bælinu og klæða mig hjálparlaust alla daga ársins. Sjöfn Hilmarsdóttir: Eldgosið í Holuhrauni og fjár- lagafrumvarpið með matarskatt- inum. Karen Ýr Þórarinsdóttir: Ég fæddi dóttir mína 16. febrú- ar. Sigurður Guðmundsson: Góður árangur Sjálfstæðisflokks- ins í sveitarstjórnarkosningunun í vor. Logi Sigurðsson: Ég ók hringinn í fyrsta sinn í sumar. Skagamaður í keppni bestu matreiðslumanna heimsins Kynningarveggspjald af Sigga Helga vegna keppninnar stóru. Ungur drengur í skóla. Siggi með afa sínum og nafna.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.