Læknablaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 39
LÆKNABLAÐIÐ
Breytingar hjá Læknablaðinu
Um áramót urðu ritstjórnarfulltrúaskipti á
Læknablaðinu. Birna Þórðardóttir sagði starfi sínu
lausu í haust og hætti um áramót eftir margra ára starf
hjá læknafélögunum og Læknablaðinu. Birna vann
fyrst á skrifstofu félaganna, síðan við Fréttabréf lækna
sem ritstjóri og loks sem ritstjórnarfulltrúi Lækna-
blaðsins. Ritstjórn Læknablaðsins þakkar henni fyrir
langa trúmennsku og ánægjulegt samstarf og óskar
henni velfarnaðar á nýjum vettvangi. í störfum sínum
við Læknablaðið hefur Birna borið hitann og þung-
ann af framkvæmd þeirra breytinga sem á blaðinu
hafa orðið á síðustu árum og nægir þar að nefna að
prentun og framleiðsla var flutt frá Danmörku til ís-
lands, sameiningu fréttabréfs og blaðs og útlitsbreyt-
ingu blaðsins fyrir tveimur árum. Eftir á að hyggja er
erfitt að hugsa sér að hægt hefði verið að gera þessa
hluti án þess að Birna hefði komið að þeim. Svo mikið
og náið hefur Birna unnið að öllum þáttum í fram-
leiðslu blaðsins að engu er líkara en að Læknablaðið
og Birna hafi verið eitt. Það hefur og greinilega komið
í ljós eftir að það spurðist út að Birna væri að hætta að
höfundar efnis og viðskiptamenn hafa kunnað að
meta störf hennar, staðfestu og trúnað við blaðið.
Eitt það síðasta sem Birna hefur lagt hönd á
plóg við er gerð samnings um hönnun vefútgáfu
Læknablaðsins. I honum er gert ráð fyrir að blaðið
allt komi á vefnum í þeirri mynd sem það birtist á
pappírnum. Blaðið mun verða óbreytt, vefurinn
mun geyma viðbótarútgáfu sem öllum verður opin
og aðgengileg á slóðinni: www.icemed.is/laekna-
bladid. Frá og með mánaðamótum janúar/ febrúar
verður því hægt að lesa blaðið af tölvuskjánum.
Ætlunin er að hægt verði að leita að efni í vefútgáf-
unni eftir höfundum, fyrirsögnum og einstökum
orðum. Þannig heldur blaðið áfram að þróast.
Til þess að taka við starfi Birnu Þórðardóttur
Samningar um hönnun
vefútgáfu Lœknablaðsins
undirritaðir. Frá vinstri:
Hringur Hafsteinsson hjá
Gagarín, Birna Pórðar-
dóttir og Vilhjálmur
Rafnsson.
Védís Skarphéðinsdóttir
ritstjórnarfulltrúi Lœkna-
blaðsins.
hefur Védís Skarphéðinsdóttir verið ráðin sem rit-
stjórnarfulltrúi. Védís hefur kanditatspróf í ís-
lenskum bókmenntum og hefur auk annars verið
ritstjóri hjá Eddu - miðlun & útgáfu. Hún er boðin
velkomin til starfa.
VlLHjÁLMUR RAFNSSON
ÁBYRGÐARMAÐUR
Læknablaðið 2002/88 39