Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FÉLAG UM LÝÐHEILSU .ýðheílsa snertír okkur öll - segir Geir Gunnlaugsson formaður nýstofnaðs Félags um lýðheilsu Geir Gunnlaugsson formaður Félags um lýðheilsu. Ljósm. -ÞH í BYRJUN DESEMBER VAR HALDINN STOFNFUNDUR Félags um lýðhcilsu og fór hann fram í Heilsuvernd- arstöðinni í Reykjavík. Fundurinn var vel sóttur og meðal fundarmanna voru heilbrigðisráðherra, land- læknir og forystumenn úr læknafélögunum. Félaginu var kosin stjórn en formaður hennar er Geir Gunn- laugsson yfirlæknir á Miðstöð heilsuverndar barna til húsa í Heilsuverndarstöðinni. Læknablaðið tók Geir tali og innti hann fyrst eftir því hver tildrög þessarar félagsstofnunar hafi verið. „Upphafið má rekja til námskeiðs um heilsu- fræðslu og lýðheilsustarf sem haldið var á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla Islands síðast- liðið vor. Námskeiðið sótti á fjórða tug þátttakenda og í umræðum meðal þátttakenda var þeirri spurn- ingu varpað fram hvort ekki væri tímabært að stofna félag um lýðheilsu. Lýðheilsa er í sjálfu sér ekkert nýnæmi. Hún felst fyrst og fremst í forvarnarstarfi og hefur verið unnið að henni alla síðustu öld ef ekki Tilgangur Félags um lýðheilsu I 2. grein laga hins nýstofnaða félags segir svo um tilgang félagsins: Félag um lýðheilsu er félag fagmanna og áhugafólks um lýðheilsu á íslandi. Tilgangur félagsins er að: • Hvetja til þess að heilbrigðissjónarmiða sem byggð eru á bestu þekkingu á hverjum tíma sé gætt við stefnumótun og aðgerðir stjórnvalda. • Vekja athygli almennings á möguleikum til að hafa áhrif á eigið heilbrigði og leiðir til heilsueflingar. • Hvetja til samstarfs þeirra sem starfa á vettvangi lýðheilsu og þeirra sem geta haft áhrif á heilsufar og velferð landsmanna, s.s. sveitarfélaga, skóla og stofnana. • Vinna að bættu heilsufari þjóðarinnar með því að standa vörð um gæði þjón- ustu á sviði lýðheilsu og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu. • Stuðla að menntun, þróun og rannsóknum á sviði lýðheilsu og beitingu viðurkenndra aðferða við mat á árangri verkefna. Starf félagsins grundvallast á hugmyndum um jafnræði til heilbrigði. Fé- lagið leggur áherslu á félagslegt réttlæti, jafnrétti, tjáningarfrelsi, frið, gagn- kvæma virðingu og umburðarlyndi í samskiptum og skoðanaskiptum ... lengur. Menn finna hins vegar fyrir því núna að það er vaxandi þörf fyrir þverfaglegt samstarf á þessu sviði enda verður forvarnarstarf ekki unnið nema til komi samvinna margra úr ólíkum fögum og mörgum ráðuneytum. I framhaldi af þessu var efnt til undirbúnings- fundar í maí en þar mætti allstór hópur fólks úr ýms- um starfsgreinum. Par var Sigrúnu Gunnarsdóttur á Landspítalanum og Önnu Björgu Aradóttur hjá Landlæknisembættinu falið að undirbúa stofnfund og þær höfðu svo samband við mig til skrafs og ráðagerða. Eftir að hafa samið drög að samþykktum félagsins ákváðum að efna til stofnfundar 3. desem- ber. Þangað buðum við heilbrigðisráðherra og land- lækni en þeir hafa báðir sýnt þessu málefni mikinn áhuga og stutt okkur með ráðum og dáð.“ - Hvernig félag er Félag um lýðheilsu? „Það er hvorki flokkspólitískt né úlibú frá ráðu- neytinu eða landlækni heldur vettvangur til þess að ræða lýðheilsu og forvarnir. Þetta er ekki lokaður klúbbur fólks með menntun á sviði heilbrigðismála heldur er félagið opið öllum sem hafa áhuga á lýð- heilsu." Komin í Evrópusamstarf Félög um lýðheilsu eru starfandi víða um heim og er íslenska félagið þegar orðið aðili að Evrópusamtök- um um lýðheilsu. Að þeim samtökum eiga aðild landssamtök um lýðheilsu í 26 löndum Evrópu en samtökin hafa starfað í rúm níu ár. „Þetta gekk hratt fyrir sig,“ segir Geir. „Stofn- fundurinn var haldinn 3. desember en þann 6. desem- ber var búið að leggja fram umsókn um aðild að Evrópusamtökunum sem þá héldu aðalfund sinn í Brussel. Þar var hún samþykkt með lófataki svo við erum nú fullgildir aðilar. Að þessum samtökum eiga aðild félög í flestum löndum Vestur-Evrópu og æ fleiri lönd í austanverðri álfunni sýna því áhuga og eru með. Samtökin gefa út fræðirit um lýðheilsu, European Journal of Public Health, sem allir félags- menn fá sent heim til sín sem hluta af félagsgjaldinu. Mönnum verður æ ljósara að starf að lýðheilsu verður ekki unnið af neinu viti í einu landi því sjúk- dómar virða engin landamæri á tímum hnattvæðing- ar. Sem dæmi má nefna að stuðningur við lýðheilsu í austurhluta Evrópu er óbeinn stuðningur við lýð- heilsu hér á landi. Það hrundi ýmislegt með Berlínar- múrnum, þar á meðal mörg forvarnarkerfi sem höfðu verið í gangi. Þar nægir að nefna berklavarnir. Þessi mál snerta því okkur öll.“ Læknablaðið 2002/88 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.