Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.01.2002, Qupperneq 46

Læknablaðið - 15.01.2002, Qupperneq 46
VIOXX MSD 990068 TÖFLUR MOIAH Virkt innihaldscfni: 12,5 mg eða 25 mg rofekoxib. Töflumar inni- halda laktósu. Ábendingar: Meðferð viö cinkennum af völdum slitgigtar. Skammtar: Ráðlagður upphafsskammtur er 123 mg einu sinni á dag. Hámarksskammtur á dag er 25 mg. Aldraðir: Cæta skal varúðar þegar dagskammturinn er aukinn úr 12,5 mg í 25 mg hjá öldruðum. Skert nýrnastarfsemi: Skammta þarf ekki að aðlaga hjá sjúklingum með kreatínín klcrans 30-80 ml/mín. Skert lifrarstarfsemi: Sjúklingum með væga skerðingu á lifrarstarfsemi (Child-Pugh gildi 5-6) skal ekki gefa meira en minnsta ráðlagðan skammt, 12,5 mg einu sinni á dag. Frábcndingan Rófekoxíb er ekki ætlað: Sjúklingum sem hafa þekkt ofnæmi fyrir einhverjum af innihaldsefnum lyfsins. Sjúklingum með virkan sársjúkdóm í mcltingarvcgi eða blæðingu í meltingarvegi. Sjúklingum með miðlungsalvarlega eða verulega skcröingu á lifrarstarfsemi (Child-Pugh gildi 2 7). Sjúklingum með áætlaðan kreatínín klerans < 30 ml/mín. Sjúklingum sem hafa haft einkenni astma, bólgu í nefslímhúð, sepa i nefslímhúð, ofsabjúg eða ofsakláða cftir inn- töku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi verkjalyfja. Ttl notkunar á síðasta þriðjungi meðgöngu eða meöan á brjóstagjöf stendur. Sjúklingum með bólgusjúkdóm I þörmum. Sjúklingum meö langt gengna hjartabilun. Varnaðarorð og varúðarreglur: Þegar blóðflæði um nýru er minnkað getur rófekoxíb dregið úr myndun prostaglandína og með því minnkað blóðflæði um nýru enn meira og þannig valdið skcrðingu á nýmastarfsemi. Þeir sem eru í mestri hættu m.t.t. þessa eru sjúklingar sem hafa verulega skerta nýmastarfsemi fyr- ir, hjartabilun sem líkaminn hefur ekki náð að bæta upp, og sjúk- lingar með skorpulifur. Hafa skal eftirlit með nýmastarfsemi slíkra sjúklinga. Gæta skal varúðar þcgar meðferð er hafin hjá sjúklingum með verulegan vökvaskort. Ráölegt er að bæta slíkan vökvaskort upp áður en meðferð með rófekoxíbi er hafin. Eins og á við um önnur lyf sem koma í veg fyrir myndun prostaglandína, hafa vökvasöfnun og bjúgur átt sér stað hjá sjúklingum á rófe- koxíb meðferð. Þar sem meðferö með rófekoxíbi getur leitt til vökvasöfnunar skal gæta varúðar hjá sjúklingum sem hafa fengið hjartabilun, truflanir á starfsemi vinstri slegils eða háan blóðþrýst- ing og einnig hjá sjúklingum sem hafa bjúg fyrir, af einhverjum öðrum orsökum. Eftirlit skal haft með öldruðum og sjúklingum með truflanir á nýma-, lifrar-, eða hjartastarfsemi, þegar þeir eru á rófckoxíb meðferð. 1 klínískum rannsóknum fengu sumir slitgigt- arsjúklinganna sem voru á rófekoxíbi meðferð rof, sár eða blæð- ingar f meltingarveg. Sjúklingar sem áður höfðu fengið rof, sár eða blæöingar og sjúklingar sem voru eldri en 65 ára virtust vera í meiri hættu á að fá fyrmefndar aukaverkanir. Þegar skammturinn fer yfir 25 mg á dag, eykst hættan á einkennum frá meltingarvegi, sem og hættan á bjúgi og háum blóðþrýstingi. Hækkanir á ALAT og/eða ASAT (u.þ.b. þreföld cðlilcg efri mörk, eða meira) hafa verið skráðar hjá u.þ.b. 1% sjúklinga I klínískum rannsóknum á rófekoxíbi. Ef sjúklingur fær einkenni sem bcnda til truflana á lifr- arstarfscmi, eða niðurstöður úr lifrarprófum em óeðlilegar, skal hætta rófekoxíb meðferð ef óeðlileg lifrarpróf eru viðvarandi (þre- föld cðlilcg efri mörk). Rófekoxíb getur dulið hækkaðan líkams- hita. Notkun rófekoxíbs, sem og allra annarra lyfja sem hamla COX-2, er ekki ráðlögð hjá konum sem eru að reyna að verða þungaðar. Böm: Rófekoxíb hefur ekki verið rannsakað hjá bömum og skal aöeins gefið fullorðnum. Magn iaktósu í hverri töflu er lík- lega ekki nægilegt til þess að framkalla cinkenni laktósuóþols. Milliverkanir: Hjá sjúkiingum sem náð höfðu jafnvægi á langvar- andi warfarín meðferð varð 8% lenging á prótrombíntíma í tengsl- um við daglcga gjöf 25 mg af rófekoxíbi. Því skal hafa nákvæmt eftirlit með prótrombíntíma hjá sjúklingum sem eru á warfarín meðferð þegar rófekoxíb meðferð er hafin. Hjá sjúklingum með vægan eða miölungsmikinn háþrýsting, varð örlítil minnkun á blóðþrýstingslækkandi áhrifum í tengslum við samhliða gjöf 25 mg af rófekoxíbi á dag og ACE-hemils í 4 vikur, miðað við áhrifin af ACE-hemlinum eingöngu. Hvað varðar önnur lyf sem hamla cýclóoxýgenasa, þá getur gjöf ACE-hemils samhliða rófekoxíbi, hjá sumum sjúklingum með skerta nýmastarfsemi, leitt til enn meiri skerðingar á nýmastarfsemi, sem þó gcngur venjulega til baka. Þessar milliverkanir ber að hafa í huga þegar sjúklingar fá rófekoxfb samhliða ACE-hemlum. Notkun bólgueyðandi verkja- lyfja samhliöa rófekoxíbi gæti einnig dregið úr blóðþrýstingslækk- andi verkun bcta-blokka og þvagræsilyfja sem og annarra verkana þvagræsilyfja. Forðast skal samhliða gjöf stærri skammta af acetýlsalicýlsýru eða bólgueyðandi verkjalyfja og rófekoxíbs. Samhliða gjöf cýklósporíns eða takrólímus og bólgueyðandi verkjalyfja getur aukið eiturverkanir cýklósporíns eða takrólímus á nýru. Eftirlit skal hafa með nýmastarfsemi þcgar rófekoxfb er gefið samhliða öðru hvoru þessara lyfja. Áhrif rófekoxíbs á lyfja- hvörf annarra lyfja: Blóðþéttni litíums getur aukist af völdum bólgueyðandi verkjalyfja Hafa ber í huga þörf fyrir viðeigandi eft- irlit með eiturverkunum tengdum metótrexati þegar rófekoxib er gefiö samhliða metótrexati. Engar milliverkanir við dígoxín hafa komið fram. Gæta skal varúðar þegar rófekoxíb er gefið samhliða lyfjum sem umbrotna fyrst og fremst fyrir tilstilli CYP1A2 (t.d. teófyllfni, amitryptilíni, tacríni og zi!eútoni).Gæta skal varúðar þegar lyfjum sem umbrotna fyrir tilstilli CYP3A4 er ávísað sam- hliða rófekoxíbi. í rannsóknum á milliverkunum lyfla, hafði rófe- koxfb ckki klínfskt mikilvæg áhrif á lyfjahvörf prednisóns/predn- isólons eða getnaðarvamartaflna (etinýlöstradíóls/norethindróns 35/1). Áhrif annarra lyfja á lyfjahvörf rófekoxíbs: Þegar öflugir cýtókróm P450 innleiðarar eru ekki til staöar, er CYP-hvatt umbrot ekki meginumbrotsleið rófekoxíbs. Engu aö síður olli samhliða gjöf rófekoxíbs og rífampíns, sem er öflugur innleiðari CYP ens- íma, u.þ.b. 50% lækkun á blóðþéttni rófekoxfbs. Því skal íhuga að gefa 25 mg skammt af rófekoxíbi þegar það er gefið samhliða lyfj- um sem eru öflugir innleiðarar umbrots í lifur. Gjöf ketókónazóls (öflugur CYP3A4 hemill) hafði ekki áhrif á lyfjahvörf rófekoxíbs í blóði. Címetidfn og sýruhamlandi lyf hafa ekki klínískt þýðingar- mikil áhrif á lyfjahvörf rófekoxíbs. Meöganga og brjóstagjöf: Notkun rófekoxíbs, sem og allra annarra lyfja scm hamla COX-2, er ekki ráðlögð hjá konum sem eru að reyna að verða þungaðar. Rófekoxíb á ekki að nota á síðasta þriðjungi meðgöngu þar sem það gæti, eins og önnur lyf sem hamla myndun prostaglandina, dregið úr samdrætti legs í fæðingu og valdið ótímabærri lokun á slagæðarás. Notkun rófekoxíbs hefur ekki verið rannsökuð hjá þunguðum konum í fullnægjandi samanburðarrannsóknum og skal því ekki nota lyfið á fyrstu tveimur þriðjungum meðgöngu nema væntanlegt gagn af meðferöinni réttlæti mögulega áhættu fyrir fóstriö. Ekki er vitað hvort rófekoxíb skilst út í brjóstamjólk, en það skilst út f mjólk tilraunadýra. Konur sem eru á rófekoxíb meðferð ættu ekki að hafa böm á brjósti. Aukaverkanir. Eftirfar- andi lyfjatengdar aukaverkanir voru skráðar, af hærri tíðni en þeg- ar um lyfleysu var að ræða, í klínískum rannsóknum hjá sjúkling- um sem fengu 12,5 mg eða 25 mg af rófekoxfbi f allt að sex mán- uði. Algengar (>1 %): Almennar: Bjúgur.vökvasöfnun, kviðverkir, svimi. Hjarta- og æðakerfi: Hár blóðþrýstingur. Meltingarfæri: Brjóstsviði, óþægindi í efri hluta kviðar, niðurgangur, ógleði, melt- ingartruflanir. Taugakerfi: Höfuðverkur. Húð: Kláði. Sjaldgæfar (0,1-1 %): Almennar: Þreyta/máttleysi, uppþemba, brjóstverkur. Meltingarfæri: Hægðatregða, sár í munni, uppköst, vindgangur, nábítur. Augu, eyru, nef og kok: Eymasuð. Efnaskipti og næring: Þyngdaraukning. Stoðkerfi: Sinadráttur. Taugakerfi: Svefnleysi, svefnhöfgi, svimi.Geðræn einkenni: Geðdeyfð, minnkuð andleg skerpa. öndunarfæri: Andþyngsli. Húö: Útbrot, atópískt eksem. Að auki hafa væg ofnæmisviðbrögð verið skráð í sjaldgæfum til- vikum í klínískum rannsóknum.Aukaverkanir voru svipaðar hjá sjúklingum sem fengu rófekoxíb í eitt ár eða lengur. Breytingar á niðurstööum blóð- og þvagrannsókna: Algengar (>1 %): Hækk- un á ALAT, lækkun á hematókrít, hækkun á ASAT. Sjaldgæfar (0,1-1 %): hækkun á þvagefni, lækkun á hemóglóbíni, hækkun á kreatíníni, Hækkun á alkalískum fosfatasa, prótein í þvagi, fækk- un rauðra og hvítra blóðkoma. Eftirtaldar alvarlegar aukaverkan- ir hafa verið skráðar í tengslum við notkun bólgueyðandi verkja- lyfja og ekki er hægt að útiloka þær í tengslum við rófekoxíb: Eit- urverkanir á nýru, þ.á m. millivefs nýmabólga nýrungaheilkenni (nephrotic syndrome) og nýmabilun; eiturverkanir á lifur, þ.á m. lifrarbilun og lifrarbólga; eiturverkanir á meltingarfæri, þ.á m. rof, sár og blæðingar; eiturverkanir vegna of mikils blóðrúmmáls, þ.á m. hjartabilun og bilun í vinstri slegli; aukaverkanir á húð og slím- húðir og alvarleg viðbrögð í húð. Eins og á við um bólgueyðandi verkjalyf geta alvarlegri ofnæmisviðbrögð átt sér stað þ.á m. bráðaofnæmi án þess að viðkomandi hafi áður fengið rófekoxíb. Pakkningar og vcrð (desember, 2000): Töflur 123 mg og 25 mg: 14 stk. 2756 kr. 28 stk. 4888 kr. 98 stk. 14555 kr Afgreiðsla: Lyfseð- ilsskylda, Greiösluþátttaka: E. Handhafi markaðsleyfis: Merck Sharp & Dohme B.V., Haarlem, Holland. Umboðsaðili á Islandi: Farmasfa ehf, Síðumúla 32,108 Reykjavík. ^ MERCK SHARP& DOHME FARMAS/A ehf. EINÁDAG ÍTHKM (rófekoxíb, MSD) Sértækt - Áhrifaríkt - Einfalt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.