Læknablaðið - 15.01.2002, Page 56
GRAFtSKA SMIÐJAN EHF. - Málverk: Bilson
Hamingja hversdagsins er ekki alltaf gefin
Tafla, filmuhúðufl; N 06 A B 04 R B
Hver tafla inniheldur: Citalopranum INN, hýdróbrómið. samsvarandi Citalopranum INN10 mg, 20 mg eða 40 mg. litarefni (títantvíoxíð) E171. et constit q.s.
Ábendingar: Þunglyndi. Felmtursköst (ofsahræðsla) með eða án víðáttufælni (panic disorder with or without agarophobia). Skammtar og lyfjagjöf: Skammtar handa fullorðnum: Lyfið er gefið einu sinni á dag, en skammtar eru breytilegir. Þunglyndi: Upphafskammtur er 20 mg á dag, en má auka í 40 mg
á dag, ef þörf krefur. Ekki er mælt með hærri skömmtum en 60 mg á dag. ífjá sjúklingum eldri en 65 ára er ráðlagður skammtur helmingur ofangreindra skammta, þ.e. 10-30 mg á dag, að hámarki 40 mg á dag. Mikilvægt er að gefa lyfið a.m.k. í 2-3 vikur áður er árangur meðferðarinnar er metinn.
Meðferðarlengd er 4-6 mánuðir eftir svörun sjúklings. Felmturköst: Lágir skammtar eru notaðir í upphafi meðferðar til að draga úr likum á versnun sjúkdómsins. Ráðlagður upphafsskammtur er þannig 10 mg á dag. Eftir einnar viku meðferð er skammturinn aukinn í 20 mg á dag. Venjulegur viðhaldsskammtur
er 20-30 mg á dag. Ef svörun er ófullnægjandi má auka skammtinn en ekki er mælt með hærri skömmtum en 60 mg á dag. Við meðferð á felmturköstum nær árangur hámarki eftir u.þ.b. 3 mánuði og er viðvarandi við áframhaldandi meðferð. Skammtar handa bömum: Lyfið er ekki ætlað börnum.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir cítalóprami eða einhverjum af innihaldsefnum lyfsins. Samtímis notkun MAO-hemla. Sérstök varnaflarorfl og varúflarreglur vifl notkun: Gæta skal varúðar við gjöf lyfsins hjá sjúklingum með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi. Þunglyndi fylgir sjálfsvígshætta. sum þunglyndislyf
geta í upphafi meðferðar aukið þessa hættu. Milliverkanir vifl önnur lyf og aflrar milliverkanir: Cítalópram og MAO-hemla skal ekki gefa samtímis og skulu að minnsta kosti lífla 14 sólarhringar á milli þess að þessi tvö lyf séu gefin nema MAO-hemill hafi mjög skamman helmingunartíma. Niðurbrot
cítalóprams er aðeins að hfuta háð cýtókróm P450 ísóensíminu CYP 2D6 og ólíkt sumum öðrum sérhæfðum hemlum serótónín endurupptöku er cítalópram mjög vægur hemill þessa ensímskerfis (cýtókróm P450) sem er viðriðið umbrot margra lyfja. Próteinbinding cítalóprams er tiltölulega lítil (80%).
Vegna þessara eiginleika cítalóprams eru möguleikar þess til að valda klínískt mikilvægum milliverkunum litlir. Meflganga og brjóstagjöf: Reynsla af gjöf lyfsins hjá barnshafandi konum er mjög takmörkuð. en dýratilraunir benda ekki til fósturskemmandi áhrifa. Þangað til ítarlegri reynsla af notkun
cítalóprams hjá barnshafandi konum liggur fyrir skal það aðeins gefið að vandlega athuguðu máli. Ekki er vitað hvort lyfið skilst út í brjóstamjólk en í dýratilraunum hefur lítið magn lyfsins fundist í mjólk. Áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla: Cítalópram hefur ekki áhrif á vitsmunalegar aðgerðir og
skynhreyfigetu. Samt sem áður. má sjúklingur sem er á geðlyfjum búast við að hann hafi skerta almenna athygli og einbeitni, annaðhvort vegna sjúkdómsins sjálfs, lyfjameðferðarinnar eða hvorutveggja og því ætti að vara sjúklinga við hæfni þeirra til að aka bíl eða stjórna vélknúnum ökutækjum.
Aukaverkanir: Aukaverkanir af völdum cítalóprams eru almennt vægar og tímabundnar og ganga yfir enda þótt meðíerð sé haldið áfram. Algengasta aukaverkun lyfsins er ógleði allt að 7%. Algengar (>1%): Almennar: Höfuðverkur, aukinn svitamyndun, þreyta, slen, titringur, breytingar á þyngd og svimi.
Æðakerfi: Pungur hjartsláttur. Mifltaugakerfi: Svefntruflanir, skyntruflanir og órói. Meltingarfæri: Ogleði, hægðatregða, niðurgangur, meltingaróþægindi og munnþurrkur. Þvagfæri: Erfiðleikar við að tæma þvagblöðru. Augu: Sjónstillingarerfiðleikar. Sjaldgæfar (0,1-1%): Almennar: Almenn lasleikatilfinning.
geispar, Mifltaugakerfi: Æsingur. rugl, erfiðleikar við einbeitingu, minnkuð kynhvöt og truflun á sáðláti. Meltingarfæri: Aukið munnvatnsrennsli. Húfl: Útbrot. Öndunarfæri: Nefstífla. Augu: Stækkað Ijósop. Mjög sjaldgæfar (< 0,1%): Mifltaugakerfi: Mania. Ofskömmtun: Ef tekinn er inn of stór skammtur af
cítalóprami geta aukaverkanir magnast. Þungur hjartsláttur og skert meðvitund getur jafnframt sést. Lyfhrif: Cítalópram er tvíhringlaga þalíð-afleiða og er virkt gegn þunglyndi og felmturköstum. Verkunarháttur lyfsins er vegna sértækrar hindrunar á upptöku serótóníns í heila. Lyfið hefur engin áhrif á
endurupptöku noradrenalíns, dópamíns eða GABA. Lyfið og umbrotsefni þess hafa því enga anddópamín-. andadren-, andserótónín-, og andhistamínvirka eða andkólínvirka eiginleika. Jafnvel við langtíma notkun hefur lyfið engin áhrif á fjölda viðtaka fyrir boðefni í miðtaugakerfi. Lyfið hefur hvorki áhrif á
leiðslukerf; hjartans né blóðþrýsting og eykur ekki áhrif alkóhóls. Lyfið hefur væga róandi verkun. Lyfjahvörf: Frásog cítalóprams er mjög gott og óháð inntöku matar. Aðgengi eftir inntöku er yfir 80%. Hámarksblóðþéttni næst eftir 1-6 klst. Stöðug blóðþéttni næst eftir 1-2 vikur. Próteinbinding er um
80%. Dreifingarrúmmál er u.þ.b. 14 l/kg. Lyfið umbrotnar áður en það útskilst; um 30% í þvagi. Umbrotsefni hafa svipaða en vægari verkun en cítalópram. Helmingunartími er um 36 klst. en er lengri hjá öldruðum.
Utlit:
Töflur 10 mg; Hvítar, filmuhúðaðar, kringlóttar og kúptar, 6 mm.
Töflur 20 mg; Hvítar, filmuhúðaðar, kringlóttar og kúptar, 8 mm. með deiliskoru.
Töflur 40 mg: Hvítar, filmuhúðaðar, kringlóttar og kúptar, 10 mm, með krossskoru.
Pakkningar og verfl: (Lyfjaverðskrá 1. janúar)
Oropram 10 mg/28 stk. 2.308 kr.
Oropram 10 mg/100 stk. 6.446 kr.
Oropram 20 mg/28 stk. 3.721 kr.
Oropram 20 mg/56 stk. 6.610 kr.
Oropram 20 mg/100 stk. 10.917 kr.
Oropram 40 mg/28 stk. 6373 kr,
Oropram 40 mg/56 stk. 11.738 kr.
Oropram 40 mg/100 stk. 20.089 kr.
Hámarksmagn sem ávísa má með lyfseðli er sem svarar 30 daga skammti.
o
Omega Farma
www.omega.is