Læknablaðið - 15.01.2002, Síða 83
ÞING
Ársþing
Skurðlæknafélags íslands og
Svæfinga- og gjörgæslulækna-
félags íslands
verður haldið á Grand Hótel í Reykjavík fimmtudaginn 18. og föstudaginn 19. apríl næstkom-
andi. Á fimmtudeginum verða flutt frjáls erindi og kynnt veggspjöld. Á föstudeginum verða
aðalfundir Skurðlæknafélags íslands og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags íslands og rædd
önnur mál tengd skurðlækningum og svæfingum.
Ágrip erinda skulu berast fyrir 15. febrúar til Margrétar Aðalsteinsdóttur hjá Fræðslustofnun
lækna, með tölvupósti eða á disklingi, sjá nánari upplýsingar hér að neðan. Þau ágrip sem
vísindanefnd félaganna samþykkir til flutnings á þinginu verða birt í Læknablaðinu. Vísinda-
nefnd áskilur sér rétt til að hafna innsendum ágripum. Vísindanefnd áskilur sér einnig rétt til að
hafna ágripum til flutnings en samþykkja þau í formi veggspjalds.
Við ritun ágripa skulu eftirtalin atriði koma fram í þeirri röð sem hér segir:
• Titill ágrips, nöfn og vinnustaðir höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, niðurstöður og
ályktanir.
• Nafn flytjanda skal feitletrað.
• Hámarkslengd ágripa er 1800 letureiningar (characters).
• Ágrip skulu skrifuð á íslensku.
• Höfundar skulu geta þess hvort þeir óska eftir að flytja erindi eða sýna veggspjald.
• Höfundar skulu láta þess skýrt getið hvaða útbúnað í fundarsal þeir óska eftir að nota við
flutning erindisins.
Nánari upplýsingar um þingið veita: Helgi H. Sigurðsson, Landspítala Fossvogi og Sveinn
Geir Einarsson, St. Jósefsspítala Hafnarfirði.
Ritari þingsins er Margrét Aðalsteinsdóttir hjá Fræðslustofnun lækna, Hlíðasmára 8, 201
Kópavogi, sími: 564 4100, bréfasími: 564 4106, netfang: magga@icemed.is
AstraZeneca dagur
2. mars 2002
Að venju verður hinn árlegi fræðslu- og fagnaðardagur heimilislækna haldinn á Hótel Loftleiðum fyrsta laugardag í
mars. Öldrunarlæknar eru einnig hjartanlega velkomnir.
AstraZeneca dagurinn er sem fyrr skipulagður af FÍH og AstraZeneca.
Yfirskrift dagsins er Framtíð heimilislækninga.
Dagskráin hefst kl. 9:00 með tveggja klukkustunda almennum fundi þar sem spáð verður í stöðu og framtíð
heimilislækninga á íslandi. Að því loknu verður boðið upp á þríþætta samhlióa dagskrá fram að almennum fundi
milli kl. 16:00 og 17:00.
Nánari dagskrá mun verða send læknum sérstaklega.
Fræðslunefnd FÍH AstraZeneca
L
Læknablaðið 2002/88 83