Læknablaðið - 15.09.2003, Side 3
FRÆÐIGREINAR
Læknablaðið
THE ÍCELANDIC MEDICALIOURNAL
651 Ritstjórnargreinar:
Reyklaust umhverfi er réttur allra - líka þeirra
sem ekki reykja
Þorsteinn Njálsson
653 Héraðsdómur með bæklunarlæknum
Karl Andersen
655 Hvers vegna viðbúnað við bólusótt?
Haraldur Briem
659 Hrörnunarsjúkdómar í heila, oxavarnarensím og kopar - kynning
á rannsóknum
Þorkell Jóhannesson, Jakob Kristinsson, Jón Snædal
Hrörnunarsjúkdómar í miðtaugakerfi eiga það langflestir sameiginlegt að í
þeim verður samsöfnun og útfelling á próteinum í taugafrumum eða utan
við þær. Talið er að efnabreytingar sem eru undanfari þessara breytinga
séu skaðvaldurinn fremur en útfellingarnar sjálfar. Efnabreytingarnar leiða
að öllum líkindum til myndunar á skaðlegum súrefnisfríhópum. Oxavarnir
líkamans, sem bæði taka til sértækra efna og oxavarnarensíma, vinna gegn
þessu ferli og því hefur þeirri tilgátu verið varpað fram að veiklaðar
oxavarnir séu sameiginlegur þáttur í meingerð hrörnunarsjúkdóma í
miðtaugakerfi manna og annarra spendýra. Rannsóknir höfundanna
benda til þess að oxavarnir séu veiklaðar í þeim fjórum hrörnunarsjúk-
dómum í miðtaugakerfi manna sem rannsakaðir voru þótt klínísk mynd
þeirra sé ærið ólík.
675 Sjúkratilfelli mánaðarins: Maður með endurtekna netjubólgu
á báðum fótleggjum
Ragnar Freyr Ingvarsson, Guðmundur I. Eyjólfsson,
Magnús Gottfreðsson
Netjubólga á útlimum er tiltölulega algengt vandamál sem læknar glíma
við. Algengast er að staphylokokkar og streptókokkar valdi þessari
sýkingu þó fjöldi annarra baktería geti valdið svipaðri sjúkdómsmynd.
Ónæmisbældir einstaklingar eru í aukinni áhættu á því að fá sýkingar af
ýmsu tagi og þarf því að hafa vakandi auka með þeim sjúklingahópi. Hér
er lýst tilviki af þrálátri netjubólgu hjá sjúklingi með meðfæddan mótefna-
skort. Með vaxandi tíðni ónæmisbældra sjúklinga þurfa læknar að hafa
augu opin fyrir sjaldséðum sýkingum og sérkennilegum birtingarformum
þeirra.
9. tbl. 89. árg. September 2003
Aðsetur
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
Læknafélög: 564 4100
Læknablaðið: 564 4104
Bréfasími (fax): 564 4106
Læknablaðið á netinu
www. laeknabladid. is
Ritstjórn
Emil L. Sigurðsson
Hannes Petersen
Jóhannes Björnsson
Karl Andersen
Ragnheiður Inga Bjarnadóttir
Vilhjálmur Rafnsson ábm.
Ritstjómarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Ragnheiður K. Thorarensen
ragnh@lis.is
Blaðamennska/umbrot
Þröstur Haraldsson
umbrot@icemed. is
Upplag
1.600
Áskrift
6.840,- m.vsk.
Lausasala
700,- m.vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun og bókband
Prentsmiðjan Gutenberg hf.,
Síðumúla 16-18,
108 Reykjavík
Pökkun
Póstdreifing ehf.,
Dugguvogi 10,
104 Reykjavík
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið 2003/89 647