Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 74

Læknablaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 74
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐBÚNAÐUR VIÐ BÓLUSÓTT Pjálfaðir heilbrigðisstarfsmenn þurfa að fylgjast með svörun með blöðrumyndun sem búast má við 6-8 dögum eftir bólusetningu. Upplýsa þarf þá sem eru bólusettir um að hafa samband við til- tekna bólusetningarmiðstöð ef blaðra myndast ekki eftir 6-8 daga. 1.2.3 Bólusetning útsettra Þeir sem hafa haft samband við sjúklinginn eða er búist við að hafi samband við hann á að bólusetja. Verði einstaklingur sem staðið hefur augliti til auglitis við bólusóttarsjúkling bólusettur innan fjög- urra daga má búast við því að hann sé varinn fyrir því að fá bólusótt eða sé varinn alvarlegum sjúkdómi. 1.2.4 Sérstakir áhœttuhópar Forgangsraða þarf bólusetningum. Komi til bólusótt- arfaraldurs ber að líta svo á að eftirfarandi einstak- lingar séu í sérstakri hættu á að sýkjast: 1) Fólk sem hefur verið útsett fyrir frumtilfelli af bólusótt eða fyrstu dreifingu bólusóttarveiru sem á sér stað af ásetningi. 2) Fólk sem hefur staðið augliti til auglitis við bólu- sóttarsjúkling eða hefur verið í nánu samneyti við hann eftir að sjúklingur fékk hita. Með því að miða við upphaf hitans sem upphaf þess að vera í smithættu er unnt að finna þá með skjótum hætti sem hafa verið útsettir fyrir smiti. 3) Fólk sem fyrirsjáanlega mun annast meðferð, hjúkrun, sjúkraflutning eða á annan hátt verður í beinu sambandi við bólusóttarsjúkling eða grun- samlegt bólusetningartilfelli, til dæmis við rann- sókn og rakningu smitleiða. 4) Fólk sem mun verða staðsett í húsnæði þar sem rannsókn, meðferð eða einangrun fer fram á sjúk- lingum sem taldir eru vera með bólusótt eða hafa staðfestan sjúkdóm. 5) Fólk sem safnar og handleikur sýni frá sjúklingum sem talið er að séu með bólusótt eða bólusóttar- sjúklingum. 6) Fólk sem líklegt er að komist í snertingu við sýkt efni frá sjúklingi með bólusótt, til dæmis með því að handleika óhreinan þvott eða úrgangsefni frá deild þar sem slíkur sjúklingur er vistaður. 7) Fólk sem er alla jafna ekki í beinum samskiptum við bólusóttarsjúkling en þarf að geta unnið að viðbúnaði án takmarkana og af þeim ástæðum gæti komist í samband við slíkan sjúkling eða smit- andi efni (til dæmis hjálparsveitarmenn, sjúkra- flutningsmenn og löggæslumenn). 8) Áhætta á sýkingu af völdum loftborinnar bólusótt- arveiru frá alvarlega veikum sjúklingi er umtalsverð á sjúkrahúsunt. Til álita kemur að bólusetja fólk sem hefur verið á spítala á sama tíma og bólusótt- arsjúklingur sem ekki var í viðhlítandi einangrun. 1.2.5 Útvíkkuð bólusetningaráœtlun Við sérstakar aðstæður er útvíkkuð bólusetning nauð- synleg til að auka ónæmi gegn bólusótt í samfélaginu. Þegar neyðarástand ríkir getur krafa almennings um bólusetningu orðið mjög sterk og torveldað skipulega notkun takmarkaðra birgða af bóluefni. Stefna þarf að því að í landinu séu til birgðir af bóluefni sem duga til að bólusetja alla þegnana. Stjórnvöld gætu þurft að taka ákvörðun um að bólusetja alla þjóðina. 1.3 Einangrun Einangrun er skilgreind sem aðskilnaður sýktra ein- staklinga frá öðru fólki á nteðan þeir smita. Afkvíun er á hinn bóginn ætlað að setja hömlur á ferðafrelsi heilbrigðra einstaklinga sem hafa verið útsettir fyrir smiti frá sjúklingi. Einangrun bólusóttarsjúklinga má flokka með eftirfarandi hætti: 5» Fullkomin einangrun • komið í veg fyrir smitun sem berst með lofti eða snertingu. • einbýli. • allir sem ganga inn í einbýlið nota maska, hlífð- arsloppa og hanska. • sérstakt loftræstikerfi með HEPA-síum skil- yrði til að halda neikvæðum þrýstingi miðað við svæðið umhverfis einbýlið. • allt úrgangsefni er sæft eða brennt. >- Einangrun frá samskiptuin ef fullkoinin einangr- un er ekki möguleg • einbýli æskilegt. • sjúklingar með bólusótt geta deilt með sér her- bergi. • allir sem ganga inn í einbýlið nota maska, hlífð- arsloppa og hanska. • allt úrgangsefni er sæft eða brennt. 1.4 Afkvíun Afkvíun er skilgreind sem takmörkun á ferðafrelsi heilbrigðs fólks sem hefur verið útsett fyrir sjúklingi með smitsjúkdóm á meðan hann var smitandi til að koma í veg fyrir frekara smit á meðgöngutíma ef sýking skyldi hafa átt sér stað. Tvær megin tegundir afkvíunar eru mögulegar gegn bólusótt: »• Fullkonún afkvíun • Takmörkun á ferðafrelsi þeirra sem hafa verið útsettir fyrir bólusótt sem nemur lengsta mögu- lega meðgöngutíma sjúkdómsins (19 dagar) þannig að komið verði í veg fyrir að þeir hafi samskipti við þá sem ekki hafa verið útsettir fyrir smitun. 5» Aðlöguð afkvíun • Ferðafrelsi þeirra sem hafa verið útsettir fyrir bólusótt er að hluta til takmarkað og er háð mati á líkum á að sjúkdómurinn berist áfram frá manni til manns. Með því er átt við • einstaklingsbundna vöktun þar sem þeir 718 Læknablaðið 2003/89
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.