Læknablaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 41
UMRÆÐA
& FRETTIR / AÐALFUNDUR LÆKNAFELAGS ISLANDS
stjórnendur ættu erfitt um vik að hreyfa menn til
vegna ákvæða um fastráðningu og jafnvel æviráðn-
ingar kennara.
Ljóst var af þessum umræðum að fullur vilji er til
þess innan læknadeildar að fylgjast með breytingun-
um sem verða úti í samfélaginu og laga námið að því.
Hins vegar mátti merkja á þeim að oft hamlaði reglu-
veldi Háskólans því að hægt væri að ráðast í brýnar
umbætur. Enginn gaf sig fram á fundinum sem kom-
inn er að því að stofna nýja læknadeild og raunar
virtust fundarmenn almennt sammála um að enginn
grundvöllur væri fyrir henni. Hins vegar sagði Jón
Snædal að hugmyndin væri góð, það sýndi umræðan
sem hún hefði hrundið af stað. Það væri hins vegar
ekkert keppikefli að framkvæma hana. En lækna-
deild þarf aðhald og það stæði engum nær en lækn-
um að veita henni það. Og að sjálfsögðu lauk þessum
umræðum með heitstrengingum um að tala meira
saman í framtíðinni.
Vesturfarasetrið á Hofsósi var skoðað í krók og kring undir leiðsögn forstöðumannsins,
Valgeirs Þorvaldssonar á Vatni.
Ályktanir aðalfundar Læknafélags íslands
í júlfhefti Læknablaðsins eru birtar tillögur til ályktana á aðal-
fundi sem þá voru framkomnar. Sumar þeirra voru samþykktar
óbreyttar og vísast um þær til síðasta blaðs en hér að neðan eru
birtar þær ályktanir sem breyttust í meðförum aðalfundar eða
voru lagðar fram á fundinum sjálfum.
Öryggismál sjúklinga
Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn að Hólum í Hjalladal
dagana 22. til 23. ágúst 2003, felur stjórn félagsins að móta stefnu
í öryggismálum sjúklinga. Stjórnin leggi fram tillögur að stefnu
fyrir formannafund LÍ 2004.
Þrengt að sjálfstæðri starfsemi lækna
Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn að Hólum í Hjaltadal
dagana 22. til 23. ágúst 2003, lýsir áhyggjum sínum yfir tilhneig-
ingu stjórnvalda að þrengja stöðugt möguleika lækna á sjálfstæðri
atvinnustarfsemi.
Fundurinn minnir á stefnu Læknafélags Islands, sem ítrekuð
var á aðalfundi félagsins 2001:
að læknar séu frjálsir að því að stunda lækningar í eigin at-
vinnurekstri utan sem innan sjúkrastofnana án annarra
takmarkana en þeirra, sem faglegar kröfur eða samningar
við stjórnendur stofnana leyfa. Grundvöllur þessa er, að
sjúkratryggðir njóti jafnræðis, hvort sem þeir fá læknisþjón-
ustu á sjúkrahúsi eða utan þess og njóti tryggingaverndar
Tryggingastofnunar ríkisins.
- að læknar njóti jafnræðis á vinnumarkaði og í atvinnu-
rekstri og að ákveðnar sérgreinar læknisfræðinnar svo sem
heimilislækningar séu ekki nánast útilokaðar frá verktöku
fyrir sjúkratryggingarnar eins og nú er raunin.“
Tölvusamband læknis og sjúklings
Aðalfundur Læknafélags Islands haldinn að Hólum í Hjaltadal
dagana 22. og 23. ágúst 2003 felur stjórn Læknafélags íslands að
mynda starfshóp sem mótar tillögur um hvernig nýta megi tölvu-
samband og símtöl á sem hagkvæmastan og öruggastan máta í
samskiptum lækna og sjúklinga.
(Greinargerð er óbreytt frá því íjúlíhefti Lœknablaðsins.)
Klíník upplýsingatækni
Klínísk upplýsingatækni, fyrst og fremst rafræn sjúkraskrárkerfi
og lyfjaumsýslukerfi, eru lykilverkfæri við að tryggja öryggi sjúk-
linga og styðja markvissa og hagkvæma meðferð.
Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn að Hólum í Hjalta-
dal dagana 22. til 23. ágúst 2003 skorar á stjórnvöld að tryggja nú
þegar fjárveitingu til uppbyggingar og samræmingar slíkra kerfa á
heilbrigðisstofnunum í samræmi við stefnumótun heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytis í upplýsingamálum.
Styrkur til rannsóknar
Að lokum samþykkti fundurinn eftirfarandi tillögu sem borin var
fram að félögum úr Félagi kvenna í lœknastétt. Með henni fylgdi
lýsing á rannsókn sem hafin er í fjórum Evrópuríkjum - Svíþjóð,
Noregi, Islandi og Italíu - á heilsufari og starfsaðstöðu lœkna á
fjórttm háskólasjúkrahúsum. Rannsóknin mun standa yftr í fimm
ár og hefitr Evrópusambandið heitið að styrkja hana með sex
milljónum evra. Ályktun aðalfundar var á þessa leið:
Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn að Hólum í Hjaltadai
dagana 22. til 23. ágúst 2003, telur brýnt að rannsókn sú sem að
ofan er lýst á heilsu og starfsaðstöðu íslenskra lækna verði gerð.
Fundurinn samþykkir að veita allt að tveggja og hálfrar milljónar
króna styrk til verkefnisins á tveimur árum og styðja auk þess alla
framkvæmd þess sem frekast er kostur með afnotum af starfsað-
stöðu félagsins.
Læknablaðið 2003/89 685