Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 31

Læknablaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 31
FRÆÐIGREINAR / NETJUBÓLGA Sjúkratilfelli mánaðarins: Maður með endurtekna netjubólgu á báðum fótleggjum Ágrip Ragnar Freyr Ingvarsson1 LÆKNANHMI Á 6. ÁRI Guðmundur I. Eyjólfsson2 SÉRFRÆÐINGUR 1 LYFLÆKNINGUM OG BLÓÐSJÚKDÓMUM Magnús Gottfreðsson2 SÉRFRÆÐINGUR í LYFLÆKNINGUM OG SMITSJÚKDÓMUM 'Læknadeild Háskóla íslands, 2Landspítali Háskólasjúkrahús Fyrirspurnir og bréfaskipti: Magnús Gottfreðsson, lyflækningadeild og sýklafræðideild, Landspítala Fossvogi, 108 Reykjavík. Sími: 543-1118, fax: 543-6568. magnusgo@landspitali. is Lykilorð: meðfœddur mót- efnaskortur, netjubólga, ífarandi sýkingar. Key words: X-linked agammaglobulinemia, cellulitis, invasive infections, Campylobacter jejuni. Netjubólga á útlimum er tiltölulega algengt vanda- mál sem læknar glíma við. Algengast er að staphylo- kokkar og streptókokkar valdi þessari sýkingu þó fjöldi annarra baktería geti valdið svipaðri sjúkdóms- mynd. Ónæmisbældir einstaklingar eru í aukinni áhættu á því að fá sýkingar af ýmsu tagi og þarf því að hafa vakandi auka með þeim. Hér er lýst tilviki af þrálátri netjubólgu hjá sjúklingi með meðfæddan mótefnaskort. Með vaxandi tíðni ónæmisbældra sjúklinga þurfa læknar að hafa augu opin fyrir sjald- séðum sýkingum og sérkennilegum birtingarformum þeirra. Sjúkratilfelli 35 ára gamall maður leitaði á bráðamóttöku vegna roðafláka og verkja í báðum sköflungum. Einkenni hófust í vinstra sköflungi þrem til fjórum vikum áður og kvartaði sjúklingur um verki er hann steig í fæt- urna og reyndi því að hlífa þeim. Engin saga var um áverka. Pessu fylgdi hiti, en sjúklingi fannst hann hafa verið sveiflukenndur. Tíu dögum fyrir komu á bráðamóttöku leitaði sjúklingur til heimilislæknis sem greindi hann með heimakomu og gaf honum pensilíntöflur. Þar eð sú meðferð bar ekki tilskilinn árangur leitaði hann á sjúkrahús sex dögum síðar. Við skoðun var hann hita- laus en greinileg rauðleit útbrot á vinstri sköflungi. Blóðrannsóknir sýndu væga hækkun á C-reactive próteini (CRP), en voru eðlilegar að öðru leyti. Sjúk- lingur var greindur með netjubólgu og meðferð hafin með kloxacillíni í æð, en sólarhring síðar skipt yfir í dikloxacillín töflur og sjúklingur útskrifaður á þeirri meðferð. Einkenni versnuðu tveimur dögum síðar er sjúklingur tók eftir stækkandi roðabletti og vaxandi verkjum í hægri sköflungi. Hann leitaði því læknis í þriðja skiptið. Heilsufarssaga Sjúklingur hafði sem ungabarn verið greindur með meðfæddan mótefnaskort (X-linked agammaglobul- inemia, XLA). Hann hafði sögu um endurteknar sýkingar allt frá barnæsku, aðallega endurtekna lungnabólgu og húðsýkingar. Hann hafði af þessum sökum fengið mótefnagjöf (Gammagard) á þriggja vikna fresti. Sjúklingur fékk netjubólgu með kýlis- myndun einu ári fyrir innlögn. Stungið á bólgna svæðinu og greftri hleypt út. Úr honum ræktaðist Staphylococcus aureus með næmi fyrir kloxacillini. Sýkingin var meðhöndluð rneð dikloxacillini með góðum árangri. Skoðun við komu Við komu var sjúkingur ekki bráðveikindalegur að sjá og gaf góða sögu. Hiti 38 °C. Blóðþrýstingur 120/70 mm Hg, hjartsláttartíðni 80 slög/mínútu. Að öðru leyti leiddi skoðun í ljós eðlilega hjarta- og lungna- hlustun. Á útlimum mátti greina tvo stóra roðaflekki (15 x 25 cm) á báðum sköflungum. Flekkirnir voru upphleyptir, heitir og aumir viðkomu. Aumur, stækk- aður eitill kom í ljós í hægri nára við þreifingu. Engin merki voru um liðbólgu. Rannsóknir Niðurstöður almennra blóðrannsókna eru sýndar í töflu 1. Gildi voru að mestu innan viðmiðunarmarka nema hvað CRP var hækkað, 23 mg/L. Skoðun á þvagsýni var án athugasemda. Jafnframt voru teknar blóðræktanir. Tafla 1. Blóörannsóknir sem teknar voru við komu á bráöamóttöku Landspítalans. Hemóglobín 140 g/L Hematokrit - reiknuð 0,40 Hvít blóðkorn 9,6 * 109/L Rauð blóökorn 4,35 * 1012/L Deilitalning Neutrófílar 7,68 * 109/L Lymfócýtar 1,21 * 109/L Mónócýtar 0,52 * 109/L Eosínófílar 0,10 * 109/L Basófílar 0,04 * 109/L Stór ólituð blóðkorn 0,10 * 109/L Natríum 141 mEq/L Kalíum 3,7 mEq/L Kreatínín 77 q.mol/L Glúkósi 5,0 mmol/L CRP (C-reactive Prótein) 23 mg/L Gangur og meðferð Sjúklingur lagður inn á lyflækningadeild og sýkla- lyfjameðferð hafin með cefazólíni í æð, 2g þrisvar sinnum á sólarhring. Fyrstu nóttina á sjúkrahúsinu fann hann fyrir miklum verkjum í fótunum og þurfti verkjalyf. Einnig fann sjúklingur fyrir kuldahrolli. Á öðrum degi var sjúklingur slappari en daginn áður og lá að mestu fyrir en sagðist þó vera betri af verkjum. Hiti komst hæst í 39 °C. Líðan fór heldur batnandi Læknablaðið 2003/89 675
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.