Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 72

Læknablaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 72
UMR/EÐA & FRÉTTIR / VIÐBÚNAÐUR VIÐ BÓLUSÓTT Islensk áætlun um varnir og viðbúnað við bólusótt Þann 21. JÚNÍ 2002 undirrituðu norrænu heilbrigðis- ráðherrarnir norrænan samning um heilbrigðisvið- búnað í Svolvær í Noregi (viðauki 1). í samningnum felst að Norðurlöndin upplýsi hvert annað um þann viðbúnað og þau viðbrögð sem þau hyggjast grípa til ef hætta er talin á atburðum af völdum sýkla, eitur- efna og geislavirkra efna. Ráðherrarnir lýstu því yfir á sameiginlegum fundi í Svíþjóð þann 19. ágúst 2003 að Norðurlöndin mundu hafa samstarf um viðbúnað við bólusótt í anda samningsins um heilbrigðisvið- búnað (viðauki 2). 1.1 Orsök, greining og skilgreining sjúkdómstilfellis - skilyrði fyrir viðvörun 1.1.1 Orsök bólusóttar Bólusótt er sjúkdómur af völdum bólusóttarveiru (orthopoxveiru). 1.1.2 Sinitleiðir Bólusótt berst með loftbornu smiti, úðasmiti og snertismiti. Sýktir einstaklingar verða smitandi þegar útbrot byrja, venjulega þremur dögum eftir að hiti hefst. Smitlíkur eru minnstar þegar einungis er um hita að ræða en mestar fyrstu sex dagana eftir að út- brot hefjast. Úr smitlíkum dregur mjög eftir 10. dag útbrota. 1.1.3 Meðgöngutími (1) 7- 19 dagar (-100% tilfella) 8- 14 dagar (90% tilfella) 9- 13 dagar (70% tilfella) 1.1.4 Dánartala 30% að meðaltali, fer hækkandi með aldri. 1.1.5 Klínísk sjúkdómslýsing (2) Bráður sjúkdómur með hita >38,5 °C. Blöðru- eða þéttar bólumyndanir fylgja í kjölfarið. Þær eru allar á sama þroskastigi, mest áberandi á útlimum og höfði sem síðar dreifast á bol án annarrar þekktrar ástæðu en bólusóttar. Frábrigðileg tilfelli bólusóttar einkennast af • húðblæðingum eða • flötum, mjúkum útbrotum sem líkjast ekki hefðbundnum blöðrum bólusóttar og þróast ekki í bólur. 1.1.6 Rannsóknarstofugreining >- Einangrun bólusóttarveiru (Variola) úr sýni frá sjúklingi eða greining DNA bólusóttarveiru úr sýni frá sjúklingi með polymerasa keðjumögnun (PCR) sem fylgt er eftir með raðgreiningu. >- Greining bólusóttarveiru með rafeindasmásjá úr sýni frá sjúklingi. 1.1.7 Flokkun sjúkdómstilfellis >- Mögulegt tilfelli • sem uppfyllir skilyrði klínískrar sjúkdóms- greiningar eða • sem er með frábrigðilega sjúkdómsmynd en tengist faraldsfræðilega öðru staðfestu eða mögulegu tilfelli af bólusótt. >- Líklegt tilfelli • sem uppfyllir skilyrði klínískrar sjúkdóms- greiningar og orsök er annaðhvort staðfest sem orthopoxveira í rafeindasmásjá eða með far- aldsfræðilegri tengingu við annað líklegt eða staðfest tilfelli. >- Staðfest tilfelli • upprunatilfelli; sem uppfyllir klíníska grein- ingu með greiningu á rannsóknarstofu sem byggir á rafeindasmásjá eða PCR sem fylgt er eftir með raðgreiningu. • meðan á farsótt stendur yfir; sem uppfyllir klín- íska greiningu með faraldsfræðilegri tengingu við annað staðfest tilfelli og þegar mögulegt er með staðfestingu með rafeindasmásjá eða PCR. 1.1.8 Skilyrði fyrir viðvörun >- Mögulegt tilfelli: Tilkynning til vöktunar- og ár- veknikerfa (sóttvamalækna) Norðurlandanna. Við- eigandi stofnanir og EU-EWRS (European Union Early Warning and Response System) upplýst. Líklegt tilfelli: Einangrun og rakning smitleiða hafin. Tilkynning til vöktunar- og árveknikerfa (sóttvarnalækna) Norðurlandanna. Samráð heil- brigðisráðherra. Viðeigandi stofnunum og EU- EWRS gert viðvart. >- Staðfest tilfelli: Norrænir heilbrigðisráðherrar upp- lýstir (samráð hafið), EU-EWRS upplýst, Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunin upplýst, bólusetn- ingar og aðrar aðgerðir hafnar í samræmi við lið 1.3.1 í áætluninni sem staðfest hefur verið af heil- brigðisráðherra. 1.2 Grundvöllur bólusetningaráætlunar 1.2.1 Hœttan á bólusóttaratburði Aður en ákvörðun er tekin um að bólusetja gegn 716 Læknablaðið 2003/89
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.