Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 49

Læknablaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 49
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LYFJANOTKUN Er notkun nýrra lyfja stórfellt vandamál? - Meinloka stjórnvalda í lyfjamálum Nokkur umræða hefur verið um svokallaðan grunn- lyfjalista (Essential Drug List) sem Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunin WHO þróar. Einar Magnússon lyfja- fræðingur hefur meðal annars birt grein í Mixtúru, blaði lyfjafræðinema, sem vert er að skoða nánar. Grunnlyf eru þau lyf sem fullnægja meirihlutaþörfum heilbrigðisþjónustunnar í hverju landi. Hugmyndin að baki þessum lista er sú að takmarkaður fjöldi vel valinna lyfja geti leitt til betri stýringar á lyfjanotkun, lægri kostnaðar og betri heilbrigðisþjónustu. Ákúrur á lækna Einar hefur greinina á umræðu um aukna lyfjanotk- un og lyfjakostnað á íslandi og slær þar fram staðhæf- ingu sem vert er að skoða nánar. „Kostnaðarlega er höfuðvandinn sá að læknar velja fremur nýrri og dýrari lyf en eldri og ódýrari, jafnvel þó að vitað sé að oft komi þau eldri og ódýrari að jafn góðum notum.“ Þetta lýsir ákaflega miklu vantrausti á lækna- stéttina og ábyrgð hennar gagnvart sjúklingum og heilbrigðiskerfinu. Talað er í niðrandi tóni eins og lækna skorti þekkingu til að taka ákvarðanir um lyfjaávísanir og dansi algjörlega eftir markaðssetn- ingu lyfjafyrirtækja. Tvö lokaverkefni í lyfjafræði vorið 2003 sýna að ný lyf ryðja ekki endilega gömlum lyfjum út af markaði á þann hátt sem skilja má af grein Einars (1,2). Ný lyf ryðja sér með mismunandi hraða inn á markað og notkun eldri lyfja minnkar hins vegar alltaf nijög hægt. Varlega má gera ráð fyrir að ný lyf séu notuð við nýjum ábendingum og að nýir sjúklingar séu frek- ar settir á ný lyf. Það er því langt frá því að læknar virðist eins nýjungagjarnir og fulltrúar yfirvalda vilja vera láta. Helst má þannig segja að nýjungagirni lækna felist í því að prófa að nota ný lyf á sjúklinga sem áður fengu enga lyfjameðferð og urðu að lifa með sín ein- kenni. Þetta atriði þarf að sjálfsögðu að rannsaka betur. Ástæður hækkunar lyfjakostnaöar Um ástæður hækkunar lyfjakostnaðar segir Einar: „Lyfjakostnaður eykst milli ára venjulega af þrem- ur ástæðum: 1. Lyfjanotkunin færist stöðugt yfir í nýrri og dýr- ari lyf. 2. Lyfjanotkun eykst vegna þess að þjóðin verður eldri og sjúklingum fjölgar. 3. Verðbreytingar á lyfjum. Af þessum ástæðum vegur sú fyrsta þyngst...“ Hann vísar í mynd sem sýnir sölu lyfja eftir skrán- ingarári. Lyf sem komu á markað fyrir árið 1990 eru um 3/4 af heildarsölu ársins 2001 í krónum talið. Hér er um að ræða lyf sem eru 12 ára eða eldri. Þarna verður að spyrja hvort eðlilegt sé að tala um ný lyf sem eru 12 ára og yngri? Ef svo væri má spyrja við hvað við færum á mis ef við hefðum ekki lyf sem eru 12 ára og yngri? Við færum þá á mis við framfarir r' lyfjum, svo sem alzheimerlyf, hin nýrri blóðfitulækk- andi lyf, mörg krabbameinslyf, ýmis alnæmislyf, flest SSRI-lyf, ný lyfjaform, svo sem hormónaplástra fyrir konur og þurrduftstæki fyrir lungnasjúklinga. Af þessum sökum er þessi skilgreining á „nýjum lyfjum“ hjá Einari afar sérkennileg og rýrir staðhæfingu hans um að ný og dýr lyf eigi aðalþátlinn í kostnaðaraukn- ingu. Þessi lyf teljast miklar framfarir í lyfjameðferð og þætti almenningi og heilbrigðisstarfsfólki það sér- kennilegt ef yfirvöld settu sig gegn notkun þessara lyfja á grundvelli þess að eldri lyf komi að jafn góðum notum! Einnig er vert að líta nánar á þá staðhæfingu Ein- ars að færsla lyfjanotkunar yfir á nýrri og dýrari lyf sé aðalástæða þess að lyfjakostnaður eykst milli ára. Bandarísk rannsókn unnin af hagfræðingnum Daniel Mullins og samstarfsmönnum við Marylandháskóla beindist að áhrifum nýrra lyfja á kostnaðaraukningu á markaði (3). Sömu þrjár skýringar voru hafðar að leiðarljósi og þær sem Einar telur upp í grein sinni. í rannsókn Mullins eru lyf eldri en fimm ára talin til eldri lyfja. Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að tæplega þriðjungur kostnaðaraukningar milli 1995 og 1998 var vegna verðhækkana lyfja sem voru fyrir á markaði (pure price inflation effect); um þriðjungur var vegna notkunaraukningar lyfja sem voru fyrir á markaði (utilization effect); og rúmlega þriðjungur var vegna þess að læknar ávísuðu á nýrri lyf (product shift effect). Þetta gengur því í berhögg við þá stað- hæfingu Einars að innstreymi nýrra og dýrra lyfja sé allra mikilvægasta skýring kostnaðaraukningar. Al- mennar verðhækkanir lyfja og notkunaraukning hafa hér um 2/3 skýringarinnar og færsla yfir í ný lyf aðeins 1/3 af kostnaðaraukningunni. Þörf er á að endurtaka þessa rannsókn hérlendis þar sem lyfjamarkaður er að mörgu leyti ólíkur þeim bandaríska. Þó má gera ráð fyrir að hlutur nýrra Iyfja í kostnaðaraukningu sé ekki meiri hérlendis þar sem leyfilegt verð nýrra lyfja í Bandaríkjunum er mun hærra að meðaltali en hér- lendis. Anna Birna Almarsdóttir Höfundur er dósent í stefnu- mörkun og stjórnun lyfjamála við Lyfjafræðideild HÍ og framkvæmdastjóri ráðgjafa- fyrirtækisins AL-BAS ehf. Læknablaðið 2003/89 693
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.