Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2003, Page 11

Læknablaðið - 15.09.2003, Page 11
RITSTJDRNARGREiniAR Hvers vegna viðbúnað við bólusótt? Atburðirnir 11. september 2001 og mánuðina þar á eftir höfðu djúpstæð áhrif á viðhorf manna til hryðju- verka. Hefðbundnar hugmyndir um varnar- og ör- yggismál hafa verið endurskoðaðar. Hryðjuverkum er nú á dögum beint gegn almenningi með þeim hætti að hefðbundinn hernaður kemur ekki að notum. Ott- ast er að sýkla- og eiturefnavopnum sem engan veg- inn hafa verið óþekkt verði nú beint gegn fólki. Markmiðið með hryðjuverkum, eða ofurhryðjuverk- um eins og farið er að kalla þau, er núorðið að valda sem mestu manntjóni og skiptir þá líf hryðjuverka- mannsins sjálfs engu máli. Eina raunhæfa leiðin til að bregðast við afleiðingum slíkra atburða af völdum sýkla og eiturefna er að efla heilbrigðisþjónustuna og þær sóttvarnir sem fyrir hendi eru. I skýrslu Landlæknisembættisins til heilbrigðis- ráðherra um mat á áhrifum sýkla- og eiturefnavopna á lýðheilsuna (1) er bólusótt einn þeirra sjúkdóma sem talinn er koma til greina að beita sem vopni gegn mönnum. Þótt bólusótt sé ekki líklegasta vopnið sem beitt yrði í hernaði eða hryðjuverki er hún það skæðasta því sjúkdómurinn berst auðveldlega milli manna, dánartalan er há eins og sagan vitnar um. Bólusótt er íslendingum vel kunn. Heimildir um bólusóttina 1707-1709 eru einstakar í heiminum vegna þess hve vel þær lýsa afleiðingum hennar í samfélagi þar sem ónæmi gegn sjúkdómnum er ekki til staðar hjá flestum þegnunum. Þá lést meir en fjórðungur þjóðarinnar, flestir á besta aldri. Bólusetning gegn bólusótt hófst hér á landi sem víða annars staðar í upp- hafi 19. aldar. Bólusetningum var síðan hætt í heim- inum eftir að bólusótt var endanlega útrýmt sem náttúrulegum sjúkdómi fyrir rúmum 20 árum. Af- leiðingin er dvínandi ónæmi gegn sjúkdómnum með- al almennings og er ástandið í heiminum farið að minna á það sem ríkti á íslandi í upphafi 18. aldar. Birgðum af bólusóttarveirunni hefur verið haldið á sérstökum völdum öryggisrannsóknarstofum í Rúss- landi og Bandaríkjunum. Ekki er hægt að útiloka að veiruna sé að finna annars staðar. Af þeirri ástæðu hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ítrekað frest- að þeirri ákvörðun sinni að eyðileggja þær birgðir sem heimilað var að varðveita eftir að bólusótt var útrýmt (2). Islensk heilbrigðisyfirvöld hafa nú samþykkt varn- ar- og viðbragðsáætlun við bólusótt að fenginni um- sögn sóttvarnaráðs. Áætlunin er birt í þessu tölublaði Læknablaðsins. Norrænu heilbrigðisráðherrarnir gáfu út yfirlýsingu í Svíþjóð þann 19. ágúst síðastliðinn um að þjóðirnar hafi samráð um varnir við bólusótt jafn- framt því sem þær vinna með öðrum fjölþjóðlegum stofnunum. Útrýming bólusóttar sem var talin mikill sigur fyrir mannkynið er nú orðin vandamál okkar allra og verð- ur það á komandi áratugum. Þeir kostir sem bjóðast til að verjast bólusótt eru bólusetning, einangrun og afkvíun. Lyfjameðferð er enn sem komið er ekki raun- hæfur kostur. Mikilvægast af öllu er að tryggja getu til að greina bólusótt klínískt, á rannsóknarstofu og með vöktunarkerfi. Á næstu misserum fer frarn nánari skipulagning á aðgerðum á vegum sóttvarnalæknis sem byggjast á áætluninni um viðbrögð við bólusótt. Vonandi geta þær orðið fyrirmynd að aðgerðum gegn öðrum atburðum af völdum sýkla og eiturefna. Heimildir 1. Guömundsson S, Briem H. Mat á áhrifum sýkla- og eiturefna- vopna á lýðheilsuna. Varnir og viðbrögð gegn sýkla-, eitur- efna- og geislaatburðum á íslandi. Júní 2002. 2. Resolution WHA 55.15. WHO Assembly 2002. Haraldur Briem Höfundur er sóttvarnalæknir. i Læknablaðið 2003/89 655

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.