Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2003, Page 17

Læknablaðið - 15.09.2003, Page 17
FRÆÐIGREINAR / HRÖRNUNARSJÚKDÓMAR í HEILA ríkjandi við það sjúkdómsástand sem nú er nefnt heilabilun (dementia). Heilabilanarsjúkdómar eru ýmsir þekktir, en Alzheimer sjúkdómur er þeirra langalgengastur (1,8). Við Parkinson sjúkdóm eru ríkjandi truflanir í viljabundnum hreyfingum sem er langoftast að rekja til hrörnunar í dópamínvirkum taugungum í svart- sviði (substantia nigra) í miðheila (9). í töflu I er að finna nokkur meginatriði um Alzheimer og Parkin- son sjúkdóma. í dýrum (sauðfé, nautgripum og fleiri) þekkjast aðrir hrörnunarsjúkdómar í miðtaugakerfi er nefnast einu nafni príonsjúkdómar. Þeir þekkjast raunar í nokkrum mæli í mönnum einnig (Creutzfeldt-Jacobs sjúkdómur og fleiri). Líkt og við Alzheimer sjúkdóm og Parkinson sjúkdóm kunna breytingar á ákvarð- andi genum eða breytileiki í gerð gena að ráða upp- komu príonsjúkdóma eða hvetja til uppkomu þeirra í vissunt tilvikum. Orsakir príonsjúkdóma eru þó, líkt og á við hina tvo hrörnunarsjúkdómana, oftast lítt kunnar eða óljósar (1). Af príonsjúkdómum í dýrum er sauðfjárriða, oft stytt í riða (scrapie), vel þekkt hér á landi. Eru þá skemmdir í miðtaugakerfinu einkum í heilastofni og litla heila (10). Kúariða, riða í nautgripum („mad cow disease"), er ekki þekkt hér á landi, en hefur valdið miklum usla og skelfingu í Bretlandi og á meginlandi Evrópu. Skelfing vegna kúariðu hefur mótast af því að nýtt afbrigði af Creutzfeldt-Jakobs sjúkdómi, sem eink- um leggst á ungt fólk, er af ýmsum talinn hafa borist í menn með neyslu kjöts af sýktum nautgripum (1,11). Öfugt við Alzheimer sjúkdóm og Parkinson sjúk- dóm teljast príonsjúkdómar jafnframt til smitsjúk- dóma. Þetta á jafnt við sauðfjárriðu, kúariðu og Creutzfeldt-Jakobs sjúkdóm í mönnum. Smithættan er fyrst og fremst meðal einstaklinga innan sömu teg- undar. Reynsla er samt ótvírætt fyrir því að mögu- leikar eru á smitun milli einstaklinga mismunandi dýrategunda. Engar vísbendingar eru um að sauð- fjárriða hafi nokkru sinni borist í menn, né tengist uppkomu Creutzfeldt-Jakobs sjúkdóms eða annarra príonsjúkdóma í mönnum (1,11). Sjá einnig viðbæti. Við sauðfján'iðu, kúariðu, Creutzfeldt-Jakobs sjúk- dóm og aðra príonsjúkdóma má oftast greina í smásjá eins konar göt í heilafrumum líkt og svampur væri. Þessar breytingar kallast á erlendum málum „spongi- form vacuolation” (1, 12). Eru príonsjúkdómar því stundum nefndir einu heiti „transmissible spongi- form encephalopathies“ (TSE), þar eð um smitsjúk- dóma er að ræða. Enda þótt verulegur munur sé milli fyrrnefndra hrörnunarsjúkdóma í miðtaugakerfi bæði að því er varðar sjúkdómseinkenni, gerð vefjaskemmda (sjúk- dómsmyndar) og staðsetningar í miðtaugakerfinu, er samt vaxandi skilningur á því að þessir hrörnunar- sjúkdómar, svo og Huntington sjúkdómur og ýmsir aðrir ónefndir hrörnunarsjúkdómar, séu allir af sams konar rót (1, 12). Hér breytir að því er virðist engu þótt príonsjúkdómar teljist smitsjúkdómar, en aðrir hrörnunarsjúkdómar í miðtaugakerfi ekki. í öllum tilvikum á sér stað samsöfnun (aggregation) og útfell- ing á próteinum inni í taugafrumum eða utan við þær, hvort sem þessar sjúklegu breytingar má rekja til þekktra breytinga á ákvarðandi genum eða ekki. í öllum þekktum tilvikum virðist ennfremur vera um að ræða starfræn prótein sem ætla má að gegni nauð- synlegu hlutverki í starfi miðtaugakerfisins, en breyt- ast af ýmsum sökum í óstarfhæfan próteinmassa sam- fara vefjaskemmandi verkun. Beinn skortur á starf- rænum próteinum kann vissulega einnig að móta sjúk- dómsmyndina, að minnsta kosti við suma arfbundna hrörnunarsjúkdóma (5). Breytingin úr starfrænum próteinum í síður starf- ræn eða beinlínis óstarfhæf prótein er fólgin í form- breytingu (afformun, umformun), sem ekki er sam- fara meiriháttar efnafræðilegri breytingu. Þetta merk- ir að lega próteinanna breytist í rúminu og leysanleiki þeirra minnkar án þess að samsetning þeirra breytist eða þurfi að breytast marktækt. Þetta stuðlar að sam- söfnun óeðlilega margra próteinsameinda og útfell- ingu í óstarfhæfan massa. Við eðlilegt ástand eru ýmis ráð tiltæk til þess að tryggja að starfræn prótein „rúllist rétt” og fái við það rétt starfrænt form eða að þeim sé að öðrum kosti sundrað og eytt. Þessi kerfi geta greinilega bilað við þá hrörnunarsjúkdóma sem hér um ræðir (13). Taugafrumur virðast ennfremur vera sérstaklega viðkvæmar gegn þeim eiturhrifum, sem af þessum breytingum hljótast (12). I Alzheimer sjúkdómi (tafla 1) og mörgum fleiri fátíðari hrörnunarsjúkdómum í miðtaugakerfi eru oftast áberandi útfellingar á svokölluðu tau-próteini, en það er í eðlilegu ástandi nauðsynlegur hluti af burðarvirki frumnanna (cytoskeleton). Annað af- brigðilegt prótein í Alzheimer sjúkdómi og nokkrum fleiri hrörnunarsjúkdómum er mýildi (amyloid (1 peptíð; Ap). Það er aðaluppistaðan í heilaskellum (cerebral plaques; senile plaques) sem oftast eru áberandi í heila Alzheimer sjúklinga og í fólki með Downs heilkenni eftir miðjan aldur (sjá síðar). Mýildi má skoða sem samsöfnun og útfellingu á sérstakri klofningsafurð úr mun stærra forstigspróteini (amy- loid precursor protein; APP) sem er í frumuhimnu og nauðsynlegt er talið fyrir starfsemi taugafrumna og sennilega einnig annarra frumna. Aðalklofningsafurð (Apt 40) þessa forstigspróteins myndar ekki mýildi. Við Alzheimer sjúkdóm og í Downs heilkenni mynd- ast óhæfilega mikið af áðurnefndri mýildisgefandi klofningsafurð (Api 42) úr forstigspróteininu, hugs- anlega vegna of mikillar virkni tiltekins próteasa, p- sekretasa (14). Allt bendir til þess að við báða þessa sjúkdóma sé myndun þessarar mýildisgefandi klofn- ingsafurðar og uppkoma heilaskellna ennfremur með einum eða öðrum hætti undanfari útfellingar á tau-prótíni í heilanum (15). Læknablaðið 2003/89 661

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.