Læknablaðið - 15.09.2003, Síða 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐI 32
Faraldsfræði í dag
Yfirgreining
Greinar um „meta analysur" verða æ algengari í
læknatímaritum. Eftir því sem ég best veit hefur enn
ekki verið fundið gott íslenskt orð yfir þessa rann-
sóknartegund en ef til vill mætti í bili nota orðið yfir-
greining eða samgreining þar sem aðferðin snýst um
það að fá yfirlit yfir eða sameina niðurstöður tveggja
eða fleiri fyrri rannsókna í eina sameiginlega niður-
stöðu.
Yfirgreining er hins vegar ekki bara það að steypa
saman niðurstöðum nokkurra rannsókna heldur er
hún mun nánar skilgreind. Samkvæmt Petitti (1) er
yfirgreining megindleg (quantitative) nálgun við að
sameina á skipulegan hátt niðurstöður fyrri rann-
sókna í því augnamiði að draga ályktanir út frá þeim
heildarupplýsingum sem fyrir liggja. Yfirgreining
hefur einnig verið skilgreind sem safn ýmissa aðferða
sem notaðar eru til að sameina niðurstöður tveggja
eða fleiri rannsókna á tölfræðilegan hátt í eina töl-
fræðilega niðurstöðu (2). Hún dregur þá saman þau
heildaráhrif sem fólust í upprunalegu niðurstöðun-
um og má nota til að lýsa heildinni eða draga frekari
ályktanir um heildina.
I báðum þessum skilgreiningum felst að um meg-
indlega eða tölfræðilega sameiningu niðurstaðna er
að ræða. Eigindlegt (qualitative) yfirlit um niður-
stöður rannsókna telst því alls ekki vera yfirgreining,
jafnvel þó niðurstöðurnar séu túlkaðar og dregnar
saman á vandaðan og greinargóðan hátt. Til þess að
um yfirgreiningu sé að ræða þarf tölfræðiieg úr-
vinnsla á upprunalegum tölfræðilegum niðurstöðum
að koma til. Hins vegar er tölfræðileg úrvinnsla ekki
eina auðkenni yfirgreiningar, fleiri atriði skipta máli.
Þar má nefna skipulega leit að rannsóknum sem
lagðar eru til grundvallar, skýr skilmerki fyrir því
hvort rannsókn er höfð með eða ekki, og nákvæma
greiningu á einsleitni (homogeneity) meðal niður-
staðna þeirra rannsókna sem draga á saman. Fleiri
atriði hafa einnig verið nefnd sem einkenni yfirgrein-
inga en ekki eru allir á eitt sáttir og formleg skilmerki
liggja ekki fyrir.
Hvað sem öllum skilmerkjum og skilgreiningum
líður eru aðferðir yfirgreiningar notaðar í hraðvax-
andi mæli og eru þörf verkfæri af ýmsum sökum.
Fjórar meginorsakir koma þar sennilega til. í fyrsta
lagi gefur hefðbundið yfirlit um þekkingargrunninn
(literature review) alls ekki alltaf nógu skýra mynd af
þeim upplýsingum og þekkingu sem þegar eru fyrir
hendi. Þar getur yfirgreiningin bætt verulega við með
því að sameina niðurstöður og meta áhrif einstakra
rannsókna á heildarniðurstöðuna. í öðru lagi vantar
oft talsvert upp á tölfræðilegt afl smærri rannsókna
þannig að niðurstöður annars vel gerðra rannsókna
teljast ekki tölfræðilega marktækar eða ekki er unnt
að greina áhrif innan einstakra undirhópa í rann-
sókninni (subgroup analyses). í þriðja lagi standa
menn oft frammi fyrir því að niðurstöður einstakra
rannsókna eru mjög misleitar (heterogeneous) og
erfitt er að túlka þær í samhengi. I fjórða lagi vekja
niðurstöður skyldra rannsókna stundum nýjar spurn-
ingar eða hugmyndir sem yfirgreining getur varpað
ljósi á.
Tölfræðileg gagnavinnsla í yfirgreiningu er tals-
vert flókin og verður ekki lýst hér. Almennt má segja
að aðferðin henti betur til að sameina niðurstöður til-
rauna, svo sem slembinna íhlutunarrannsókna (ran-
domized clinical trials), en samanburðarrannsókna
(observational studies) þar sem þær geta borið með
sér óleiðrétta röskun (uncontrolled confounding).
Minni hætta er á þessu ef um slembun er að ræða sem
ætti að dreifa raskandi þáttum jafnt í rannsóknarhóp-
ana og draga þannig mjög úr áhrifum þeirra.
Augljós ágalli yfirgreiningar sem aðferðar til að
nálgast heildarniðurstöðu varðandi ákveðið atriði er
að hún byggist yfiiieitt aðeins á útgefnum rannsókn-
um. Vel er þekkt að jákvæðar rannsóknir (það er
rannsóknir sem finna samband milli þeirra þátta sem
verið er að rannsaka) eru mun líklegri til að rata í
tímarit en þær rannsóknir sem annaðhvort gefa töl-
fræðilega ómarktækar niðurstöður eða benda lil að
ekki sé um samband að ræða. Yfirgreiningum er því
hætt við að ofmeta sambandið og gefa sterkari heild-
arniðurstöður en fengjust ef raunverulega væri unnt
að styðjast við allar þær rannsóknir sem gerðar hafa
verið en liggja enn óútgefnar ofan í skúffum (the file
drawer problem of meta-analysis). Við þessu má þó
bregðast með því að kanna næmi niðurstöðunnar
fyrir breyttum forsendum. Þannig má til dæmis meta
hve stöðugar niðurstöður yfirgreiningarinnar eru gagn-
vart áhrifum óútgefinna tölfræðilegra ómarktækra
rannsókna. Einnig er hægt að kanna hve margar rann-
sóknir með neikvæðum niðurstöðum þyrfti að finna í
skúffum og bæta við til að hnekkja niðurstöðu yfir-
greiningarinnar.
Heimildir
1. Petitti DB. Meta-Analysis, Decision Analysis and Cost-Effec-
tiveness Analysis. New York: Oxford University Press, 1994.
2. Oakes M. Statistical Inference. Chestnut Hill: Epidemiology
Resources Inc., 1990.
María
Heimisdóttir
nwriahei@lanclspilali.is
Læknablaðið 2003/89 713